Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 32 Leikhús 32 Myndlist 32 Bíó 36 Íþróttir 20 Sjónvarp 38 KVÖLDIÐ Í KVÖLD AFMÆLI Hamborgari og súkkulaði ÍÞRÓTTIR Útlit fyrir jafna keppni FIMMTUDAGUR 15. maí 2003 – 110. tölublað – 3. árgangur bls. 22bls. 43 LISTIR Harmleikir Lorca bls. 32 FUNDUR Landsfundur Landssam- bands eldri borgara hefst klukkan 10 í Borgartúni 6. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, flytja ávörp. Fundinum lýkur á morgun með kosningu for- manns og stjórnar. Eldri borgarar funda RÁÐSTEFNA Starfsmannafélag ríkis- stofnana stendur fyrir ráðstefnu fyrir unga meðlimi félagsins. Á ráðstefnunni verður fjallað um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði. Ráðstefnan verður haldin í Iðnó og hefst klukkan 14. Ungt fólk á vinnumarkaði FUNDUR Foreldrafélag barna með AD/HD, sem áður hét Foreldrafé- lag misþroska barna, stendur fyrir fræðslufundi í Safnaðarheimili Há- teigskirkju. Gylfi Jón Gylfason, sálfræðingur hjá skólaskrifstofu Reykjanesbæjar, flytur fyrirlestur um samskipti innan fjölskyldna barna með athyglisbrest með eða án ofvirkni. Börn með athyglisbrest FUNDUR Blaðamannafélag Íslands er með pressukvöld þar sem um- ræðuefni er stjórnmál og fjölmiðl- ar. Fundurinn verður haldinn á Kaffi Victor og hefst klukkan 20.00. Stjórnmál og fjölmiðlar DÝRALÍF Skordýrin virðast frekar snemma á ferðinni þetta vorið. „Það helst í hendur við gróðurinn, þetta er allt samtengt,“ segir Er- ling Ólafsson skordýrafræðingur. Erling segir kuldakastið um dag- inn ekki hafa haft mikil áhrif á skordýrin, það hafi þó aðeins hægt á framgangi þeirra. Of snemmt sé að segja til um hversu áberandi skordýrin verði í sumar. „Það er svo margt sem spilar inn í, þetta er stórt og mikið samspil margra lífvera,“ segir Erling. „Það þarf ekki nema ein tegund að ná sér vel á strik, sem bitnar á annarri og svo framvegis.“ Geitungarnir eru komnir á stjá með fyrra fallinu þetta vorið. Er- ling segir geitungana geta verið til gagns, þar sem þeir leggi sér til munns meindýr í trjágróðri. Þeir eru þó ekki alltaf vinsamlegir. „Þeir geta verið skeinuhættir, sér- staklega þegar líða fer á sumarið eða þegar menn lenda í að ónáða þá við búið,“ segir Erling. „Það er þó engin ástæða til ofsahræðslu, en sjálfsagt er að umgangast þá af varúð.“ ■ STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Suðvestan 3-5 m/s og skýjað. Hiti 8 til 12 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Skýjað 9 Akureyri 3-8 Léttskýjað 11 Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 11 Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 9➜ ➜ ➜ ➜ + + Skordýrin með fyrra fallinu í vor: Geitungarnir komnir á kreik Heilbrigðisráðuneytið helsta ágreiningsefnið Málefnavinna innan stjórnarflokkanna hélt áfram í gær. Hver fær heilbrigðisráðuneytið er talið eitt stærsta ágreiningsefnið. Steingrímur J. telur ríkisstjórn flokka R-lista vel koma til geina. AFMÆLISVEISLA FIMMTA FORSETA LÝÐVELDISINS Ólafur Ragnar Grímsson varð sextugur í gær og af því tilefni var boðið til veislu í Borgarleikhúsinu. Gunnar Eyjólfsson leikari var á meðal þeirra gesta sem heiðruðu forsetann á afmælisdaginn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI STJÓRNARMYNDUN Stjórnarmyndun- arviðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknar héldu áfram í gær. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hélt málefnavinna áfram innan flokkanna og engin skipu- lögð fundarhöld fóru fram á milli foringjanna. Skiptar skoðanir eru um það á meðal viðmælanda blaðsins hvort verulegar hindran- ir séu í veginum fyrir því að flokk- arnir nái samkomulagi. Fyrir utan misjafnar áherslur í skattamálum, þar sem talsvert ber á milli, nefna menn helst hugsanlegan ágreining um skiptingu ráðuneyta. Einna helst er talið líklegt að ágreining- ur skapist um heilbrigðisráðu- neytið. Sem fyrr í stjórnarmynd- unarviðræðum flokkanna vill Framsóknarflokkur ekki afhenda Sjálfstæðisflokki það ráðuneyti. „Það er eðli- legt að félagshyggjuflokk- urinn í stjórnarsamstarf- inu fari með stærsta fé- lagshyggjuráðuneytið,“ sagði einn viðmælenda innan Framsóknarflokks- ins. Flokkurinn hefur ít- rekað lýst sig andsnúinn einkavæðingu í heilbrigð- ismálum. Sú staða er talin geta skapast að ef Fram- sókn fer fram á forsætis- ráðuneytið, sem líkur eru á, vilji Sjálfstæðisflokkur heilbrigðisráðuneytið í sinn hlut. Slíkt gæti skapað klemmu, að sögn heimildarmanna. Fulltrúar stjórnarand- stöðuflokkanna horfa á við- ræðurnar úr fjarlægð. „Við erum áhorfendur að þessu eins og málin standa og við virðum þær reglur að vera ekki að blanda okkur í stjórnarmyndunarviðræður annarra flokka á meðan þær standa yfir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Steingrímur segir aðrar ríkisstjórnir vel geta komið til greina ef þessar viðræð- ur gangi ekki. Til að mynda gæti samstarf Reykjavíkur- listaflokkanna vel gengið upp á landsvísu af hálfu Vinstri grænna. „Auðvitað er slík ríkisstjórn prýði- lega í kortunum,“ segir Steingrím- ur, „og mjög lógísk miðað við úrslit kosninganna.“ Hann segir alveg ljóst að Vinstri grænir myndu fagna því ef þeim byðist að ganga til viðræðna um myndun ríkisstjórnar yfir til vinstri. „Það ættu ekki að vera nein tíðindi að við séum tilbúin til slíks, því það var okkar baráttumál allan tímann að við vildum mynda vel- ferðarstjórn,“ segir Steingrímur. „Það gæti þess vegna gerst með Framsókn og Samfylkingu. Við myndum draga það samstarf til vinstri.“ Aðspurður sagðist Steingrímur ekki útiloka að slík stjórn yrði und- ir forsæti Halldórs Ásgrímssonar. gs@frettabladid.is TÓNLIST bls. 20 Fær lof- samlegan dóm ÍÞRÓTTIR bls. 44 Lakers í slæmum málum GEITUNGADROTTNING BÝR SÉR TIL BÚ Skordýrin eru frekar snemma á ferðinni í ár. Hollenska sjónvarpið: Þáttur um Hjálmar HOLLAND Hollenska sjónvarpið sýnir í kvöld þátt sem gerður er um mál Hjálmars Björnssonar, sem fannst látinn við árbakka í Rotterdam í Hollandi í júní á síð- asta ári eftir að hafa verið týndur í tvo daga. Fjölskylda Hjálmars hefur ekki viljað unað úrskurði hollenska réttarlæknisins að banamein hans hafi verið höfuð- áverkar sem hann hlaut eftir að hafa fallið af reiðhjóli sínu. ■ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Telur ríkisstjórn flokka R-lista koma vel til greina ef viðræð- ur stjórnarflokk- anna renna út í sandinn. M YN D /E R LI N G Ó LA FS SO N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.