Tíminn - 30.06.1972, Blaðsíða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
144. tölublað — Föstudagur 30. júní 1972 — 56. árgangur.
kæli-
skápar
JO/xjóbbtoLhJt^Éía/v. A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
v.
✓
i dag hefst á Rangárbökkum viö Hellu. Fjóröungsmót sunnlenzkra hestamanna, en undanfarna daga hafa hestamenn víöa aö, veriö á leiö-
inni á mótsstaðinn á fákum sinum. Hestamenn úr Mosfellssveit fóru meö um 80 hesta í hóp austur, og var myndin tekin þegar þeir voru á leiöinni
mcðfram Hafravatni. A mótinu á Ragnárbökkum veröur margt fallegra gæöinga og góöra kappreiðahesta, en nú veröur í fyrsta sinn keppt i 2 km
hlaupi, og veröa 1. verölaun i þessu hlaupi og 250 metra skeiöi, 30 þúsund krónur.
Tilraun til að
græða svöðusár
landsins
,,Þaö grær áöur en þú giftir
þig", er stundum sagt, er
menn fá lítils háttar ákomur.
Þaö er eöli lfkamans, aö hann
bætir þess konar mein, og séu
sárin mikil, er læknis leitaö.
En landiö sjálft er líka viöa
sært svööusárum, sem
haldast illa viö og grafa um
sig, nema tii komi sú læknis-
I hjálp, sem þar á viö.
Allir, sem fariö hafa um
landiö, kannast viö rofa-
böröin, sums staBar
mannhæöarhá leifar þykkrar
gróöutorfu, sem fénaöur
nuddar sér upp viö og vindar
sverfa, unz allt er fokið á burt,
og eftir er örfoka land.
Jarðýta og flugvél
að verki
Um þessar mundir, er Páll
Sveinsson sandgræðslustjóri i
Gunnarsholti, aö hefja nýjar
aðgerðir til þess aö stööva
þess konar uppblástur i
ýmsum sveitum á Suöurlandi.
Hefur hann fengiö lagvirkan
mann með litla jaröýtu,
Bjarna Þorsteinsson i
Guttormshaga, til þess aö
rista jaöra rofbakkanna, án
þess aö bylta grasrótinni, og
Framhald á bls. 8.
Hjón með tvö börn
í týndri flugvél
Um klukkan hálf ellefu i
gærmorgun lagði dönsk
tveggja hreyfla flugvél af stað
frá Færeyjum og var ferðinni
heitið til Islands, en vélin kom
ekki fram á tilsettum tima og
var þá þegar hafin leit að
henni á sjó og úr lofti.
Flugvélin er af gerðinni
Piper Apace, og um borð eru
færeysk hjón með tvö börn.
Vélin ber einkennisstafina
OY-ABW, og tók flugmaðurinn
hana á leigu i Danmörku.
Flugmaðurinn lagði upp frá
flugvellinum á Vogey kl. 10,22
og gerði ráð fyrir að lenda kl.
14.07, en hann hafði benzin til
rúmlega sex stunda flugs.
Flugmaðurinn hafði samband
við Færeyjar, þegar hann var
kominn um 100 milur á haf út,
en loftlinan á milli Voga og
Fagurhólsmýrar er um 280
milur.
Strax og kom i ljós, að flug-
maðurinn hafði ekki samband
við flugstjórnina á Reykja-
vikurflugvelli á eölilegum
tima, var farið að grennslast
um vélina, og leit skipulögð
áður en vélin átti að vera búin
með benzinið
Flugvélar frá kanadiska
flughernum, varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli,
Landhelgisgæzlunni, og tvær
frá Elíeser Jónssyni hófu leit
og leituðu fyrst á fluglinu
vélarinnar, og 30 milur út frá
henni til beggja handa. Þá fór
skip frá Færeyjum af stað og
annað frá Islandi. Sömuleiðis
var björgunarsveitum hér á
landi gert aðvart, og voru þær
tilbúnar að fara i leit, ef þörf
væri talin á, hér á landi.
UM 30 STÖÐVAR VILJA
FÁ LANDHELGISMYNDINA
KJ—Reykjavík
Lokiö er nú að mestu við kvik-
myndun i sambandi við sjón-
varpskvikmynd, sem rikisstjóm-
in er að láta að gera um land-
helgismálið. Fjölmörgum sjón-
varpsstöðvum um allan heim var
boðin þessi mynd til sýningar, og
hafa nú þegar borizt 20-30 jákvæö
svör, frá þeim, sem vilja fá
myndina til sýningar.
Mynd þessi verður 10-20
minútna löng, og á að skýra mál-
stað tslendinga i landhelgismál-
inu. Eiður Guðnason sjónvarps-
fréttamaður hefur umsjón meö
gerð myndarinnar, Sigurður
Sverrir Pálsson hefur annast um
töku myndarinnar, en fram-
kvæmdin að öðru leyti er i hönd-
um Hannesar Jónssonar blaða-
fulltrúa rikisstjórnarinnar.
FISCHER GETUR FRESTAÐ
EINVÍGINU UM VIKU
- kom hann í morgun?
ÓV—Reykjavik
Þegar blaðið fór i prentun i
gærkvöldi, var enn allsendis óvist
hvort Robert Fischer kæmi til
landsins. Fred Cramer, fulltrúi
Fischers, dagði i stuttu viðtali við
fréttamann Timans á Loftleiða-
hótelinu i gærkveldi, að sjálfur
hefði hann ekki hugmynd um
hvort Fischer kæmi eða ekki. Þó
mátti skilja á Cramer, að hann
teldi það liklegra.
Fjórar Loftleiðavélar komu frá
New York i nótt og morgun.
Klukkan 0500 kom ein, kl. 0700
komu tvær og nú klukkan 0800
kom ein. Liklegast hefur Fischer
komið með þeirri fyrstu — ef
hann hefur þá komið.
Hafi hann ekki komiö i morgun,
kemur hann örugglega ekki fyrr
en á sunnudagsmorgun. Vegna
trúarskoðana sinna hreyfir
Fischer sig ekki úr húsi frá þvi
um miðnætti aðfaranótt Laugar-
dags og þangaö til 24 timum stið-
ar. Komi Fischer ekki á sunnu-
dag, getur hann frestað byrjun
einvigisins þrisvar sinnum,
Framhald á hls 8.
Fréttamannahópurinn, eitthvaöyfir fjörutiu manns blður við eina Loftleiöaflugvélina á Keflavíkurflug-
velli i gærmorgun — en án árangurs. Kannski verður Fischer kominn til landsins þegar lesendur sjá
þessa mynd. (Tímamynd G.E.)