Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 24 Leikhús 24 Myndlist 24 Bíó 28 Íþróttir 16 Sjónvarp 30 KVÖLDIÐ Í KVÖLD MYNDLIST Englaborgin tjóðruð FÓLK Sætir sigrar FÖSTUDAGUR 16. maí 2003 – 111. tölublað – 3. árgangur bls. 38bls. 24 TÓNLIST Draumur sem rættist bls. 25 EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn mun gefa út ársfjórðungsrit sitt, Pen- ingamál, í dag. Í ritinu verður ný verðbólguspá bankans birt. Hefð hefur skapast fyrir því að útgáfu- dagur ársfjórðungsrits bankans þjóni svipuðu hlutverki og dag- setning vaxtaákvörðunarfunda hjá erlendum seðlabönkum. Spurning- in er því hvort vextir verði lækk- aðir í dag. Verðbólguspá Seðlabankans TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit Ís- lands ætlar að flytja ABBA-lögin sívinsælu í glæsilegum búningi á tónleikum í Háskólabíói. Breskir söngvarar frá West End sjá um sönginn, stjórnandi er Martin Yates og íslensk hrynsveit kyndir undir. ABBA í Háskólabíói MÁLÞING Samráðshópur um að styrkja heilbrigðan lífsstíl barna og unglinga stendur fyrir málþingi um kynferðislegar tengingar í auglýs- ingum og ábyrgð fjölmiða. Mál- þingið verður haldið í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi og hefst klukkan 13. Kynferði og auglýsingar SAMRUNI Fyrirhugaður samruni Kaupþings og Búnaðarbankans hefur ekki skaðleg áhrif á sam- keppni á bankamarkaði. Þetta er niðurstaða Samkeppnisstofnunar eftir athugun hennar á áhrifum samrunans á ýmsa þætti banka- starfsemi. Samkeppnisráð kemst að þeirri niðurstöðu að þar sem takmörkuð skörun sé á starfsemi fyrirtækjanna og sterkir keppi- nautar á mörkuðum mæli ekkert gegn samruna þeirra. Í úrskurði Samkeppnisstofn- unar segir að þar sem Kaupþing hafi fyrst og fremst starfað sem fjárfestingabanki, með sérstaka áherslu á eignastýringu, en Bún- aðarbankinn starfi aðallega sem viðskiptabanki með alhliða fjár- málaþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir, verði áhrif samrunans á einstökum mörkuðum ekki svo mikil að ástæða sé til að aðhafast. Samruninn leiðir til samþjöpp- unar á nokkrum mörkuðum, verðbréfamiðlunum, verðbréfa- útboði, fjárvörslu og rekstri verðbréfasjóða. Samkeppni er þó tryggð þar sem sameinaður banki eigi áfram í samkeppni við tvo öfluga keppinauta þar sem Landsbankinn og Íslandsbanki eru. ■ STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Suðaustan 5-10 m/s og skýjað með köfl- um. Hiti 7 til 13 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Léttskýjað 11 Akureyri 3-8 Léttskýjað 11 Egilsstaðir 5-10 Léttskýjað 13 Vestmannaeyjar 8-13 Skýjað 11 ➜ ➜ ➜ ➜ + + Samkeppnisstofnun samþykkir áform Kaupþings og Búnaðarbanka: Samruninn flaug í gegn Davíð Oddsson hættir eftir tvö ár Í HJÓLREIÐATÚR MEÐ HUNDINN Fjöldi fólks nýtti góða veðrið í gær og fór í göngutúr eftir Ægisíðunni. Sumir notuðu tækifærið til að viðra hundinn sinn. Veðurstofan spáir suðaustan átt á höfuðborgarsvæðinu á morgun og allt að 13 stiga hita. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M STJÓRNARMYNDUN Formenn stjórn- arflokkanna munu ásáttir um að Davíð Oddsson haldi áfram sem forsætisráðherra í tvö ár og að þeim tíma liðnum taki Halldór Ás- grímsson við. Ekki er búist við andstöðu við þessa tilhögun innan flokkanna. Davíð Oddsson og Halldór Ás- grímsson funduðu í gær. Ekki er gert ráð fyrir að stjórnarsáttmáli og skipting ráðuneyta liggi fyrir fyrr en í næstu viku. Sjálfstæðismenn gera ráð fyrir að Davíð hætti í ríkisstjórn þegar Halldór tekur við. Það þarf ekki að þýða að hann hætti á Alþingi. Rætt hefur verið um endurskipulag ráðuneyta, jafnvel fækkun þeirra. Ólíklegt er að það verði gert sam- hliða stjórnarmynduninni. Við- mælendur nefna að það verði frek- ar gert á næsta ári, á 100 ára af- mæli heimastjórnarinnar. Skipting ráðuneyta milli flokka verður væntanlega svipuð og hún er nú. Helst er rætt um að Fram- sóknarflokkur fái menntamála- ráðuneyti og Sjálfstæðisflokkur heilbrigðisráðuneyti. Innan Fram- sóknarflokksins er andstaða við þau skipti. Minnt er á að stefna flokkanna í heilbrigðismálum er ólík þar sem framsóknarmenn vilja fara hægar í einkavæðingu en sjálfstæðismenn. Tómas Ingi Olrich er sá ráð- herra Sjálfstæðisflokks sem stendur tæpast. Heimildir segja hann ekki hafa staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar eftir að hann tók við af Birni Bjarnasyni. Halldór Ásgrímsson var á miklum þeytingi í gær. Þegar Fréttablaðið ræddi við hann seinnipartinn sagði hann ekki búið að ganga frá neinum málaflokk- um. „Þetta gengur allt sinn eðli- lega gang,“ sagði Halldór og ítrek- aði fyrri ummæli sín um að hann ætti ekki von á því að stjórnar- myndun kláraðist fyrr en í næstu viku. Halldór sagði engar ákvarð- anir teknar um skiptingu ráðu- neyta. „Það er ekkert farið að ræða þau mál.“ ■ Heimildir herma að samkomulag sé um að Halldór Ásgrímsson taki við sem forsætisráðherra 2005, á miðju kjörtímabili. Ólíklegt að ráðist verði í uppstokkun ráðuneyta áður en stjórnarsam- starfið verður endurnýjað. Ekki búist við miklum breytingum. DAVÍÐ ODDSSON Sjálfstæðismenn gera ráð fyrir að Davíð hætti í ríkisstjórn þegar Halldór tekur við. Forsetabrúðkaup: Giftu sig á afmælinu BESSASTAÐIR Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff gengu í hjónaband á Bessastöðum í fyrradag. Guð- mundur Sophusson, sýslumaður í Hafnarfirði, gaf þau saman að lokinni afmælishátíð sem haldin var til heiðurs forsetanum sextug- um þennan sama dag. Dætur forsetans og nánustu skyldmenni voru viðstödd lát- lausa athöfnina sem fór fram í Bessastaðastofu en að henni lok- inni snæddu brúðhjónin og gestir þeirra kvöldverð. ■ FORSVARSMENN NÝS BANKA Allt útlit er fyrir að Kaupþing og Búnaðar- bankinn sameinist 27. maí næst komandi. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON OG DORRIT MOUSSAIEFF Þau opinberuðu trúlofun sína árið 2000 og voru gefin saman af sýslumanni á Bessastöðum að kvöldi 14. maí 2003. M YN D /G U N N AR G . V IG FÚ SS O N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.