Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 23
Hann getur rassskellt þá alla,“sagði Jeb Bush, fylkisstjóri í Flórída, þegar hann var spurður um möguleika demókrata á að hafa betur en bróðir hans George W. Bush í forsetakosningunum sem fara fram eftir eitt og hálft ár. Þrátt fyrir að enn sé langt til kosninga er baráttan komin í full- an gang. Níu hafa þegar lýst áhuga á að hljóta útnefningu demókrataflokksins. Sá sem varð fyrstur til þess, Howard Dean, fyrrum fylkisstjóri Vermont, gerði það strax í ársbyrjun, ekki þessa árs heldur þess síðasta. Líkurnar á því að demókrötum takist að koma Bush frá völdum teljast ekki miklar. Allar skoðana- kannanir sem hafa verið gerðar að undanförnu benda til að Bush vinni kosningarnar með yfirburð- um. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að fleiri sækjast eftir út- nefningu demókrata nú en gerst hefur frá árinu 1988. Þá gerðu demókratar sér vonir um að hreppa forsetaembættið þegar Ronald Reagan lét af embætti. George H. W. Bush, pabbi núver- andi forseta, gerði vonir þeirra að engu í það skiptið. Utanríkismál enn fyrirstaða Það má færa rök fyrir því að kosningabarátta demókrata hafi byrjað formlega um síðustu helgi. Þá mættust frambjóðendurnir níu í fyrstu kappræðum sínum sem sýndar voru í sjónvarpi. Þar gagn- rýndu þeir hver annan jafn harka- lega og þeir hafa áður gagnrýnt Bandaríkjaforseta. Stríðið í Írak var áberandi í umræðunni eins og við var að bú- ast. Joe Lieberman, öldungadeild- arþingmaður og varaforsetaefni Al Gore í kosningabaráttunni árið 2000, gagnrýndi Howard Dean harkalega fyrir andstöðu hans við innrásina í Írak. Öldungadeildar- þingmaðurinn John Kerry, sem var heiðraður fyrir frammistöðu sína í Víetnam, fékk líka að kenna á skömmum Liebermans. Kerry greiddi atkvæði með innrás en gagnrýndi Bush fyrir að gera ekki nóg til að leysa vandann með frið- samlegum hætti. Heilbrigðismál í brennidepli Eitt helsta málið sem brennur á demókrötum er staða heilbrigð- ismála og slysatrygginga. Það kom í ljós í kappræðunum að mik- ill munur er á afstöðu flokks- bræðra um hversu mikið sé nauð- synlegt að gera og hvaða leiðir séu færar. Dick Gephardt, fyrrum leið- togi demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur sett fram tillögur um hvernig tryggja megi að allir starfandi Bandaríkja- menn njóti slysatrygginga. Hann vill gera fyrirtækjum skylt að tryggja starfsmenn sína og veita þeim skattaafslátt á móti, nokkuð sem hann hyggst fjármagna með því að afnema skattalækkanir nú- verandi forseta. Ráðist var að þeim tillögum bæði frá hægri og vinstri. Öldungardeildarþing- maðurinn John Edwards sagði að tillagan fæli í sér stórkostlegar skattalækkanir til fyrirtækja. Edwards rifjaði upp að stórfyrir- tæki hefðu farið illa með starfs- menn sína og rifjaði upp hvernig stjórnendur Enron hefðu sóað líf- eyrissparnaði starfsmanna sinna. Hinn lítt þekkti fulltrúadeild- arþingmaður Dennis Kucinich sagði tillögurnar ganga of skammt. Réttast væri að taka upp tryggingakerfi sem næði til allra landsmanna og væri kostað með fé úr ríkissjóði. Howard Dean sagði að hægt væri að tryggja nær alla landsmenn með minni til- kostnaði en þeim sem tillögur Gephardts gera ráð fyrir. Það hefði hann sannreynt á ríkis- stjóraárum sínum í Vermont. Lieberman var harðastur í gagnrýni sinni. „Við munum ekki leysa þessi vandamál með göml- um hugmyndum demókrata um aukna eyðslu.“ Margir tilnefndir Þrátt fyrir að margir demókrat- ar gefi kost á sér í forsetakjörinu er ekki þar með sagt að margir þeirra geri sér vonir um að leggja Bush að velli. Í nýlegri könnun ABC og Washington Post kemur fram að George W. Bush nýtur stuðnings þriggja af hverjum fimm Bandaríkjamönnum. Þeir þrír demókratar sem þykja líkleg- astir til að eiga möguleika í for- setakosningunum nutu allir stuðn- ings innan við þriðjungs kjósenda, það eru þeir Joe Lieberman, Dick Gephardt og John Kerry. Líklegt má telja að fæstir þeirra sem hafa lýst framboði geri sér vonir um að vinna útnefn- ingu demókrata. Þetta á sérstak- lega við um þau Dennis Kucinich, Carol Moseley-Braun og Al Sharpton. Það er líka efast um möguleika þess sem hefur safnað mestu fé, John Edwards. Lieberman, Gephardt og Kerry eru þeir sem njóta mest stuðnings. Samkvæmt fyrr- nefndri könnun myndu 29% kjósa Lieberman, 19% Gephardt og 14% Kerry í forkosningunum um útnefningu demókrataflokks- ins. Aðrir fá innan við fimm pró- sent. Reyndar með einni undan- tekningu. Sex prósent lýstu stuðningi við Carol Moseley- Braun, einu konuna í framboði, aðra af tveimur þeldökkum fram- bjóðendum. Það má þó segja um Lieberm- an að hann hljómar í það minnsta sigurviss. „Ég veit að ég get bor- ið sigurorð af George Bush. Hvers vegna? Vegna þess að við Al Gore höfum þegar gert það einu sinni,“ sagði hann í kapp- ræðunum. Þá höfðu andstæðing- ar hans skömmu áður hlegið að því þegar Lieberman taldi sig mótvægi við hægristefnu Banda- ríkjaforseta. Rándýrt ævintýri Kosningabaráttan er ekki bara löng. Hún er dýr, mjög dýr. Fram- bjóðendurnir níu höfðu safnað fé að andvirði tæpra tveggja millj- arða króna í kosningasjóði sína áður en 1. apríl rann upp, hátt í ári áður en fyrsti kjósandinn skilar atkvæði sínu. Tveir frambjóðend- anna höfðu reyndar safnað rúm- lega helmingi upphæðarinnar. Öldungadeildarþingmennirnir John Kerry og John Edwards höfðu hvor um sig safnað rúmum hálfum milljarði króna. Edwards átti sérstaklega auðvelt með að fá framlög frá skaðabótalögmönn- um. Sjálfur auðgaðist hann á því að lögsækja stórfyrirtæki áður en hann sneri sér að stjórnmálum. Reyndar vekur athygli að tveir þekktustu frambjóðendurnir, Joe Lieberman, öldungadeildarþing- maður og fyrrum varaforsetaefni Al Gore, og Dick Gephardt, sem lengi vel leiddi demókrata í full- trúadeildinni, hafa ekki safnað nema helmingi þeirrar upphæðar sem Edwards og Kerry hafa náð í sjóði sína. brynjolfur@frettabladid.is 24 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR ATT KAPPI Í FYRSTA SINN Fyrstu kappræður þeirra níu manna sem gefið hafa kost á sér í forkosningum demókrata fyrir forsetakosningarnar fóru fram um síðustu helgi. Áhugi almennings fyrir kappræðunum var takmarkaður. Reyndar var það svo að svæðisstöð ABC í Washington brá á það ráð að endursýna frekar gamla gamanþætti heldur en að sýna frá einnar og hálfrar klukkustundar löngum kappræðunum. S Níu demókratar eru lagðir af stað í kosningabaráttu sem lýkur með því að einn þeirra vinnur tilnefningu Demókrataflokksins til að skora George W. Bush á hólm í forsetakosningunum 2004. Sumir lýsa því sem keppni um réttinn til að vera sleginn út í fyrstu lotu. ...og eftir stendur einn FRAMBJÓÐENDURNIR Howard Dean Fyrrum fylkisstjóri Fyrstur til að lýsa yfir framboði. Harður and- stæðingur innrásar í Írak. John Edwards Öldungadeildarþingmaður Á sínu fyrsta kjörtímabili í öldungadeildinni. Stuðningsmaður innrásar í Írak. Dick Gephardt Fulltrúadeildarþingmaður Einna reyndastur í hópnum. Sóttist eftir út- nefningunni 1988. Bob Graham Öldungadeildarþingmaður Vinsæll fylkisstjóri og þingmaður í Flórída. Lítt þekktur á landsvísu. John Kerry Öldungadeildarþingmaður Stríðshetja frá Víetnam. Einna vinstrisinnað- astur í hópnum. Dennis Kucinich Fulltrúadeildarþingmaður Lítt þekktur þingmaður til átta ára. Kallar sig demókrata í anda Roosevelts. Joe Lieberman Öldungadeildarþingmaður Varaforsetaefni demókrata 2000. Hægrimað- urinn í hópnum. Haukur í Íraksmálum. Carol Moseley-Braun Fv. öldungadeildarþ.m. Fyrsta þeldökka konan til að vinna sæti í öld- ungadeildinni. Harður friðarsinni. Al Sharpton Prestur Afar umdeildur grasrótarmaður. Hefur aldrei gegnt kjörnu embætti. VANDLEGA LEIKSTÝRT Það er ekki hætt á nein mistök þegar menn gefa kost á sér til embættis forseta Bandaríkj- anna. Framboðstilkynningar eru vandlega undirbúnar og líkjast einna helst leiksýningum með æfðum leikurum og útpældri sviðsmynd. Þetta mátti sjá þegar Bob Graham tilkynnti um framboð sitt á þriðjudag. Fyrir um það bil tólf árum síðanhefði það þótt firra að gefa í skyn að George Bush myndi ekki bera sigur úr býtum í forsetakosn- ingunum sem stóðu fyrir dyrum. Hann hafði þá leitt fjölþjóðlegt herlið til sigurs yfir Írökum og vin- sældir hans voru í hámarki. Rúmu ári síðar var hann fallinn, búinn að tapa forsetakosningunum gegn til- tölulega óþekktum fylkisstjóra sem hreiðraði um sig í Hvíta hús- inu næstu átta árin. Demókratar vona að sagan endurtaki sig nú. Efnahagsmálin eru að flækjast fyrir George W. Bush, rétt eins og þau flæktust fyrir pabba hans í kosningabaráttunni. Staðnað efna- hagslíf, atvinnuleysi og svartsýni um framvindu mála hafa skilað sér í takmörkuðum stuðningi almenn- ings við stjórn hans á innanríkis- málum. Það má í það minnsta lesa úr fjölda skoðanakannana. Á móti kemur að almannahylli Bush skyggir á alla aðra. Þegar bandaríska þjóðin leitar sér að leiðtoga kemst enginn demókratanna í hálfkvisti við Bush. Þegar kemur að landvörnum og utanríkismálum nýtur hann meira trausts en keppinautarnir. Að lokum má ekki vanmeta mikilvægi digru kosningasjóð- anna. Í síðustu kosningabaráttu Bush söfnuðust meira en sjö millj- arðar í sjóði. Nú stefna stuðnings- menn hans að því að safna tvö- faldri þeirri upphæð og útlit fyrir að þeim takist það. Það stefnir því í dýrustu kosningabaráttu sögunn- ar. ■ FEIKIVINSÆLL OG SIGURSÆLL George W. Bush nýtur mikilla vinsælda. Spurningin er hvort hann situr tvö kjörtímabil eða aðeins eitt eins og síðasti forseti úr röðum Repúblikanaflokksins. Vinsæll Bandaríkjaforseti: Óvinnandi vígi?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.