Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Föstudagur 2. júni 1972. ÞÓ—Reykjavik. Sjómaður á Ásgeiri Magnússyni II GK—59 slasaðist illa á hendi , er skipið var á humarveiðum á Breiðamerkurdýpi. Skipstjórinn á Asgeiri Magnússyni hafði strax samband við Slysavarnafélagið og Land- helgisgæzluna. Höfðu þessir aðilar siöan samband við Varnar- liðið og báðu um, að þyrla yrði send eftir manninum. Fór björgunarþyrlan af stað frá Keflavikurvelli rétt fyrir kl- 13 i gær, og var hún komin til Reykjavikur með hinn slasaða um kl. 16. Hafði ferðin gengið i alla staði mjög vel, nema hvað það tók þyrluna dálitinn tima að finna bátinn. Maðurinn mun vera illa slasaður á hendinni, en hann klemmdist undir vir, þegar hann var að vinna á dekkinu. KJ — Reykjavik. — Feröalög stuðla aö friði, sagði þýzki sendiherrann hér á landi Karl Rowold, er hann kynnti nokkra þýzka ferða- málamenn, sem voru hér i heimsókn i lok siðustu viku. Ferðamálamennirnir voru frá þýzku rikisferðaskrifstofunni og þýzka flugfélaginu Luft- hansa. Forstjóri þýzku rikisferða- skrifstofunnar, Spazier sagði við þetta tækifæri, að íslenzkir ferðalangar færu aöallega til Hamborgar og um Rinar- dalinn, þegar þeir kæmu til Þýzkalands. Kuttner frá þýzku rikisferðaskrifstofunni sagði, aö á s.l. ári hefði fjöldi islenzkra feröamanna I Þýzkalandi aukizt mjög, eða um 75% frá þvi árið áöur, og er það mesta aukning ferða- manna í Þýzkalandi frá einu landi. Alls komu fimm þúsund islenzkir ferðamenn til Þýzka lands á árinu, og voru i 12 .* þúsund gistinætur i landinu — *. langmest i Hamborg. Til íslands komu á sl. ári 6 —- 7 *. þúsund Þjóðverjar. ’■ Olympiuleikarnir fara fram i Mlinchen i sumar, sem *. kunnugt er, og hefur verið .J skipulögð sérstök „Oiympiu- J. leið” frá Kiel til Munchen .* fyrir ferðamenn, sem vilja sjá J. eitthvað annað en Mtlnchen i «* heimsókn sinni á leikana. Þá *. tóku Þjóðverjarnir það sér- .J staklega fram, að þótt mikiö j. yrði um að vera i Miinchen, þá «" væri nóg pláss fyrir aðra *■ ferðamenn i Þýzkalandi i •* sumar. *■ Hingað sækja Þjóðverjar að •* komast i snertingu við hina *• ósnertu náttúru, og gildir það ■" jafnt um þá, sem ekki eru vanir „lúxus” og svo hina, ■’ sem hafa efni á sliku, en kæra *■ sig ekki um hann. ■* Norðfirðingar: Bjóða gamla fólkinu í skemmtisigl ingu á sjómannadaginn ÞÓ-Reykjavík. Að vanda verður dagskrá sjó- mannadagsins mjög fjölbreytt á Neskaupstað. Dagskráin hefst á laugardagskvöld með þvi, að efnt veröur til keppni i kappróðri, og i honum taka þátt 8 sveitir. Á sunnudagsmorgun kl. 9 verður hópsigling um Norðfjörð, og hug- myndin er einnig að sigla i Hellis- fjörö og Viðfjörð. Taka flestar sjófærar fleytur þátt i þessari siglingu. I þessa hópsiglingu hef- ur sjómannadagsráð Neskaup- staðar boðið öllu eldra fólki bæjarins, og er ekki að efa, að það notfæri sér þessa sjóferð, alla- vega karlmennirnir. Að hópsiglingunni lokinni fer fram björgunarsýning. En kl. 14 verður sjómannamessa i Norð- fjarðarkirkju, og um leið verður lagður blómsveigur á minnis- varða óþekkta sjómannsins. Á eftir messu fer fram skemmtun við sundlaugina, þar verða afhent verðlaun fyrir kappróður, Ragn- ar Sigurðsson flytur ræöu, og sið- an fer fram sundkeppni og ýmsir leikir. A milli atriða leikur Lúðr- asveit Neskaupstaðar. Þegar at- höfninni við sundlaugina lýkur, fer fram knattspyrnuleikur á iþróttavellinum milli sjómanna og landmanna. Um kvöldið fer svo fram dans- leikur i félagsheimilinu Egilsbúö. Saumaði skautbúning og 50 muni aðra í handavinnu G.ó.-Sauðárkróki Húsmæðraskóla kirkjunnar að Löngumýri i Skagafirði var slitið s.l. sunnudag. Fjórtán stúlkur stunduðu nám við skólann i vetur, en skólastjóri var ungfrú Hólm- friður Pétursdóttir, sem lætur nú af skólastjórn eftir fimm ára far- sælt starf við skólann. Sýning á handavinnu nemenda var haldin að Löngumýri á laugardaginn. Kom þá margt gesta til að skoða sýninguna, sem vakti athygli fyrir tvennt: fallega muni og þau afköst, sem nemend- ur hafa sýntmeð þvi að koma öllu þvi i verk, sem þarna var að sjá, á aðeins einum vetri. Langflesta muni á sýningunni átti Anna F. Emilsdóttir, Stekkjarholti, Geiradal i Barða strandarsýslu, en munir hannar voru 50-60 talsins. Meðal þeirra var forkunnarfagur skautbúning- ur, sem hún hafði gert. Fyrir utan að vera hæst i verklegum geinum náði hún einnig hæsta prófi i þvi bóklega, ágætiseinkunn 9,00. Það eru nú liðin tuttugu og átta ár siðan kvennskólinn að Löngu- mýri var stofnaður. Skólann stofnaði og átti, sem kunnugt er, Ingibjörg Jóhannsdóttir, sem ásamt Björ^u Jóhannesdóttur vann þarna mikið hugsjónastarf, sem héraðsbúar og nemendur eru i þakkarskuld við. Árið 1962 gaf Ingibjörg þjóðkirkjunni skólann, og hefur hann verið rekinn á hennar vegum siðan. Þess má geta, að frá nýári stunduðu fjórir skiptinemar nám við skólann. Einn var frá Hollandi og þrir frá Bandarikjunum. Björgunarþyrla sótti slasaðan sjó mann austur á Breiðamerkurdýpi Frá fundi þýzkra og islenzkra fcrðamálamanna og blaðamanna, í þýzka sendiráðinu. ( Timamynd Gunnar ). Fjórðungsmót sunnlenzkra hestamanna á Rangárbökkum - verður 30. júní til 2. júlí Karl Kvaran sýnir hjá ASÍ á Listahátíð Eins og kunnugt er, verður fjórðungsmót sunnlenzkra hesta; manna haldið á Rangárbökkum i sumar, 30 júni — 2. júli. Meðal annars þess vegna gengst Hesta- mannafélagið Geysir fyrir um- fangsmiklum framkvæmdum á Rangárbökkum við Hellu. Búið er að flytja til jaröveg á mótsstaðn- um, og er kappreiðavöllurinn þá orðinn nokkurn veginn láréttur. Hlaupabrautir verða siðan lagðar vikri, sem verður pressaður nið- ur. Brautin er hringlaga, og I hólmann inni i brautinni verður sáð grasi. Þar sem þetta er all- fjárfrek framkvæmd ákváðu félagarnir á aðalfundi i vetur, að hver félagi skyldi greiða auka- gjald til félagsins þetta ár að upp- hæð kr. eitt þúsund, sem ganga beint til framkvæmdanna. Framkvæmdir hófust i marz i vetur, og hafa þær gengið mjög vel. Aðeins er eftir að leggja vik- urinn á brautirnar og girða þær af. Eysteinn Einarsson vegaverk- stjóri hefur annazt meirihluta þessara framkvæmda fyrir félag- ið. Félagið á og rekur tamninga- stöð ásamt tamningagerði á Hellu. Stöðin tók til starfa um áramót i vetur, og lýkur starf- seminni nú um mánaöamótin. Aðsókn hefur verið mikil, og meiri en hægt hefur verið að anna. Alls munu hafa komið i stööina um 100 hross, þar af átta hross, sem voru i afkvæmaprófun fyrir Hrossaræktarsamband Suðurlands. A stöðinni hafa starf- að þrir menn. Tamningastjóri er Gisli Guðmundsson Hellu. Þá hef- ur komið til tals að reka tamningastöð i sumar, ef þátt- taka verður nægileg. Félagið ákvað nýlega að reisa tamninga- gerði, og hefur þvi verið val NTB—Prag Leiðtogi kommúnistaflokks Tékkóslóvakiu, Gustav Husak, sagði i viðtali við Rude Pravo, málgagn flokksins, að timabært væri,að samskipti Vestur-Þýzka- lands og Tékkóslóvakiu kæmust i eðlilegt horf. Ekkert stjórnmálalegt sam- band er nú á milli rikjanna. 1 við- talinu við Rude Pravo sagði Husak, að griðarsáttmálar vestur-þýzku stjórnarinnar við Pólland og Sovétrikin væru stórt skref i áttina til þess að draga úr mn staður að Hellu. Þá er ákveðið að hafa reiðskóla bæði á Hellu og Hvolsvelli um miðjan júni. Verður hann fyrir börn og unglinga, eins og undanfarin tvö ár, en einnig verður fullorðnum leiðbeint, ef þátttaka verður nægileg. Kennari verður Sigurður Haraldsson,Kirkjubæ. Nýlega var ákveðið að félagið heldi almennt hestamót laugardaginn 29. júli. Verður þar góðhestasýning að venju, en i kappreiðum verður megináherzla lögð á hindrunar- hlaup, vegna þeirra miklu mögu- leika, sem hringvöllurinn skapar. spennu i Evrópu. — Frá okkar hálfu er ekkerþsem stendur i vegi fyrir samskiptum rikjanna, sagði flokksleiðtoginn. — Við erum reiðubúnir að taka upp viðræður við Vestur-Þjoðverja um þau mái, sem varða rikin sameiginlega. Husak sagði ennfremur, að eðli- legtsamband rikjanna gæti orðið samfara endanlegri staðfestingu Múnchenarsamkomulagsins. Husak lýsti yfir ánægju sinni með viðræður Nixons og Sovéskra ráðamanna i Moskvu. SJ—Reykjavik Listasafn Alþýðusambands Islands efnir til sýningar á 13 nýjum „gouache” málverkum eftir Karl Kvaran i tengslum við Listahátið i Reykjavik. Það er skammt stórra högga i milli hjá Karli Kvaran um þessar mundir, en hann hafði stóra sýningu i Bogasalnum i nóvember i haust. Það er sjaldgæft, að málarar noti eins mikið „gouache” liti og Karl, en hann hefur málað með þeim i 20 ár. Myndirnar á sýn- ingunni eru til sölu. Sýning Karls Kvaran i sal ASÍ, Laugavegi 18, verður opin dag- lega meðan Listahátið stendur, 4.-15. júni kl. 2-10 siðdegis. Nýrri lýsingu hefur verið komið fyrir i sýningarsalnum. Karl Kvaran á sýningu sinni Laugavegi 18 (Timamynd Gunnar) HUSAK VILL STJÓRN- MÁLASAMBAND VIÐ BONN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.