Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
* *
nm
25)4. tölublað — Föstudagur 22. desember — 56. árgangur
kæli-
skápar
X>/tn itctSiAséjLtxSL. A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Sjávarborgarkirkja
hafin til vegs á ný
110 ára gömul og hefur verið
skemma í marga tugi ára
Gamla kirkjan á Sjávarborg i
SkagafirAi verður hafin til vegs á
ný. Kétt áttatiu ár eru síðan hún
var lögð niður sem sóknarkirkja,
en i sumar var hún tekin á forn-
leifaskrá. Nú stendur til að dubba
hana upp á næsta ári og varðveita
hana sem sýnishorn litilla sveita-
kirkna frá miðhiki nitjándu aldar.
— Það eru um hundrað og tiu ár
siðan Sjávarborgarkirkja var
reist, sagði Þór Magnússon þjóð-
minjavörður við fréttamann Tim-
ans, og var hún siðan sóknar-
kirkja i þrjátiu ár. Árið 1892 var
reist kirkja á Sauðárkróki, og þá
var hlutverki Sjávarborgarkirkju
lokið. Var hún siðan flutt úr
kirkjugarðinum sunnan við bæinn
og notuð sem skemma eftir það.
— Þetta er mjög litil timbur-
kirkja, turnlaus, hélt Þór áfram,
ágætt dæmi um slfkar kirkjur
eins og þær gerðust á nitjándu
öld. 1 henni er upprunaleg skar-
súð, og hvorki hefur verið hreyft
við þiljum né klæðningu frá fyrri
tið. Meðal annars er kórþilið eins
og það var. Aftur á móti vantar
predikunarstól og bekki.
Við tókum þvi að sjálfsögðu
tveim höndum, er Heiðbjört
Árnadóttir frá Veðramóti, ekkja
Árna Danielssonar á Sjávarborg,
og þau dóttir hennar og tengda-
sonur, Hlif Árnadóttir og Krist-
mundur Bjarnason rithöfundur,
gáfu okkur kirkjuna.
Verður flutt norð-
ur á Borgina
— Kirkjan verður nú flutt i ann-
að sinn, sagði Þór að lokum — að
þessu sinni norður á borgina, þar
sem hún á að geta sómt sér prýði-
lega. Þetta verður gert að sumri,
og siðan verður hún smám saman
búin þvi, er i hénni ber að vera. A
Sjávarborg er til gamall hurðar-
hringur, er að sjálfsögðu verður
notaður að nýju, og svo útvegum
við predikunarstól og altaristöflu.
Hér i þjóðminjasafninu er til
gömul altaristafla frá seytjándu
öld, er var á sinum tima i Sjávar-
borgarkirkju, en þvi miður getum
við liklega ekki farið með hana
norður, þvi að hún er of stór til
þess, að hún fari vel i þessari
kirkju, sem þar verður nú varð-
veitt.
En sem sagt: Ég geri mér beztu
vonir um, að þessi litla kirkja
muni lita ljómandi vel út, þegar
hún hefur verið færð og fengið þar
þá uppdubbun, er hún þarfnast.
Skagfirðingar munu búa sér-
lega vel að kirkjum, sem fengur
er að skoða, þegar Sjávarborgar-
kirkja verður komin i það horf,
sem henni er ætlað, þar sem l'yrir
voru dómkirkjan á Hólum og torf-
kirkjan á Viðimýri. Við hér á
Timanum vonum bara, að ekki
verði að þvi mikil brögð, að
ókunnugir ferðalangar, sem ekki
hafa allt of glögga hugmynd um
land og sögu, haldi, að Hólar séu
þar sem Sjávarborg er, þegar
kirkjan verður komin norður á
borgina. En af þvi er þessu skotið
hér fram, að það mun ekki með
öllu dæmalaust, að fólk hafi farið
vegavillt og haldið sig komið að
Hólum og farið að skoða sig þar
um i þeirri trú, er það var i raun
og veru á Sjávarborg. —JH.
Kirkja i öndverðu, siðan skemnia iiin langan aldur, en verður uú á
uý forlátakirkja.
Einar Ágústsson utanríkisráðherra:
Ríkisstjórnin undirbýr
viðurkenningu N-Víetnam
EJ-Reykjavik
Kikisstjórnin samþykkti það á
fundi sinum i morgun, aö Einar
Ágústsson, utanrikisráðherra,
skyldi i samráði við utanrikis-
málanefnd liefja undirbúning að
viðurkenningu tslands á Alþýðu-
lýðvcldinu i Norður-Vietnam, að
þvi er Einar Ágústsson upplýsti á
alþingi i gær.
BjarniGuðnason (SFV) kvaddi
Þrumuguðinn mikilvirkur á Rangdrvöllum
Símastaurar
klofnuðu
sér hljóðs utan dagskrár i sam-
einuðu þingi i gær, og gerði að
umtalsefni þau ,,stóru og vofveif-
legu tiðindi frá Suðaustur-Asiu”,
að Bandarikjamenn hefðu á ný
hafið loftárásir á Norður-Viet-
nam. Meira en 100 risaþotur
vörpuðu þúsundum sprengja á
dag yfir landið. Hann minnti á, að
viku fyrir forsetakosningarnar i
Bandarikjunum hefði friðar-
samningur legið tilbúinn til
undirritunar, og hefði það vafa-
laust átt þátt i að auka fylgi
Nixonsikosningunum.Mánuði sið-
ar eða svo hefðu Bandarikjamenn
siðan hafið mestu loftárásir til
þessa á N-Vietnam.
Bjarni taldi rétt og eðlilegt,
miðaö við stuðning þjóða þriðja
heimsins við málstað okkar, að
við styddum þau riki i málum,
sem skiptu þau miklu. Væri þvi
rétt, að tslendingar létu i sér
heyra um þetta mál og mótmæltu
stel'nu Nixons, sem væri forkast-
anleg. Spurði hann utanrikisráð-
herra, hvort ekki væri æskilegt og
eðlilegt að rikisstjórnin beindi
þeim lilmælum til Bandarikj-
anna, að loftárásunum yrði hætt.
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
lierra, sagði.að tiðindin frá Viet-
nam yllu bæði áhyggjum og von-
brigðum. Það bæri að harma, að
svo skömmu eltir forsetakosning-
arnar gripu Bandarikjamenn til
stórfelldra loftárása, þar sem trú
á stjórnmálalegri lausn málsins
var mjög sterk fyrir nokkrum
vikum. Þelta hefði nú breytzl á
hinn hörmulegasta hátt.
itáðherrann sagði að málið
hefði verið rætt á rikisstjórnar-
fundi þá fyrr um daginn. Hafi
rikisstjórnin falið utanrikisráð-
herra að hefja undirbúning að
Framhald á bls. 19
Enn gekk yfir mikið þrumuveð-
ur i Kangárvallasýslu fyrir
hádegi i gær, og gerði usla á þrem
bæjuni að minnsta kosti — að
Geldingalæk og báðum bæjum á
lieiði á Rangárvöllum. Klofnuðu
og brotnuðu simastaurar á milli
bæjanna, og símatækin cyðilögð-
ust á þcim öllum.
Ólafur Magnússon, simaverk-
stjóri á Selfossi, brá fljótt við, er
hann hafði fregnir af þvi, hvað
gerzt hafði, og siðdegis i gær var
komið á simasamband við þessa
bæi á ný. Náði Timinn tali af Þor-
steini bónda Oddssyni á Heiði og
spurði hann um þessa atburði.
— Við búum hér i tvibýli, ég og
Hjalti bróðir minn, sagði Þor-
steinn, en á Geldingalæk býr Ing-
var Magnússon. Hér er sunnan-
og suðvestanátt, og það voru él
framan af degi með skruggum og
ljósagangi. Laust fyrir hádegið
hljóp elding i simalinuna hérna
fyrir neðan túnið, klauf og braut
sex staura og eyðilagði simatækin
á Geldingalæk og i húsum okkar
bræðra beggja.
Það varð vist ógurlegur
glumrugangur — ég var ekki
sjálfur inni, þegar þetta gerðist
—, og það gaus eldur og reykur út
úr tækjunum. Ekki kviknaði samt
i, en ég sé, aö það hefur sótazt
talsvert i kringum þau. Hér á
Heiði sprakk lika stykki úr múr-
uðum vegg, og hjá mér eyðilögð-
ust miðstöðvartæki. A Geldinga-
læk brunnu vist allar simaleiðsl-
ur.
Það er svo sem ekki i fyrsta
skipti, að eitthvað, viðlika ber til,
bætti Þorsteinn við. Fyrir tveim-
ur eða þremur árum brann sim-
inn hjá Hjalta i þrumuveðri, og
hjá mér sjálfum fyrir allmörgum
árum.
Borgarstjórnaríhaldið samt við sig:
Felldi að sleppa auka-
álögum á Reykvíkinga
Skeytti inn í frávísunartillögu kröfu um heimild
til enn aukinnar skattheimtu
Við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar Keykja vikurborgar
fyrir árið 1!I7:í, i borgarstjórn
Keykjavikur i gærkvöldi fluttu
fulltrúar allra minnihluta-
flokkanna tillögu um það, að
ekki yrðu á árinu 197:1 notaðar
lieimildir til 10% álags á út-
svör Keykvikinga og 50%
álags á fasteignaskatta þeirra
á árinu l!)7:isvo sem gert hafði
verið á þessu ári. Þcssu svar-
aði meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins i borgarstjórn með
þvi, að samþykkja tillögu til
frávisunar, scm borgarstjór-
inn, Birgir isleifur Gunnars-
son, flutti, en i þeirrijlillögu er
jafnframt áskorun á rikis-
stjórnina um að veita borgar-
stjórn meira svigrúm en hún
þó hefur til frekari tckjuöflun-
ar.
Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, mælti fyrir tillögu
minnihlutaflokkanna um þetta
efni, en hún er svohljóðandi:
„Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkir, aö við álagningu
fasteignaskatta 1973 skuli ekki
notuð heimild i lögum um
tekjustofna sveitafélaga frá
17. marz 1972 um 50% álag á
ibúðarhúsnæði sbr. 3. gr. a-lið
nefndra laga.
Þá samþykkir borgarstjórn,
að útsvarsupphæð 1973 skuli
ekki vera hærri en 10% sbr. 25.
gr. 1. málsliðs sömu laga.”
Kristján Benediktsson
sagði, er hann mælti fyrir til-
lögunni, að reynslan á þessu
ári sýndi, að borgarsjóði væri
Framhald á bls. 19
Jóladagskrá úfva
i*nc
%
rps Tyiqi