Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 16 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD FÓLK Skapandi vinna AFMÆLI Ekki blásið í lúðra MÁNUDAGUR 12. maí 2003 – 107. tölublað – 3. árgangur bls. 36 bls. 38 PERSÓNAN Tölvugúrú kosninganna bls. 38 FÓLK bls. 16 Maraþon próflestur FÓTBOLTI Chelsea í Meistara- deildina bls. 36 FUNDUR Ráðherra Evrópumála í sló- vensku ríkisstjórninni, Janez Potocnik, verður gestafyrirlesari í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni Evrópudagsins, sem var 9. maí síð- astliðinn. Potocnik flytur fyrirlest- ur um reynslu Slóveníu af stækkun Evrópusambandsins frá sjónarhóli lítils ríkis. Ólafur Þ. Harðarson, forseti félagsvísindadeildar, sér um fundarstjórn. Fundurinn hefst klukkan 16.30. Evrópumálin rædd í Háskóla Íslands TÓNLEIKAR Vortónleikar Tónlistar- skólans í Reykjavík verða haldnir í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Efnisskráin er fjölbreytt og aðgangur ókeypis. Vortónleikar FUNDUR Fyrsti hádegisfundurinn af þremur um MBA-nám verður hald- inn í Háskólanum í Reykjavík í dag undir yfirskriftinni Er vit í nýsköp- un? Inngangserindi flytur Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri DeCode. Að því búnu kynna fjórir MBA-nemendur verkefni sín. Er vit í nýsköpun? STJÓRNARMYNDUN Samfylkingin hefur gert Framsóknarflokknum óformlegt tilboð um ríkisstjórnar- samstarf, samkvæmt áreiðanleg- um heimildum Fréttablaðsins, þar sem gert er ráð fyrir að Halldór Ásgrímsson, for- maður Framsókn- arflokksins, verði forsætisráðherra í samsteypustjórn flokkanna tveggja. Ljóst er hins vegar að vilji er til þess á meðal forystu Framsóknarflokks- ins að kanna fyrst áframhaldandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ræddu saman á fundi í Ráðherrabústaðnum á hádegi í gær. Áætlað er að þeir fari fram á umboð þingflokka sinna í dag til þess að hefja formlegar viðræður. Af viðtölum við heimildarmenn innan Framsóknarflokksins að dæma leggja framsóknarmenn á það mjög ríka áherslu að flokkur- inn fái embætti forsætisráðherra í næstu ríkisstjórn, hvort sem það yrði með Sjálfstæðisflokki eða Samfylkingu. Eftir niðurstöðu kosninganna er flokkurinn í lykil- aðstöðu til að gera slíka kröfu. Einn viðmælenda blaðsins í þing- flokki Framsóknar nefndi þann möguleika að í stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks myndu fram- sóknarmenn taka 5 ráðherraemb- ætti og sjálfstæðismenn 7, en Framsóknarflokkurinn fengi for- sætisráðuneytið. Blendnar tilfinningar eru í röð- um framsóknarmanna í garð hug- mynda um samstarf við Samfylk- inguna, þó svo flokkurinn útiloki ekki neitt í því sambandi. Einn framsóknarþingmaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, benti á að slík tveggja flokka stjórn myndi einungis byggjast á eins manns meirihluta. Innan flokk- anna beggja, og þá einnig innan Framsóknarflokksins, væru ein- staklingar sem erfitt væri að treysta fyrir lífi slíkrar stjórnar. Frjálslyndir hafa lýst sig reiðu- búna að koma með í stjórn Sam- fylkingar og Framsóknarflokks og auka þar með meirihluta hennar. Viðmælendur blaðsins á meðal Frjálslyndra telja verulega miklar líkur á að hægt yrði að komast að samkomulagi um sjávarútvegs- mál ef flokkurinn yrði kallaður að viðræðuborðinu. gs@frettabladid.is KOSNINGAR Það eru mikil vonbrigði að stjórnarandstöðunni skyldi ekki hafa tekist að fella ríkisstjórnina, að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. „Ég er alls ekki sáttur við að við skyldum hafa tapað aðeins fylgi, þó það sé nú óverulegt,“ segir Steingrímur J. „Við vorum óheppin og töpuðum einum þingmanni á meðan Framsóknarflokkurinn var t.d. mjög heppinn. Hann heldur sínum tólf mönnum, þrátt fyrir að hafa tapað meira fylgi en við.“ Steingrímur J. segist ekki reikna með öðru en að Vinstri grænir verði áfram í stjórnarand- stöðu næstu fjögur árin. Þjóðin hafi kosið yfir sig sömu ríkisstjórn áfram „Það hlýtur að vera sérstakt umhugsunarefni fyrir þjóðina að hafa leyft Framsóknarflokknum að kaupa sig upp í kjörfylgið á nýjan leik með gríðarlega kostnaðar- samri auglýsingabaráttu.“ Steingrímur J. segir að Frjáls- lyndi flokkurinn sé sigurvegari kosninganna þó Samfylkingin hafi vissulega fengið góða kosningu. Frjálslyndir hafi nánast tvöfaldað fylgi sitt og séu búnir að festa sig í sessi hægra megin við miðju ís- lenskra stjórnmála. Það séu ákveð- in pólitísk tíðindi. ■ STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Norðlæg átt 5-8 m/s og léttskýjað. Hiti 2 til 9 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-8 Léttskýjað 6 Akureyri 5-10 Skýjað 3 Egilsstaðir 5-10 Slydda 0 Vestmannaeyjar 5-10 Léttskýjað 7 ➜ ➜ ➜ ➜ + + Formaður Vinstri grænna segir vonbrigði að ekki hafi tekist að fella stjórnina: Framsókn keypti sig upp í kjörfylgið Halldóri gefst kostur á forsætisráðuneytinu Samfylkingin hefur boðið formanni Framsóknarflokksins stól forsætisráðherra í mögulegri tveggja flokka stjórn. Framsókn mun hefja viðræður við sjálfstæðismenn í dag. Veðurblíða: Sumar- stemning í Nauthólsvík VEÐUR Veðrið lék við höfuðborgar- búa í gær og mátti víða sjá fólk njóta vorblíðunnar. Í Nauthólsvík lagði fjöldi manns leið sína og klæddu sig margir úr sokkum og skóm og óðu í flæðarmálinu. Í dag verður hiti á bilinu 1 til 10 stig. Kaldast er norðan til en hlýjast á Suðurlandi. Á morgun og miðvikudag verður léttskýjað norðan- og austan til, en annars skýjað með köflum. Sunnanátt verður ríkjandi á fimmtudag og bjartviðri norðaustan til, en skýjað í öðrum landshlutum. Á föstudag suðaustanátt, léttskýjað austan til, en súld öðru hverju suðvestan- og vestanlands. Austlæg átt á laugardag og skýjað með köflum. Hlýnandi veður. ■STRANDLÍF Í HÖFUÐBORGINNI Sumir voru á táslunum í flæðarmálinu, sumir hættu sér lengra út. Veðrið lék við fólk í Nauthólsvík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Formaður Vinstri grænna segist ekki vera sáttur við úrslit kosninganna. Flokkurinn hafi verið óheppinn að tapa einum þing- manni. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Rík krafa er um það á meðal framsóknar- manna að hann leiði næstu ríkisstjórn, hver sem hún verður. ■ Frjálslyndir hafa lýst sig reiðu- búna að koma með í stjórn Framsóknar og Samfylkingar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.