Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 22
23FÖSTUDAGUR 9. maí 2003 Framsóknarflokkurinn kom inn íríkisstjórn árið 1995. Þá var í landinu mikið at- vinnuleysi. Þá var í landinu mikið ósætti vegna niður- skurðar í heil- brigðismálum. Þá var einnig mikið ósætti vegna niður- skurðar í menntamálum og breytingar á lögum um Lána- sjóð íslenskra n á m s m a n n a höfðu kallað á harða baráttu allra námsmannasamtaka í land- inu. Þá snerust kosningarnar um velferðarkerfið og sköpun nýrra atvinnutækifæra. Í dag er sagan önnur. Vinstri flokkarnir í stjórnarandstöðunni hafa áhyggjur af tvennu. Í fyrsta lagi að vegna mikilla umsvifa sem fram undan eru í íslensku atvinnu- lífi kunni að þurfa að gæta aðhalds við stjórn ríkisfjármála og í öðru lagi hvernig auknum tekjum ríkis- sjóðs verði varið á næsta kjörtíma- bili. Það má því glöggt sjá að „vandamál“ stjórnmálanna í dag eru auknar tekjur þjóðarbúsins, þensla í atvinnulífinu, hækkun launa og aukin neysla almennings. Stórkostlegt tækifæri Við í Framsóknarflokknum lítum hins vegar ekki á þetta sem vandamál heldur fyrst og fremst sem stórkostleg tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki að hafa það enn betra. Við viljum nýta tekjuauka ríkissjóðs annars veg- ar til að lækka skatta á almenn- ing og bæta kjör ákveðinna hópa og hins vegar til að efla íslenska velferðarkerfið. Þannig viljum við lækka tekjuskatt einstaklinga úr 38,55% í 35,2%. Við viljum einnig sérstaklega koma til móts við þá hópa sem tekjulágir eru og hagnast því ekki endilega á lækkun tekjuskatts. Við viljum efna samkomulag sem heilbrigð- isráðherra hefur gert við Ör- yrkjabandalag Íslands um hækkun bóta til öryrkja, þar sem sérstök áhersla er lögð á þá sem verða öryrkjar ungir að árum. Við viljum greiða 36.500 krónur með hverju barni að 16 ára aldri og 73.000 krónur með börnum undir 7 ára, ótekjutengt, í formi barnakorta. Þá viljum við hækka frítekjumark barna- bóta. Við viljum einnig halda áfram kröftugri uppbyggingu í húsnæðismálum með sterkari leigumarkaði og hækkun láns- hlutfalls íbúðasjóðslána í 90%.Við viljum skilgreina gler- augu sem hjálpartæki þegar um börn er að ræða og að ríkið taki þátt í niðurgreiðslu með sama hætti og þegar um heyrnartæki er að ræða. Þá hef ég lagt áherslu á að virðisaukaskattur verði felldur niður af barnaföt- um. Við leggjum þó ekki síður áherslu á að gæta hófs og vernda stöðugleikann. Án ákveðins að- halds í ríkisfjármálum er hætta á að þenslan verði of mikil og stöðugleikanum verði ógnað. Fari verðbólgan af stað munu heimilin í landinu í engu njóta aukinna umsvifa og það sama gildir auðvitað um fyrirtækin. Á næsta kjörtímabili bíða fjölmörg erfið verkefni. Það skiptir máli hverjir taka þátt í því starfi. Hverjum er treystandi? Framsóknarflokkurinn hefur skilað sínum verkum í höfn á síðastliðnum átta árum. Þau verk eru undirstaða þeirrar vel- megunar sem ríkt hefur á Ís- landi síðustu ár og skapa einnig þær miklu væntingar sem nú ríkja í þjóðfélaginu. Það hlýtur að skipta einhverju hvernig stjórnmálaflokkar hafa staðið sig, þegar kemur að kosningum. Ef það skiptir engu, hver er þá hvatinn? Framsóknarflokkurinn þarf stuðning til að starfa áfram í ríkisstjórn. Kjósendur ráða þar för. Mikilvægt er að þeir geri sér grein fyrir því að það skiptir máli hverjir eru við stjórnvöl- inn. ■ Kosningar maí 2003 PÁLL MAGNÚSSON ■ aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskipta- ráðherra og í 2. sæti á lista Framsóknar- flokksins í Suðvestur- kjördæmi skrifar um stefnu Framsóknar- flokksins. Það skiptir máli! „Við viljum einnig sér- staklega koma til móts við þá hópa sem tekjulágir eru og hagn- ast því ekki endilega á lækkun tekju- skatts. MÓTUN SAMFÉLAGSINS Framsóknarflokkurinn hefur skilað sínum verkum í höfn undanfarin átta ár.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.