Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 21. desember 1!)72 I'ÍMIW 7 Þæftir af sævíkingum ís- iands í samfeildri útgáfu MENNIRNIR I BRÚNNI Þættir af starfandi skip- stjórum Ægisútgáfan. Ægisútgáfan hefur sent frá sér þrjú væn bindi með þessu efni, og hafa skráð þættina Árni Johnson, Ásgeir Jakobsson, Guðmundur Jakobsson, Jón Kr. Gunnarsson, Bárður Jakobsson og Gunnar M. Magnúss. Þáttunum fylgja margar myndir af skipstjórun- um, sem við er rætt eða frá sagt, skipum þeirra og verstöðvum og jafnvel veiðum á miðum úti. I hópi þessara skipstjóra eru margir þekktustu, dugmestu og aflasælustu skipstjórar landsins, en valið annars ekki gert eftir neinni sérstakri reglu. t fyrsta bindi eru til að mynda þættir af þeim Ásgeiri Guðbjartssyni, Eggerti Gislasyni, Markúsi Guðmundssyni, Hilmari Rós- mundssyni, Haraldi Ágústssyni, Hansi Sigurjónssyni og Þórarni Ólafssyni. t öðru bindi eru þeir Arinbjörn Sigurðsson, Björgvin Gunnars- son, Einnbogi Magnúss. Halldór Halldórsson, Sigurður Kristjóns- son, Þórður Guðjónsson og Þorvaldur Árnason. t þriðja bindi eru Gisli Jóhannesson, Gunnar Hermanns- son, Hrólfur Gunnarsson, Jóhann Simonarson, Sigurjón Stefáns- son, Þorsteinn Gislason. Þetta eru allt saman nafn- kunnir skipstjórar og sumir all- frægir. Þeir hafa margan liskinn fært að landi og i mörgum svaðil- förum lent. Þættirnir eru ýmist beinar frásagnir eða viðtöl, og fylgir sumum aflaskvrslur skip- stjóranna og ýmiss annar fróð- leikur um skip, mið og ver- stöðvar. Margar ,,sjórnannabækur” eru gefnar út árlega, og þjóðin hefur mikinn áhuga á sævikingum sinum. Með þessari útgáfu er augsýnilega reyrxt að safna þessu efni með skipulegum hætti og gefa út i samræmdri heild, og virðist auðsætt, að Ægisútgáfan ætli að halda áfram með þennan bókaflokk. Færi vel á þvi, að svo sem eitt bindi kæmi á ári og fengist þá hið fallegasta og aðgengilegasta. heimilisbókasafn um þennan gilda þátt þjóðlifsins, og á einum stað saman komiö gott safn neimilda af fiskiskipstiórum landsins. Bækur þessar eru hið skemmtT- legasta lesefni öllum þeim mörgu, sem eru með hugann bundinn við sjó og sæfarir, og á tslandsmiðum gerast ætið næg söguefni. Bækur þessar eru vandaðar i ytri búningi. —AK HEILSULIND HEIMILISINS VIBROSAN nuddtækiö nuddar einnig meö örbylgjum/ en án hita. Gerir yfir- leitt sama gagn og nuddpúöinn. Regluleg notkun hindrar hrukku- myndun. Á tækinu er styrk- leikastiilir. Fimm mismunandi munnstykki fylgja. Sex önnur fást aukalega, þ.á.m. brjóstklukka, sem sett er í sam- band viö tækiö. — Einnig fæst loftpúði, sém hægt er aö setja i samband viö tækið. Nýi nuddpúðinn frá Vibrosan Vibramed Therm hefur 3 styrkleika á nuddinu meö eöa án hita, alls SJÖ stillingar. Á sex mínútum getið þér lokiö nuddi meö VIBRAMED TK 'RM, sem eykur veiliöan og hressir dásamlega. Hvílík sæla Gangöryggi, margs konar notkun og vönduö framleiösla gerir VIBRAMED THERM nudd- púöann að gjöf, sem öllum er kærkomin, kon- um sem körlum, ungum sem gömlum. i VIBRAMED THERM er örbyIgjusegull, sem ekki slitnar og þarf þvi ekkert viðhald. Púöinn er léttur og vel iagaöur og þvi hægt að nota hann margvíslega, jafnvel viö andlitsnudd. Svissnesk dvergsmiö. FIMM ÁRA ÁBYRGÐ. ÞAÐ BEZTA ER ALDREI OF GOTT. Fyrir strákana: FoTBOLTAR, þrjár gerðir, vönduö handavinna. FÓTBOLTASKÓR, stæröir 31-45, úr ekta leðri meö plastsólum. Ótrúlega ódýrir eöa aðeins 600.00 krónur pariö. BADMINTONSETT OG BORÐ- TENNISSPAÐAR. Allt kinversk gæöavara i algerum sérflokki. BORGARFELL HF. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23, sími 11372 Opið til kl. 10 föstudagskvöld Útsölustaður í Keflavík: Sportvík, Hafnargötir 3$^

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.