Fréttablaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 22
22 12. janúar 2004 MÁNUDAGUR ANNI FRIESINGER Þjóðverjinn Anni Friesinger varð Evrópu- meistari í skautahlaupi í gær. Skautahlaup Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar kvenna: Toppliðin komust auðveldlega áfram KÖRFUBOLTI Topplið 1. deildar kvenna í körfubolta, ÍS og Keflavík, komust um helgina auðveldlega í undanúrslit bikar- keppni KKÍ&Lýsingar en auk þeirra höfðu lið KR og Hauka tryggt sér sæti í 4 liða úrslitun- um í síðustu viku. Haukar, sem eru í 2. deild, slógu örugglega út 1. deildarlið Njarðvíkur en hin þrjú liðin í undanúrslitunum eru í þremur efstu sætunum í 1. deildinni. ÍS vann Tindastól, 96- 24, á heimavelli sínum. Alda Leif Jónsdóttir var með 23 stig og 8 stoðsendingar á aðeins 19 mínútum, Hafdís Helgadóttir skoraði 15 stig, tók 7 fráköst og varði 4 skot og Lovísa Guð- mundsdóttir var með 10 stig og 9 fráköst. Hjá Tindastól skoraði Hjördís Óskarsdóttir mest, 10 stig. Hin 15 ára gamla Bryndís Guðmundsdóttir var stigahæst í stórsigri Keflavíkur á Þór en Keflavík vann leik liðanna á Ak- ureyri með 60 stiga mun, 109-49. Bryndís skoraði 20 stig og þær Birna Valgarðsdóttir og Marín Rós Karlsdóttir skoruðu 16 stig hvor. Þá var María Ben Erlings- dóttir með 13 stig og Halldór Andrésdóttir gerði 12. Hjá Þór skoraði Fjóla Eiríksdóttir 11 stig og Bára Dröfn Kristinsdótt- ir var með 10. Það vakti athygli að 15 ára stelpur skoruðu 41 stig fyrir Keflavíkurliðið í leiknum, því Bryndís (20), María Ben (13) og Bára Bragadóttir (8) voru all- ar atkvæðamiklar í leiknum. ■ Finnski körfuboltinn: Vassell rekinn en ráðinn aftur KÖRFUBOLTI Kanadíski körfubolta- maðurinn Keith Vassell, sem hef- ur íslenskt ríkisfang og lék hér á landi í nokkur ár með KR og Hamri, leikur þennan vetur í finnsku úrvalsdeildinni. Vassell, sem fékk íslenskt rískisfang síð- asta vor, hóf tímabilið með KTP Kotka en þótti ekki standa undir væntingum og var látinn fara nú um áramótinn. Vasell lék 14 leiki en var aðeins tvisvar sinnum í byrjunarliðinu en hann var með 9,1 stig og 4,3 fráköst á 18,8 mín- útum að meðaltali í leik en KTP- liðið er í harðri toppbaráttunni í Finnlandi (2. sæti sem stendur) og varð á dögunum finnskur bikar- meistari. Vassell skoraði 6 stig og tók 4 fráköst á 18 mínútum í úr- slitaleiknum en KTP skipti út tveimur erlendum leikmönnum fyrir nýja árið. Vassell var þó ekki lengi að finna sér annað lið því hann samdi í kjöl- farið við Tarmo, sem er í 10. sæti í þessarri 14 liða úrvalsdeild í Finnlandi. Vassell er ekki löglegur strax en hann er einn af þremur nýjum erlend- um leikmönnum sem gengu til liðs við Tarmo um áramótin og það er greinilegt að mikið er um breytingar á erlend- um leikmönnum í finnsku deildinni líkt og í þeirri íslensku. ■ Pillupökkunarvélar til sölu Til sölu talningavél, lok-ásetningavél, miðaásetningavél og mótttökuborð. Vélarnar eru í góðu standi. Mjög góður staðgreiðsluafsláttur eða lánamöguleikar. Til sýnis í samráði við Jón í síma 588 4455. Til sölu BRYNDÍS SKORAÐI 20 STIG Hin 15 ára gamla Bryndís Guð- mundsdóttir skoraði í fyrsta sinn 20 stig fyrir meistaraflokk Keflavíkur. KEITH VASSELL Byrjaði aðeins inn á í 2 af 14 leikjum með KTP og var rek- inn um áramótin.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.