Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 15
Föstudagur 2. júni 1972.
TÍMINN
15
frá Paris annað kvöld, og annað
til mömmu. Herbergisþernan lof-
aði mér þvi að póstleggja þau i
fyrramálið. Þegar mamma fær
bréfið er ég farin frá Englandi.
Óskaðu mér nú góðrar ferðar,
Kay.
Það sýndi sigaðmig vanhagaöi
ekki um að verða auglýst al-
menningi, en á annan hátt en við
mátti búast. Daglega vann ég i
húsinu minu til hádegis. Ég var
ákveðin i þvi að gera allt sjálf. Að
visu hafði ég gamlan mann i þjón-
ustu minni, sem var mér alveg ó-
missandi. Hann tók hurðir af hjör
um, fjarlægði veggfóður og
gamla málningu, kittaði og
sparslaði og undirbjó allt undir
pensil og málningarprufur.
Einn morguninn kom blaða-
kona til min, sem hafði heyrt um
húsið mitt og að ég hefði ákveðið
að koma þvi i lag af eigin ramm-
leik. Auðvitað stóð Max á bak við
þetta. Þessi blaðakona starfaði
fyrir þekkt kvennablað, og hún
fullyrti, að lesendurnir myndu
hafa sérlega gaman af að lesa um
mig og húsið mitt.
Gremja min yfir þvi að vera
trufluð, sljákkaði nokkuð þegar
mér varð hugsað til þess, hve
ánægður Max yrði með blaðaviö-
tal. Kynning — einmitt það sem
hann vildi.
Ég sagði.að ég væri alveg á
byrjunarstigi með það, sem ég
ætlaði mér að gera fyrir húsið, en
við urðum ásáttar um,að hún tæki
nokkrar myndir núna, og kæmi
svo aftur seinna og tæki nýjar til
samanburðar.
Hún tók myndir af mér,þar sem
ég var að blanda málningu og
þar sem ég stóð uppi i stiga og
málaði svefnhergergisgluggann
minn, og i ýmsum öðsum stell-
ingum.
— Og svo að lokum nokkrar
myndir á tröppunum, sagði
blaðakonan, og þar vorum viö
staddar þegar bill Drakes stanz-
aði fyrir utan húsið.
— Hvað er um að vera — sam-
kvæmi? Og ég ekki boðinn. Það er
málning á nefinu á þér elskan,
sagði hanrf og fór að nudda hana
af mér.
Þetta varð vist glæsileg mynd.
Drake, með aðra hendina utanum
mig, en þurrkaði málninguna af
mér með hinni, meðan hinn frægi
vangi hans blasti við myndavél-
inni. En ég hugsaði svo ekkert
meira um þetta þá. Satt að segja
gleymdi ég öllu sem fram fór.
Þaö var eiginlega ekki fyrr en
mér barst eintak af heftinu með
mynd af mér og Drake á forsið-
unni, að ég mundi eftir blaðakon-
unni. Miði frá henni fylgdi heft-
inu: — ,,Er þetta ekki lifleg grein
— ég hafði ekki tækifæri til að
senda yður próförk, en ég vona að
yrður liki það sem ég hef skrifað,
og herra Drake hefur fullvissað
mig um að svo sé.
Já, myndirnar voru góðar,
þrátt fyrir það,að ég var i göml-
um slopp og hafði skýlu á höfðinu.
Svo fór ég að lesa sjálfa greinina,
og eftir þvi sem ég las meira varð
ég reiðari. Nafn Drakes var tengt
minu gegnum alla greinina, og
ekki varð betur séð en að við
værum saman um þessi húsa-
kaup. „Vinaminni” las ég, ,,mun
bráðum verða fagurt heimili
þeirra Drake Mercers, glæsileg-
asta kvikmyndaleikara Ameríku,
og Kay Lauriston, óperettu-
stjörnunni frá Palace. Það var
ymprað á brúðkaupi i
april.....”
Mikið meira var þarna i sama
stil, og það var alveg greinilegt,að
Drake hafði átt samtal við þessa
manneskju, og að dylgjur hans
hefðu nægt til þess að þessi grein
var skrifuð á þennan máta.
Fyrirhugað jólahald okkar á
hinni gömlu krá hafði ekki
gleymzt. Ekki var fullyrt, að við
værum trúlofuð — það var alls
ekki nauðsynlegt.
Ég var alveg fjúkandi reið, ekki
svo mjög við blaðakonuna, heldur
Drake. Hann hafði tekið alltof
margt sem gefið mál og þurfti á
ráðningu að halda Égátti að vera
með honum um kvöldið, en ég
fékk Elsu, búningsstúlkuna mina
til þess að hringja á hótelið hans
og tilkynna forföll. Eftir að teppið
féll gaf ég mér ekki einu sinni
tima til að fjarlægja andlitsfarð-
ann, en tók mér leigubil heim til
min. Elsa lofaði hátiðlega að
segja engum hvað orðið hefði af
mér.
Ég borðaöi kvöldmatinn minn
framan við arininn alein, og ég
róaðist smátt og smátt. Ég spurði
mig, hvers vegna ég hefði orðið
svona fokreiö við Drake. Var það
fyrir það aö ég óttaðist að Chris
mundi reka augun i greinina? Ég
hafði óneitanlega látið mér detta
það i hug að giftast Drake, en nú
fann ég fyrir vist að það.mundi ég
aldrei gera. Ég fann,að annað
hvort yrði þaö Chris eöa enginn.
Þá var einlifið betra þrátt fyrir
allt.
Dyrabjöllunni var hringt. Ég
var treg til að opna, hélt að það
kynni að vera Drake. En aftur
var hringt, og ég opnaði.
Það var Chris, sem stóö á
tröppunum. Hann gekk inn og
lokaði huröinni á eftir sér. 1 hendi
sér hafði hann samanbögglað
hefti, sem ég þekkti alltof vel.
Hann fleygði þvi á borðið við
dyrnar.
— Ég sá þessa grein um þig og
Drake Mercer, Kay. Fleur sýndi
mér hana i morgun. Ég mátti til
meö að koma. . . . er þetta satt?
Ég gat aðeins horft á hann og
hrist höfuðið, og armur hans vafði
mig að sér og munnur við munn.
Við umvöfðum hvort annað þegj-
andi og gengum svo inn i stofuna.
Chris hélt mér ofurlitið frá sér
og horfði djúpt i augu mér.
— Segöu mér nánar frá þessu,
Kay.
Ég sagði honumihvernig þetta
hefði byrjað, frá myndatökunni
og svo talaði ég eitthvað um
greinina sjálfa. Sagði honum m.a.
að ég hefði yfirvegað að giftast
Drake.
— Og hvaö er svo um þaö nú?
— Nú veit ég hversu fráleitt
það var,að mér skyldi eitt augna-
blik detta slikt i hug.
Hann tók hönd mina og bar
hana að kinn sinni og kyssti hana.
—Ég sakna þin svo ákaflega—
sakna þin alltaf.
— Ég sakna þin lika, elskan.
Tárunum gat ég ekki haldið til
baka, og Chris tók mig i faðm sinn
og lúllaði mér eins og að ég væri
litið barn.
— Kay, við getum ekki haldið
svona áfram til eilifðar. Einhvern
endi verður þetta að hafa.
— En hvað um Fleur?
— Við gerum ekkert á hlut
Fleur þó við sjáumst stöku sinn-
um, Kay. Bráðum fæðist barnið
og þá getur allt breytzt.
— Nei, Chris. Þá verður það
barnið, sem þarf einnig að taka
tillit til.
Hann gekk fram og aftur um
gólfið og sló með krepptum hnefa
i lófa sinn. Svo gekk hann til min
og settist við hliðina á mér.
— Við getum þó starfað saman
Kay?
Ég snéri mér frá honum. Hann
tók um hönd mina.
— Ég samþykki alls ekki að-
skilnað okkar sem endanlegan.
— En elskan, hvernig. . . hann
lagði hendina á munninn á mér.
— Ég samþykki aðskilnaö okk-
ar aldrei, Kay. Það virðist
kannski siðlaust en. . . Fleur
þarfnast min ekki. Blaney-fjöl-
skyldan er henni nóg. Og þegar
barnið er fætt þarfnast hún min
minna en nokkru sinni. Siminn
hringdi. Chris tók hann upp og
rétti mér. Eins og i draumi hlust-
aði ég á rödd Maeves.
— Kay, fyrirgefðu að ég hringi
svona seint, en það er áriðandi.
Það er út af Fleur.
Kaldur straumur fór um bakið
á mér. — Hvað hefur nú komið
fyrir?
— Þaðerbarnið. . . þaö fæddist
andvana. Ég hef verið að reyna
að ná i Chris, en hann er ekki i
ibúðinni, og nokkuð siðan hann
fór úr sjónvarpssalnum. Mér datt
aðeins i hug að þú mundir kannski
þekkja einhvern klúbb eða þá ein-
hvern annan stað, sem hugsast
gæti að hann kæmi við á.
Ég heyrði mina eigin rödd eins
og úr fjarska. — Ég skal finna
hann fyrir þig. Ég lagði simann á
og snéri mér að Chris. Ég held að
hann hafi séð á mér hvað það var,
sem ég hafði að segja honum.
— Það er beðið eftir þér á Fair-
field, sagði ég. — Ég held að þú
munir komast að þeirri niður-
stöðú,að Fleur þarfnast þin ákaf-
lega mikið, einmitt núna.
10. kapítuli.
Fleur var sú eina i Blaney-fjöl-
skyldunni, sem ekki var niður-
brotinaf sorg, vegna barnsins. Ég
heimsótti hana á fæöingardeild-
1120.
Lárétt
1) Sort.- 6) Lukka.- 8) Eyöa,-
10) Dönsk eyja,- 12) Frétta-
stofa.- 13) Keyri,- 14)
Óhreinka.- 16) Keyrðu.- 17)
Landnámsmaður,- 19)
Óvirða
Lóðrétt
2) Væla.- 3) Lita.- 4) Kona.-
5) Mjólkurmatur,- 7) Ilát,- 9)
Titt.- 11) Óþétt,- 15) Veik,-
16) Veinin.- 18) Komast.-
Ráðning á gátu no. 1119
Lárétt
1) Kames.- 6) Pár.- 8) Uni.-
10) Und,-12) Ná,- 13) ID,- 14)
Nit,- 16) Iðu.- 17) Inn,- 19)
Snúna.-
Lóðrétt
2) Api.- 3) Má,- 4) Eru,- 5)
Munns.- 7) Oddur,- 9) Nái.-
11) Nið,- 15) Tin,- 16) Inn,-
18) Nú,-
HVELL
2.júni
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar
12.50 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 S i ð d e g i s s a g a n :
„Flakkarinn og trúboðinn”
eftir Somerset Maugham.
Jón Aðils leikari les (7).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 M iðdegistónleikar:
Sönglög.
16.15 Veðurfregnir.
17.00 Frettir. Tónleikar.
17.30 Úr fcrðabók Þorvalds
Thoroddsens. Kristján
Arnason les (7)
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.30 Fréttaspegill
19.45 Bókmenntagetraun.
Hjörtur Pálsson hleypir
nýjum útvarpsþætti af
stokkunum.
20.00 Tónlist eftir Skrjabln.
Guðmundur Jónsson pianó-
leikari kynnir.
20.30 Tækni og visindi.
Margrét Guðnadóttir
prófessor talar um veiru-
rannsóknir.
20.50 Frá Mozarthátið i Salz-
burg: Tvö tónverk eftir
Moz.art.
21.30 Utvarpssagan
Hamingjuskipti eftir Stein-
ar Sigurjónsson. Höfundur
les. Sögulok
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Gömul saga"
eftir Kristinu Sigfúsdóttur.
Ólöf Jónsdóttir les. (10).
22.35 Danslög i 300 ár, — fyrsti
þáttur Jón Gröndal kynnir.
23.05 l.étt lög frá ýmsum
liindum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur 2. júni
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Itússnesk tónlist.
Sinfóniuhljómsveit sænska
útvarpsins leikur Klassisku
sinfóniuna eftir Sergei
Prókoffieff og kafla úr Igor
fursta eftir Alexander
Bóródin. Stjórnandi er S-
Variso og kynnir hann jafn-
framt verkin og tildrög
þeirra. (Nordvision —
Sænska sjónvarpiö) Þýð-
andi Björn Matthiasson.
21.05 Ironside Bandriskur
sakamálamyndaflokkur.
Ófreskjan i turninum. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
21.55 Sæþörungar. Akuryrkja
i sjó. Kanadisk fræðslu-
mynd um sjávargróöur og
nýtingu hans. Þýðandi Sig-
urður Hallsson. Þulur Ellert
Sigurbjörnsson.
22.15 Erlend málefni.
Umsjónarmaður Sonja
Diego.
22.45 Dagskrárlok.
ANTIK HÚSGÖGN
Nýkomið:
Útskornir stólar
boröstofustólar,
ruggustólar,
stakir stólar,
sófaborö, spilaborð,
veggklukkur, standklukkur,
lampar, skápar,
skrifborð, kommóður,
barómet, kertastjakar,
og margt fleira gamalla
muna.
Vinsamlega litið inn.
ANTIK HÚSGÖGN
Vesturgötu 3. Simi 25160.