Tíminn - 01.03.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.03.1973, Blaðsíða 1
FUNDARSALIR ,,Hótel Loffleiðir" miðast við þarfir alþjóðaráðsfefna og þinga, þar sem þýða þarf ræður manna jafnharðan á ýmis tungur.iál. LITID Á SALARKYNNI HOTELS LOFTLEIDA — EINHVER ÞEIRRA MUN FULLNÆGJA ÞORFUM YÐAR. _______________________________ wotel mimifí} KÓPANESI HLEKKTIST Á ÚT AF KRÝSUVÍKURBERGI Slitnaði síðan aftan úr Sæunni fyrir utan Grindavík og rak á land á Akurhúsanefi Reykjavík rófnalaus á sprengikvöld Klp-Eeykjavík. Nú er ekki nema rétt vika til sprengidagsins. Hætt er viö, að þann dag sprengi menn sig ekki á rófnaáti, þótt rófum sé ætlaður sess við hliðina á öllu saltkjötinu, kartöflunum og baunasúpunni, þvi að rófur er nær ógjörningur að fá f búðum þessa dagana. Við fengum þær upplýsingar hjá Grænmetisverzlun land- búnaðarins og Sölufélagi garðyrkjumanna, sem hafa með dreifingu á þessari vöru að gera hér i Reykjavik og nágrenni, að taka hafi orðið Tipp skömmtun á rófum til verzlana nú siðustu daga, þvi að allar rófur væru að verða búnar. „Astæöan fyrir þessu er ein- faldlega sú, að uppskeran var miklu minni en árið áður, enda mun hafa verið sett minna niður, þar sem nóg var á markaðnum árið þar á undan, og þá gekk ekki sérlega vel aö selja uppskeruna” sagði Þorgils Steinþórsson sölu- stjóri hjá Grænmetisverzluninni. „Þetta kemur stundum fyrir, en oftast hefur uppskeran nægt okk- ur út marzmánuð þar til nú. Við fengum svolitið magn fyrir nokkrum dögum, en urðum að skammta það i búðirnar, svo allir hefðu eitthvað á sprengidaginn, en fyrir hann, er jafnan keypt mikið af rófum. Ég þori samt ekki að lofa þvi að það magn dugi. handa öllum.” Þeir fara samt norður í flugvél, Eymundur og kisi EINS og fólki er vafalaust I minni, var Eymundur Kristjánsson, þrettán ára drengur, ásamt ketti sinum, meðal farþeganna i flugvél- inni, sem hafnaði úti i skurði i Vatnsmýrinni I fyrradag, i stað að fljúga norður yfir fjöll til Blönduóss og Siglufjaröar. ★ Kötturinn heitir Hannibal, fjögurra mánaða gamall kettlingur, en það er eiginlega systir Eymundar, sem á hann. För þeirra Eymundar og Hannibals var heitið að Reykjum á Reykjabraut, þar sem þeir ætla að dveljast hjá Páli bónda Kristjánssyni. Eymundur, þrettán ára, og Hannibal, fjögurra mánaða. Eðlilega varð þeim um og ó, þegar flugvélin skall á jörðinni, og reyndar varð Hannibal viðbragðsfljótastur allra, sem i henni voru, þvi að hann komst upp úr kassanum, sem hann ætlaði að sofa i á leiðinni norður, og varð fyrst- ur út úr flugvélinni. En þó að svona atburðir séu til þess fallnir að skjóta þeim skelk i bringu, er verða fyrir þessu og öðru eins, ætla þeir Eymundur og Hannibal eigi að siður flug- leiðis norður. — Ég held, að við förum á morgun, sagði Eymundur, þegar við töluðum við hann i gær — ætli maður setji það nokkuð fyrir sig, þó að svona færi? Af Hannibal höfðum við ekki tal, en gerum fastlega ráð fyr- ir þvi, að hann sé sama sinnis og Eymundur. ÞÓ, Reykjavik. — Kópanes RE-8 varð fyrir þvi óhappi á fimmta timanum i gær, að loðnutrollið lenti i skrúfu skipsins, þar sem það var að loðnu- veiðum út af Krisuvikurbergi i gær. Varð strax að stöðva vélar skipsins og flatrak það fyrir veðri og vindi, en veður á þessum slóðum fór þá versnandi. Áttin var af austsuðaustan 5-6 vindstig. Stuttu seinna kastaðist skipið til og við það kastaðist loðn- an i lest skipsins til og fór hún öll yfir i aðra hliðina. Skipið lagðist strax yfir i borð, og skipstjórinn kallaði á aðstoð. Margir loðnubátar voru á þessurn slóðum og héldu þeir strax til aðstoðar Kópanesinu. Fyrstu bátarnir á staðinn voru Magnús NK og Sæunn VE. Skip- verjar á Kópanesi voru 7 talsins og fóru þeir allir um borð i Sæunni nema skipstjórinn. Sæunn tók Kópanesið I tog, og ætlaði að reyna að draga það áleiðis til Grindavikur. Björgunarskipið Goðinn, sem staddur var út af Garðskaga, þegar óhappið bar að, var strax sendur á vettvang og átti Goðinn að vera kominn að Kópanesinu um klukkan 19.30 i gærkvöldi. Þá var veður orðið enn verra, eða átta vindstig og sjór fór vaxandi. Menn voru þá orðnir hræddir um að ekki tækist að koma Kópanes- inu til hafnar. Um klukkan 19 haföi veðriö versnaö svo mikið þar sem bátarnir voru, en það var um 18 milur ASA af Grindavik, að ekki þótti annað fært en skipstjórinn færi frá boröi, og fór hann um borð i Magnús. , Svo illa tókst til, er skipin voru komin að innsiglingunni til Grindavikur á niunda timanum, að Kópanesið slitnaði aftan úr Sæunni og rak á land, þar sem heitir Akurhúsanef. Þar liggur það undir skemmdum, en svo hagar til að þarna er aðdjúpt, en klettótt. Þar sem skipið lá i gær- kvöldi gekk sjór yfir það, en þá var fjara. Háflóð átti aö vera á fjóröa timanum i nótt, og var þá búizt við að skipið færðist ofar og skemmdist meira. Kópanes er 105 tonna stálbátur smiðaður i Stálvik 1971. Það hefur stundað loðnuveiðar með flot- vörpu um nokkurt skeið. Átta skip hafa farizt Kópanes er áttundi báturinn i islenzka flotanum, sem annað hvort sekkur eða strandar á þess- um vetri, sem reyndar er ekki nema rúmlega hálfnaður. Hin skipin eru Jón Kjartansson, sem sökk á Reyðarfirði, Sjöstjarnan, sem sökk milli Færeyja og Is- lands Gjafar, sem strandaði á Hópsnesi, Reykjanes, sem strandaði á Hvalbak og Skálanes og Fagranes, sem ráku upp á Þórshöfn, og svo Maria, sem týndist i Garðssjó. Þessi mynd er að visu af Arnfirðingi II, en Kópanes var jafngamait skip og jafnstórt og eins að aiiri gerð, smiðað árið 1971 hjá Stálvik. Arnfirðingi hlekktist á innsiglingu I Grindavík I fyrra. Landbúnaðarvörur hækka Framleiösluráð land- búnaðarins auglýsti í gær- kvöldi nýtt verð á land- búnaðarvörum, sem tekur gildi í dag. Mjólkurfernan kostar nú kr. 40.40 og hefur hækkað um kr. 12.30. Verðhækkanirnar á land- búnaðarvörunum stafa af hækkun útgjalda við búrekstur. svo sem hækkun á veröi fóöurbætis, hækk un á kostnaði viö vélar, flutnings- kostnaði, rafmagni og launa- hækkun, sambærilegri við það, sem launþegar fá um þessi mánaöamót. Þessar hækkanir hækka verðlagsgrundvöll land- búnaðarvara um 11.4%. Auk þessara hækkana á útgjöldum við búrekstur, veldur hærri vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur verðhækkunum, sem stafa af launahækkun til starfsfólks og áhrifum frá gengisfellingunni. I þriðja lagi er svo dregið úr niöur- greiðslum frá þvi sem verið hef- ur. Sem dæmi um verðhækkanirn- ar má nefna, aö mjólk i tveggja litra fernum, sem kostaði 28.10, kostar nú kr. 40.40. Rjómi i kvart- hyrnum kostaði 37.10, en kostar nú 43.20. Útsöluverð á smjöri var kr. 196.50 hvert kiló, en verður nú kr. 250.00. Fjörutiu og fimm pró- sent ostur kostaði 205 krónur hvert kiló, en kostar nú 238 krón- ur. Svo dæmi sé tekiö um súpukjöt, þá kostaði það kr. 141.10 hvert kg. i smásölu, en kostar nú 173 krónur kilóiö. Kilóið af lærum kostaði 163 krónur, en fer upp i 197.70. Fimm kilóapoki af kartöflum kostaði 70 krónur, en fer i 87.50. Kjöt I heilum skrokkum niöur- sagað kostaöi 127.60 en fer i 158.80. Rétt er að vekja sérstaka at- hygii á þvi, að vörur, sem af- reiknaðar voru frá heildsölu- aðilum 28. febrúar eða fyrr, má ekki selja á hærra smá- söluverði en þvi, sem Fram- leiðsluráð landbúnaðarins auglýsti 14. sept. og 30. nóv. sl. Undantekning frá þessu er, að hækka má vörur sem svarar hækkuðum söluskatti á sölu- skattsskyldum vörum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.