Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 47
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Þegar ég er einn í bíl tala ég mjögmikið við sjálfan mig. Stundum lendi ég jafnvel í hatrömmum deilum. Þá verð ég mjög staðfastur, en er þó yfirleitt fljótur að fyrir- gefa þung orð og taka sjálfan mig í sátt ef ég segi eitthvað við sjálfan mig sem betur hefði mátt kyrrt liggja. Um daginn þegar ég var að keyra heim úr vinnunni lenti ég í einum slíkum deilum, mjög hatrömmum deilum, um fiskveiði- stjórnunarkerfið. Á HRINGBRAUTINNI lamdi ég í stýrið og sagði að það gengi ekki lengur, bara gengi alls ekki, að ein- staklingar í sjávarútvegi sem fengið hefðu gefins kvóta frá ríkinu gætu síðan selt hann dýrum dómum og tekið söluandvirðið út úr greininni. Þeir fara með þjóðarauðinn úr landi, hvíslaði ég hneykslaður, og liggja svo í sólbaði við sumarhús á Mallorka það sem eftir er. Hvílíkt óréttlæti! Á MÓTUM MIKLUBRAUTAR og Kringlumýrarbrautar fannst mér þessi málflutningur um óréttlæti í sjávarútvegi heldur vera farinn að keyra um þverbak. Þurfti ekki að koma á stöðugleika? spurði ég, og horfði alvörugefinn fram á veginn. Ég endurtók spurninguna: Þurfti ekki að koma á stöðugleika? Var ekki kvótakerfið eina raunhæfa leiðin til þess að koma á slíkum stöðugleika? Svaraðu því, sagði ég við sjálfan mig og otaði fingri ákveðinn að framrúðinni. Svaraðu því! VIÐ LJÓSIN HJÁ SUÐURVERI hætti ég að tala um sjávarútveg. Ég veitti því eftirtekt að konan í bíln- um við hliðina horfði á mig. Ég held að henni hafi fundist það einkenni- legt að sjá mig lemja í stýrið, sleng- ja fram höndunum málum mínum til áherslu og taka bakföll í sætinu í upphrópunum mínum. Ég snarhætti. Áður en ég vissi af var fiskveiði- stjórnunarkerfið horfið út í veður og vind. Málið var enn óútkljáð. Gjáin var of stór. Deiluaðilar ósátt- ir. Þegar græna ljósið kom hækkaði ég útvarpinu og brast í söng. ■ Einn í bíl Traust forysta Ungt fólk í Samfylkingunni Kynnir tónleikanna er Sveppi. Fram koma Land og synir, Botnleðja, Bent og 7berg, Ég og Coral. Tónleikar á Ingólfstorgi Kvöldgleði á Felix (áður Sport kaffi) eftir tónleikana. Húsið opnar kl. 21:00. Helga Braga og Geirfuglarnir. Í dag kl. 16:00–19:00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.