Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Þriöjudagur 6. marz, 1973. Lögregla fær liðsauka Nú er lögreglan í London aldeilis búin aö fá fint tæki. Þaö er bill, sem búinn er sérstökum lyftitækjum, sem nota má til þess aö taka upp bila eöa önnur farartæki, sem hefta umferö á götum borgarinnar. A þremur minútum getur lyftari þessi tekiö upp hvaöa bil sem er, og flutt hann I burtu. Lyftarinn kostar 10 þús. pund, og væntir lögreglan þess aö meö tilkomu hans veröi hægt aö flytja i burtu bila meö skjótum hætti, sem stööva umferö á götum borgar- innar, og veröi þetta til þess aö auövelda alla umferö um borgina. Jesúítaprestum fækkar Franskir Jesúitar hafa kannaö þaö, hversu margir prestar ganga úr reglu þeirra. Hefur komiö i ljós, aö þaö er aö meöal- tali einn prestur á viku. Frá 1961 til 1970 hafa 1049 Jesúitaprestar fariö fram á aö vera leystir undan eiöi viö kirkjuna, og á sama tima hafa einnig margir þeir, sem I prestaskólana ganga, hætt viö aö gerast prestar, löngu áöur en aö prest vigslunni kemur. Ariö 1966 voru 36 þúsund I reglunni, en nú eru þeir aöeins 30.895. Ariö 1972 hættu alls 908 menn viö aö gerast prestar. Þrátt fyrir þetta er Jesúf tareglan fjölmennasta kaþólska reglan, en hún var stofnuö áriö 1540, og fór ekki aö draga úr áhuga manna á henni fyrr en um og eftir 1960. Húseignir dýra í Paris Verölag á Ibúöum I París hækkaöi um 10 til 12 prósent á siöasta ári. Þessi hækkun er þess valdandi, aö framfærslu- kostnaöaur hefur hækkaö aö meöaltali um 7% ef dæma má af útreikningum rlkisstjórnar- innar. Hækkun á ibúöarveröi fór nokkuö eftir þvl hvar þær voru I Parisarborg, þvi þar eins og annars staöar eru hverfi misjafnlega eftirsótt. Hækkunin I Rueil-Malmaison og Saint- Germain-en-Laye nam 15%. Söluverð gamalla Ibúöa I góöu ásigkomulagi er nú taliö vera sem svarar 600 dollurum fyrir hvern fermetra, eöa 60 þúsund krónur. Leiga fyrir ibúöir I París er venjulega um þrlr og hálfur dollari eða um 350 kr. á fermetra. Venjulegar Ibúöir — fjögurra til fimm herbergja — eru um 100 fermetrar, svo leigan er þá 35000 kr. Verndun fugla í Frakklandi á döfinni Franska stjórnin hefur sett lög, sem miöa aö þvl aö vernda fugla þar I landi fyrir veiöimönnum. Hefur veriö ákveöiö aö veiöi- menn veröi aö taka sérstakt próf áöur en þeir fá byssuleyfi á sama hátt og þeir taka próf, sem fá ökusklrteini. Þá hefur veriö bannaö aö veiöimenn gangi um meö labb-rabb- stöðvar og geti þannig talað sig saman um, hvernig bezt sé að ná bráöinni. Einnig er bannaö aö nota vélbáta viö veiöar á vatnafuglum. Ráögert er aö setja sérstakar reglur um friöun fuglanna á vissum árstímum, og aö lokum hefur veriö bönnuö notkun neta við fuglaveiöar. Ólánið eltir Romy Romy Schneider hefur gengið allt í haginn fram til þessa. Hún er dóttir þekktrar leikkonu, Magda Schneider, og snemma fór hún aö leika sjálf. Hún hélt áfram aö leika, eftir aö hún stækkaði, og hefur nú unnið sér heimsfrægö. Nýlega var hún lögð á sjúkrahús, og læknar full- yröa, aö hún sé hættulega veik. Hún er meö einhvern lifrarsjúk- dóm, og auk þess er hún með blæðandi magasár. Auk alls þessa hefur hjónaband hennar og hins 48 ára gamla eigin- manns hennar farið út um þúfur, en maðurinn heitir Harry Meyen. Ekki er kunnugt, hversu lengi hjónabandið hefur veriö I ólagi en þaö mun hafa gengið heldur illa I alllangan tlma, þótt þaö hafi ekki endanlega farið út um þúfur fyrr en nú. Vv~v DENNI DÆAAALAUSI Ég ætla sko ekki oftar með þig i dýragarðinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.