Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 56
13. mars 204 LAUGARDAGUR Leikmenn Leicester: Komnir heim FÓTBOLTI Þrír leikmenn enska úr- valsdeildarliðsins Leicester sem hafa verið ákærðir fyrir kyn- ferðislegt ofbeldi eru komnir heim til Englands frá Spáni. Þeir Paul Dickov, Frank Sinclair og Keith Gillespie voru látnir lausir gegn tryggingu eftir að hafa dúsað í viku í Sangonera- fangelsinu. Verði þeir fundnir sekir um athæfið eiga þeir yfir höfði sér allt að 14 ára fangelsi. Þeir hafa allir neitað ásökunun- um. Leicester spilar gegn Birmingham í dag og verða þre- menningarnir fjarri góðu gamni.■ Íslenska kvennalands-liðið í fótbolta spilar í dag sinn fyrsta vináttu- landsleik á heimavelli í 18 ár þeg- ar liðið mætir Skotlandi í Egils- höll. Síðasti vináttulandsleikur liðsins hér á landi var á Akranes- velli 23. ágúst 1986 þegar Sviss- lendingar komu í heimsókn. Leiknum lauk með sigri Íslands, 1-0. Ísland lék síðast vináttulands- leik 16. febrúar í fyrra þegar liðið mætti Bandaríkjunum í Charl- eston. Tapaðist leikurinn 1-0. Leikurinn við Skota í dag er einnig sögulegur fyrir þær sakir að þetta er fyrsti A-landsleikurinn sem leikinn er innanhúss á Ís- landi. Þess má einnig geta að fyrsti kvennalandsleikur Íslands var einmitt gegn Skotum þann 20. september 1981. ■ ■ Tala dagsins 18 Skrítið að spila innanhúss Kvennalandslið Íslands og Skotlands eigast við í vináttulandsleik í Egilshöll í dag. Þetta er fyrsti A-landsleikurinn sem haldinn er innanhúss hér á landi. FÓTBOLTI Ísland og Skotland hafa mæst fjórum sinnum áður. Ísland hefur unnið tvær viðureignir, einn leikur endaði með jafntefli og Skot- ar hafa unnið einu sinni. Helena Ólafsdóttir landsliðs- þjálfari segir það rosalega jákvætt að fá þennan leik á þessum tíma- punkti. Skiptir hann miklu máli fyr- ir undirbúning liðsins vegna und- ankeppni EM. „Það verður svolítið skrítið að spila innanhúss, en þetta eru toppaðstæður og fást ekkert betri á Íslandi á þessum tíma,“ sagði Helena í samtali við Frétta- blaðið. Undirbúningur landsliðsins fyrir Skotaleikinn er knappur að sögn Helenu og náði liðið aðeins tveimur æfingum fyrir leikinn. „Stelpurnar hafa spilað svolítið þétt í þessum vormótum en það verður bara að gera það besta úr öllu. Sumar stelp- urnar eru ekki í mikilli leikhæfingu og aðrar eru hafa verið meiddar en þegar svona leikur er framundan þá er fólk bara klárt,“ sagði hún. Engu að síður er ljóst að þrír leikmenn sem hafa verið í byrjunar- liðinu verða ekki með. Laufey Ólafsdóttir er með lungnabólgu og spilar ekki með og hefur Sólveig Þórarinsdóttir, KR, verið valin í hennar stað. Auk þess er Þóra B. Helgadóttir meidd og Edda Garð- arsdóttir í námi erlendis. Helena segir að skoska liðið hafi verið að gera fína hluti undanfarið, en þetta er fimmti æfingaleikur liðsins í vor. Liðið spilaði tvo leiki við Frakkland, sem er með Íslandi í riðli í undankeppni EM, og gerði við þær jafntefli og skoraði síðan þrjú mörk gegn þeim í 6-3 tapi. „Þessar stelpur sem hafa verið að koma hérna heim og spila t.d. með ÍBV hafa verið sterkar,“ sagði Hel- ena. „Þannig að ég á von á hörku- leik. Þær eru í rauninni komnar lengra í undirbúningnum heldur en við. Þær eiga að heita einhverjum tíu sætum fyrir aftan okkur á styrkleikalistanum en þetta eru sterkar stelpur og tölurnar hafa verið að sýna það.“ Næsta verkefni íslenska kven- nalandsliðsins í fótbolta á eftir Skotaleiknum er æfingaleikur við Holland þann 15. maí. Síðan taka tveir leikir í undankeppni EM við, fyrst útileikur við Ungverjaland 29. maí og síðan heimaleikur við Frakka 2. júní. freyr@frettabladid.is 8-liða úrslit meistaradeildarinnar: Arsenal mætir Chelsea FÓTBOLTI Arsenal mætir Chelsea í miklum Lundúnarslag í 8-liða úr- slitum meistaradeildar Evrópu. Í hinum leikjunum eigast Real Madrid og Mónakó við, AC Milan mætir Deportivo og Lyon etur kappi við Porto. Í undanúrslitum mætir sigur- liðið úr leik Arsenal og Chelsea sigurliðinu úr leik Real og Mónakó. AC Milan eða Deportivo mætir Lyon eða Porto í hinum leiknum. Chelsea hefur ekki unnið Arsenal í síðustu 16 viðureignum liðanna. Allir þrír leikir liðanna á leiktíðinni hafa endað með sigri Arsenal. Hvorki Arsenal né Chelsea hafa komist í undanúrslit meist- aradeildarinnar og því mun liðið sem kemst áfram skrá nafn sitt í sögubækurnar. Leikirnir í 8-liða úrslitum verða háðir dagana 23. og 24. mars og 6. og 7. apríl. ■ REYES Spánverjinn Jose Antonio Reyes fagnar marki sínu gegn Chelsea í bikarkeppninni á dögunum. MARKI FAGNAÐ Íslenska landsliðið fagnar einu af tíu mörkum sínum gegn Póllandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM síðasta haust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.