Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 4
4 26. apríl 2003 LAUGARDAGUR ■ Ávirðingarnar Ertu komin(n) í sumarskap? Spurning dagsins í dag: Óttastu bráðalungnabólgu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 4% 75% Nei 21%Það fer að koma Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Afríka ■ Innlent RÍKISFJÁRMÁL „Skoðun okkar á máli Þorfinns Ómarsson er hefðbund- in þegar litið er til þess að for- stöðumannsskipti fóru fram,“ segir Sigurður Þórðarson ríkis- endurskoðandi. Hann segir gagn- rýni Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar lögmanns á sig og stofnun- ina úr lausu lofti gripna en lög- maðurinn heldur því fram að Rík- isendurskoðun hafi með rann- sókn sinni farið út fyrir verksvið sitt líkt og menntamálaráðuneyt- ið. Sigurður segir það vera álit Ríkisendurskoðunar að Þorfinni hafi verið óheimilt að úthluta styrkjum í ársbyrjun. Mennta- málaráðuneytið hafi gefið honum fyrirmæli um að hafast ekkert að á síðustu vikum sínum í embætti þar sem þess var beðið að ný reglugerð um Kvikmyndastofnun tæki gildi. Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra staðfestir að Ríkis- endurskoðun hafi átt frumkvæði að rannsókninni. „Við erum að fara yfir þessi mál í heild sinni í ráðuneytinu,“ segir Tómas Ingi. Hann segir að með því að veita styrkina hafi Þorfinnur brotið gegn fyrirmælum sínum. Greiðsludeild menntamálaráðu- neytisins staðfesti beiðni um út- borgun til styrkþega til ríkisfé- hirðis. Aðspurður um hvort ráðu- neytinu hefði ekki verið hæg heimatökin að stöðva útborgunina sagði menntamálaráðherra að starfsmenn hefðu verið granda- lausir fyrir því að forstöðumaður- inn virti ekki fyrirmælin. „Við vorum í góðri trú um að þessi fyrirmæli væru virt,“ segir Tómas Ingi. Menntamálaráðherra segist ekki vilja svara ávirðingum Jóns Steinars Gunnlaugssonar fremur en „öðrum lögmönnum úti í bæ“. ■ GENF, AP Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti einhljóða ályktun þar sem þess er krafist að aðild- arríki standi vörð um mann- réttindi í baráttu sinni gegn hryðjuverkum. Ályktunin, sem lögð var fram á fundi nefndarinnar í Genf, gerir Sameinuðu þjóð- unum kleift að rannsaka þær aðferðir sem löndin nota til þess að skera úr um hvort þær brjóti í bága við alþjóðlega mann- réttindasáttmála. Nefndin hefur þó ekki vald til þess að krefja löndin um úrbætur. Á fundinum var jafn- framt tekist á um ályktun þar sem komið var inn á mannréttindabrot í garð samkynhneigðra. Sú tillaga hlaut fullan stuðning Evr- ópuríkja en fulltrúar fimm múslímaríkja vildu að ákvæðið sem varðaði mis- munun á grundvelli kynhneigðar yrði tekið út. ■ RÍKISFJÁRMÁL Þorfinnur Ómarsson, fráfarandi forstöðumaður Kvik- myndasjóðs, segir að enginn vafi leiki á því að sínu mati að Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra sé í herferð gegn sér persónulega og rannsókn Ríkisendurskoðunar sé sprottin undan rifjum ráðherr- ans sem hafi með því viljað koma á sig höggi. „Maðurinn virðist vera með mig á heilanum. Þetta er ekkert annað en ofsóknir,“ segir Þorfinn- ur vegna rannsóknarinnar. Niður- staða Ríkisendurskoðunar er sú að Þorfinnur hafi ekki haft heim- ild til þess að úthluta Hrafni Gunnlaugssyni styrk upp á 22 milljónir króna til þess að gera k v i k m y n d i n a O p i n b e r u n Hannesar eftir smásögu Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Það merkilega við málið er að glæpasaga Dav- íðs hafði áður orðið Þorfinni að falli þegar hann og stjórn Kvikmyndasjóðs neit- uðu að styrkja myndina þegar sótt var um þrefalt hærri upphæð á síðasta ári. Þá lenti Þorfinnur í miklum darraðardansi sem lauk með því að hann sætti rannsókn Ríkisendurskoðunar og mennta- málaráðherra vék honum tíma- bundið úr starfi en var rekinn til baka með þá ákvörðun eftir að lögfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að það hefði verið óheimilt. Með nýjum lögum um Kvikmyndasjóð Íslands var aug- lýst eftir forstöðumanni. Þorfinn- ur var þar á meðal umsækjenda en var hafnað og Laufey Guðjóns- dóttir ráðin. Ríkisendurskoðandi komst að þeirri niðurstöðu að Þorfinni hafi verið óheimilt að styrkja mynd Hrafns þar sem menntamála- ráðuneytið hafi ekki verið sam- þykkt. Þá er einnig talið að aðrir tveir smærri styrkir hafi verið veittir í heimildarleysi. Þorfinn- ur segist dögum saman hafa reynt að ná sambandi við menntamálaráðherra vegna styrkjanna eftir að lögfræðiálit hafi lýst því að honum væri heimilt að úthluta þeim en ráð- herrann hafi engu svarað. Ríkisendurskoðun gerði at- hugasemdir við fimm reikninga frá veitingastöðum sem Þorfinnur lét stofnun sína greiða auk þess að hann hafi látið leggja út fyrir fata- hreinsun og ferðakostnaði til og frá flugvelli. Alls eru þeir reikn- ingar upp á tæplega 90 þúsund krónur. Þá er því lýst að ýmis bún- aður sem stofnunin keypti á árun- um 2001 og 2002 sé ekki til staðar á skrifstofunni. Þorfinnur segir ýmislegt vera furðulegt í þeirri úttekt. Til dæmis á því tímabili eftir að honum hafi verið vikið úr starfi hafi verið keypt myndavél. Þá sé tíundað að hann hafi enn undir höndum fartölvu sem hann hafi rætt um kaup á við nýja for- stöðumanninn. „Ríkisendurskoðun var meira að segja með þá skoðun að ég hefði líklega í fórum mínum ís- skáp sem hafði verið keyptur í þágu starfsmanna. Ég spurði hvort þeir hefðu nokkuð kíkt inn á kaffistofuna. Það höfðu þeir ekki gert og því yfirsást þeim ísskáp- urinn. Þarna er greinilega allt tínt til,“ segir Þorfinnur. rt@frettabladid.is Eftirfarandi kom fram í skýrslu sem Ríkisendurskoðun gerði fyr- ir menntamálaráðuneytið um embættisfærslur Þorfinns Ómarssonar. Styrkir í heimildarleysi ● 3,5 milljónir til Cut n Paste til kynningar á myndinni Salt. ● 3 milljónir til Kólku vegna myndarinnar Ég lifi og þér munið lifa. ● 22 milljónir til Opinberunar ehf. vegna myndarinnar Opinber- un Hannesar. ● 12,5 milljónir til Sagnar ehf. vegna myndarinnar Sögu. Úttektir í heimildarleysi ● Fiðlarinn 5. október 2002, mat- ur og áfengi, 14.780 krónur. ● Hard rock cafe 3. nóvember 2002, matur, vín og bjór, 7.860 krónur. ● Eldsmiðjan 8. janúar 2003, pitsur og fleira, 4.350 krónur. ● Veitingahúsið Ítalía, 2. febrúar 2003, 12.000 krónur. ● Sommelier, 16. febrúar 2003, 33.280 krónur. Eignakönnun Eftirtalinn búnaður var ekki til staðar á skrifstofu Kvikmynda- miðstöðvar Íslands. ● TOP þráðlaus sími, 53.557 krónur. ● GNN þráðlaust höfuðtól, 44.900 krónur. ● Nokia 8850 GSM-sími, 73.900 krónur. ● Aiwa-myndavél, 8.990 krónur. ● Sony Net MD-spilari, 30.945 krónur. Búnaður sem Þorfinnur skilaði 9. apríl 2003 ● Fuji ljósmyndavél, ásamt tösku, 118.975 krónur. - Vantaði 64 mb minniskort sem fylgdi vélinni. ● Sony DVD-spilari, 99.790 krón- ur. - Vantaði Dolby digital útvarps- magnara sem fylgdi spilaranum. Búnaður enn í vörslu Þorfinns ● Power Book Combo fartölva, 221.512 krónur. ● Nokia GSM-sími, 99.900 kr. BARÁTTAN VIÐ MALARÍU Daglega deyja um 3.000 börn í Afríku af völdum malaríu. Sjúkdómurinn kostar álfuna hundruð milljarða króna á ári þó auðveldlega sé hægt að hefta útbreiðsluna, ef marka má skýrslu Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. Stofnunin bendir á ýmsar einfaldar og hag- kvæmar leiðir til þess að vinna gegn útbreiðslu sjúkdómsins. WINNIE MANDELA Á LEIÐ Í FANG- ELSI Winnie Mandela, fyrrum eig- inkona Nelson Mandela, hefur verið dæmd í fjögurra ára óskil- orðsbundið fangelsi fyrir svik og þjófnað. Mandela var fundin sek um að hafa svikið út eða stolið allt að 10 milljónum íslenskra króna. Hún hefur sagt af sér þing- mennsku og látið af embættis- störfum hjá Afríska þjóðarráðinu. Þorfinnur segir ráðherra ofsækja sig Menntamálaráðherra greiddi út styrkinn til Hrafns Gunnlaugssonar. Þorfinnur Ómarsson segir ýmislegt vera einkennilegt í skýrslu Ríkisendurskoðunar. ÞORFINNUR ÓMARSSON Smásaga Davíðs Oddssonar hefur tvívegis komið honum í koll. Fyrst þegar hann neitaði að styrkja kvikmynd byggða á sögunni en síðar þegar hann samþykkti að styrkja myndina. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Mannréttindanefndin hefur samþykkt að aðildarlöndin standi vörð um mannréttindi. „Ríkisendur- skoðun var meira að segja með þá skoðun að ég hefði líklega í fórum mínum ísskáp. Stríðið gegn hryðjuverkum: Baráttuaðferðir rannsakaðar Menntamálaráðherra: Vorum í góðri trú TÓMAS INGI OLRICH Segir að Þorfinnur Ómarsson hafi óhlýðnast fyrirmælum sínum með því að úthluta styrkjum til kvikmyndagerðarmanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SAMNINGUR UM FERÐAMÁL Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra og Finn Karlsen, atvinnu- málaráðherra grænlensku heima- stjórnarinnar, hafa undirritað nýjan samning um samstarf á sviði ferðamála. Framlag land- anna til samstarfsins er 10 millj- ónir króna á ári. Tilgangurinn er að auka ferðalög á milli Íslands og Grænlands. MENNINGARHÚS Á ÍSAFIRÐI Und- irritað hefur verið samkomulag um endurbyggingu þriggja menn- ingarhúsa á Ísafirði. Þau eru gamla héraðssjúkrahúsið, Edin- borgarhúsið og salur tónlistar- skólans. Framlag ríkissjóðs til endurbyggingar menningarhús- anna þriggja á Ísafirði er um 250 milljónir króna, alls 251,2 m.kr., sem er 60% af kostnaðaráætlun. McLOUIS húsbílar Netsalan Garðatorgi 3, 210 Garðabær Símar: 565 6241/ 544 4210 Fax: 544 4211 Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan www.itn.is/netsalan Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni Opið í dag, laugardag, frá kl. 11 - 17 og sunnudag frá kl. 11 - 16 SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING Lagan 251 aðeins kr 3,990,000 stgr. Lagan 410 aðeins kr 4,170,000 stgr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.