Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Föstudagur 22. desember 1972 Baráttan gegn brottför hersins GLÆSILEG RÁÐSTEFNA HERSTÖÐVAANDSTÆÐ- INGA SENDIR FRÁ SÉR MERKAR ÁLYKTANIR „...Þann eina tilgang að greiða fyrir þvi að brottflutningur bandariska liðsins frá íslandi geti átt sér stað innan þeirra tima- marka....” y í tilefni af þeim viðræðum við Bandarikjastjórn sem utan- rikisráðherra Islands hefur boðað að hefjist snemma á næsta ári, ályktar ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Félags- heimili stúdenta dagana 2. og 3. desember 1972, eftirfarandi og beinir þvi til utanrikisráðherra: Ráðstefnan minnir á það ákvæði i málefnasáttmála núverandi rikisstjórnar að „varnarsamningurinn við Bandarikin skal tek- inn til endurskoðunar eða uppsagnar i þvi skyni að varnarliðið hverfi frá íslandi i áföngum. Skal að þvi stefnt, að brottför liðsins eigi sér stað á kjörtimabilinu”. Ráðstefnan telur að væntanlegar viðræður milli rikisstjórna íslands og Bandarikjanna hafi af hálfu Islendinga þann einn tilgang að greiða fyrir þvi að brott- flutningur bandariska liðsins frá Islandi geti átt sér stað innan þeirra timamarka er i málefnasáttmálanum greinir. Fallist Bandarikjastjórn ekki á það að leggja niður herstöðvar á Islandi með samkomulagi við tslendinga, ber islenzku rikisstjórninni að segja upp herstöðva-samningnum frá 1951 og knýja þannig fram brottför hersins i samræmi við 7. grein samningsins. „...leitum á öryggisráðstefnunni málefnalegs samstarfs án til- lits til stórveldasjónarmiða....” Ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Reykjavik 2. og 3. desember 1972, skorar á islenzk stjórnvöld að undirbúa sem bezt sjálfstæða þátttöku íslands i væntanlegri ráðstefnu um öryggis- mál Evrópu. Bendir fundurinn á þýðingu þess, að við tökum þar skýra afstöðu i samræmi við hagsmuni okkar sem smárikis og leitum á öryggisráðstefnunni málefnalegs samstarfs án tillits til stórveldasjónarmiða og aðildar okkar að NATO. Islendingar eiga að beita sér fyrir þvi, að dregið verði úr her- og vopnabúnaði hjá ráðstefnurikjum og allt erlent herlið verði flutt burt úr Evrópulöndum. „....herstöðvar á íslandi verði afnumdar með öllu....” Vegna tillögu á Alþingi um athugun þess, hvort íslendingar geti eftir brottför bandariska NATO-hersins af Islandi gegnt gæzluhlutverki i þágu Atlanzhafsbandalagsins, leggur ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin 2. og 3. desember 1972, á það áherzlu, að herstöðvar á íslandi verði afnumdar með öllu, og ekki komi til mála að islenzk landssvæði verði áfram hagnýtt i þágu hernaðarbandalags. „....afstaðan til aðildar íslands að Norður-Atlanzhafssamningn- um tekin til rækilegrar endurskoðunnar.” I ljósi gjörbreyttra viðhorfa i Evrópu beinir ráðstefna her- stöðva-andstæðinga, haldin dagana2. og3. desember 1972, þvi til islenzku rikisstjórnarinnar, að jafnframt þvi sem unnið sé að brottför hersins, verði afstaðan til aðildar íslands að Norður-At- lanzhafssamningnum tekin til rækilegrar endurskoðunar. „....fjölmiðlun Bandarikjahers frá Keflavikurflugvelli sé lög- leysa....” Ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Reykjavik dagana 2. og 3. desember 1972 bendir á, að fjölmiðlun Bandarikjahers frá Keflavikurflugvelli sé lögleysa og skorar á rikisstjórn Islands að taka þegar fyrir útsendingar hljóðvarps og sjónvarps þaðan. Kaflar úr ályktunum FUF á Akureyri Landhelgin og við 0 er skoðun aðalfundar F.U.K. á Akureyri, að nú megi ekki láta dcigan siga i fiskveiði- dcilunni við Brcta og Vestur- Þjóðverja. íslendingar, við eigum og skulum sigra gömlu nýlendu- kúgarana. Herinn og NATO llraða bcr endurskoðun varnarsáttmálans með það fyrir augum, að herinn hverfi úr landinu i'yrir lok kjörtimabilsins. Knnfrcmur vcrði endurskoðuð staða Islands i bernaðarbanda- lagi við lilið þjóða, sem hóta að bcita okkur vopnuðu ofbeldi. ísland og þrjðji heimurinn l.jóst cr orðið,að einn traustasti hakhjarl islendinga i millirikja- samskiptum eru þjóðir hins svo- nefnda þriðja heims, eins og glögglcga kom i ljós við af- greiðslu tillögu íslands og fleiri þjóða um réttindi strandríkja, á þingi S.Þ. Fundurinn ályktar, að enn nánari samskipti beri að hafa við þessar þjóðir i framtiðinni, ekki sizt á hinni væntanlegu llafréttarráðstefnu S.Þ. Þeir sem landið erfa Fundurinn vekur athygli á hve áhrifalitlir ungir menn hafa verið og eru i islenzku þjóðlifi frá þvi að sú kynslóð, sem nú skreytir sali alþingis tók við völdum. Krefst fundurinn þess , að kynslóöabiliö,sem að miklu leyti er til orðið vegna einstrengings- lcgrar afstöðu eldri kynslóðar- innar til hinnar yngri, verði brúað með þvi að veita yngri mönnum tækifæri til að sýna vilja sinn og getu á vettvangi þjóð- mála. Frd fjölmennum aðal- fundi FUF d Akureyri Athyglisverðar ályktanir Mjög fjölmennur aðalfundur F.U.F. á Akureyri var nýlega haldinn; fundinn setti Ingvar Baldursson, formaður F.U.F. og skipaði sem fundarstjóra Kolbein Sigurbjörnsson. 1 upphafi fundar flutti formaður skýrslu og las upp reikninga vegna fjarveru gjald- kera. Að umræðum loknum um þau mál, var kosið i stjórn og fulltrúaráð. Að þvi búnu hófust fjörugar umræður, og voru ályktanir samþykktar. Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag OMEGA rOAMEr PIEHPOflT Niuada Jtlpina. Hin nýkjörna stjórn FUF á Akureyri. 1 neðri röð frá vinstri: Jóhann Karl Sigurðsson, Ingvar Baldurs- son, formaður, Kolbeinn Sigurbjörnsson. Efri röð: Gunnlaugur Guðmundsson, Hákon Hákonarson og Karl Steingrimsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.