Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 15
Þriöjudagur 6. marz, 1973. TÍMINN 15 Umsjón: fllfreð Þorsteinsson ÍR-ingar léku sér að Víkingunum Ágúst Svavarsson dtti stórleik þegar ÍR vann Víking 26:18 ÁGÚST SVAVARSSON, hinn hávaxni leikmaður ÍR átti stórleik, þegar ÍR-Iiðið burstaði Viking með átta marka mun á sunnudagskvöldið. Hann var búinn að skora fjögur stórglæsileg mörk með langskotum, þegar Vikingar tóku hann úr umferð i siðari- hálfleik — þegar staðan var 21:15 fyrir ÍR hættu Vikingar að elta Ágúst. Þeir fóru að leika með tvo menn til að húkka knöttinn. Við þetta losnaði aftur um Ágúst, sem skoraði tvö góð mörk i röð. Leikur iiðanna var frekar jafn til að byrja með, en fljótlega i byrjun siðari hálfleiks náðu íR-ingar tveggja marka forskoti og þegar leið á leikinn, fóru þeir að siga hægt og rólega fram úr. ÍR-liöið var nú óþekkjanlegt frá leiknum gegn Haukum, leikmenn liösins léku oft skemmtilega og þeir þurftu ekki annað en að hitta markið, þá lá knötturinn i netinu. Þetta fór greinilega i taugarnar á lélegum markvöröum Vikings- liðsins og um miðjan siðari hálf- leik yfirgaf annar markvörður- inn Laugardalshöllina i fússi og sagöi um leið og hann fór — ,,Það er ekki hægt að horfa upp á þessi dómarafifl”. Dómarar leiksins, þeir Haukur Hallsson og Kristó- fer Magnússon, dæmdu eins og þeir geta bezt dæmt — það er óskiljanlegt, að þessir menn fái að hafa flautu uppi i sér. Framhald á bls. 19 Sigfús Guðmundsson, Vlking, sést hér skora af lfnu i leiknum gegn 1R. Einar Magnússon (4) gaf á Sigfús. En Einar skoraði sex mörk i leiknum, einnig átti hann fimm iinusendingar, sem gáfu mörk. (Tfmamynd Róbert). Heppnissigur Fram gegn Ármanni Framarar nóðu tveggja marka forskoti, þegar Ármenningar voru aðeins fimm innó F RAMARAR geta svo sannarlega hrósað happi, að hafa farið með bæði stigin í viðureigninni við Ármann, þegar liðin léku i Islandsmótinu í handknatt- leik á sunnudagskvöldið. Ármannsliðiö sem hefur farið mikið fram í vetur, stóð i Islandsmeisturunum og hélt jöfnu og með eitt mark yfir 15:14 þegar 10 min. voru til leiksloka. En þá var þeim Herði Kristins- syni og Vilberg Sigtryggs- syni visað af leikvelli i 2 mín. Þá tókst Fram að jafna 15:15 og bæta við tveimur mörkum. Þegar nokkrar sek. voru til leiks- loka stóð 17:16 fvrir Fram. Þá átti Björn Jóhannsson gott skot, sem lenti í stöng Frammarksins. Armann komst yfir i byrjun leiksins 3:1. Þegar fyrri hálf- leikurinn var hálfnaður tókst Fram að jafna 5:5 og siöan mátti sjá tölur eins og 6:6, 7:7, 8:8, 9:9, og 10:10. Ármann skoraði svo tvö mörk og komst yfir 12:10 i hálf- leik. Armann var svo nær alltaf yfir i siöari hálfleiknum og þegar 14 min. voru til leiksloka skoraði Jón Astvaldsson 15:14. En þá var þeim Herði og Vilberg visað af leikvelli. Axel Axelsson jafnar 15:15. og Pétur Jóhannsson kemur Fram yfir 16:15. Siðan bætir Björgvin Björgvinsson viö 17:15. Siðustu minútur leiksins voru spennandi, en heppnin var ekki með Armanni, þvi að Vilberg lét Þorstein verja frá sér viti. Þegar ein min. var til leiksloka skorar Guömundur Sigurbjörnsson mark fyrir Armann og þegar fáar sek. voru til leiksloka söng knött- urinn i stönginni hjá Fram. Ármanni tókst ekki að jafna og lauk þvi leiknum með sigri Fram 17:16. Sannkallaður heppnisigur. Ingólfur óskarsson kom skemmtilega á óvart i leiknum, hann skoraöi fimm lagleg mörk með sinum gömlu og góðu lang- skotum, og eitt úr vitakasti. Aðrir sem skoruðu fyrir Fram voru: Björgvin 4, Axel og Pétur tvö hvor, Andrés, Guðmundur Sveinsson og Sigurbergur eitt hver. Fyrir Armann skoruöu: Vilberg 6(3 viti), Guðmundur og Björn, þrjú hvor, Ragnar 2, Jón og Hörður eitt hvor. Karl Jóhannsson og Björn Kristjánsson dæmdu leikinn ágætlega. Fram stöðvaði sigurgöngu Víkings Leikurinn var daufur og tilþrifalítill Fram stöövaði sigurgöngu Vik- ings I islandsmótinu I handknatt- leik kvenna á sunnudaginn, þegar liöin mættust I l.augardalshöll- inni. Leikurinn var frekar daufur og tilþrifaHtill. Hann var jafn framan af, það var ckki fyrr en um miöjan sfðari hálfleik, aö Fram náöitveggja marka forustu 7:5. — Leiknum lauk meö sigri Fram 8:6. Fyrsta mark leiksins var lengi á leiðinni, það var ekki fyrr en á 13. min., að Helga Magnúsdóttir kom knettinum i netið hjá Viking, og á 17. min skorar svo Arnþrúð- ur Karlsdóttir, 2:0, fyrir Fram. Fyrsta mark Vikings kom svo á 21. min. — Agnes Bragadóttir skoraði Ur vitakasti og minútu siðar jafnaði hún 2:2, einnig Ur vitakasti. Staöan i hálfleik var 3:3. I siðari hálfleik mátti sjá á markatöflunni 4:4 og 5:5. Kristin Orradóttir skorar þá 6:5 og Arnþrúður bætir við 7:5 fyrir Fram. Leiknum lauk meö sigri Fram 8:6. Mörkin i leiknum skoruðu: FRAM: Arnþrúður 4, Kristin, Helga, Halldóra og Guðrún eitt hver. VÍKINGUR: Agnes 4, Guðrún Helgadóttir og Ragnheiður eitt hvor. —SOS. Valur vann KR léttilega 16:10 KR-stúlkurnar byrjuðu vel, en svo söguna meir Valsstúlkurnar áttu ekki I vandræðum meö KR, þegar liöin mættust á sunnudaginn i 1. deild- arkeppninni í handknattleik. KR-stúikurnar byrjuöu vel, eins og þær gera alltaf, en þaö er ekki nóg aö byrja vel og missa svo allt niður, eins og þær hafa gert i leij- um sínum i islands mótinu. KR-liöiö á viö vandamál aö striöa — i liöinu eru margar góöar stúlk- ur, en þaö fæst litiö úr þeim, þvi að þær gera mest af þvi aö flækjast hver fyrir annarri. Svala Sigtryggsdóttir, bezta stúlkan hjá Val, skoraði fyrsta mark leiksins. KR-stúlkurnar ekki svöruðu með þremur mörkum og breyttu stöðunni i 3:1. Þá jafnaði Svala með tveimur góðum mörk- um og Björg Jónsdóttir kom Val yfir 4:3. Staðan i hálfleik var 7:5 fyrir Val. Valur skoraöi svo fyrstu þrjú mörkin i siöari hálfleik og náðu 10:5. Eftir það var enginn vafi á þvi, hvaða liðið mundi vinna. Le'.kjum lauk með sigri Vals 16:10. Mörkin i leiknum skoruðu: Valur: Svala 7, Björg J. 3, Björg G. 2, Sigurjóna 2, Hildur og Jóna Dóra, eitt hvor. KR: Hjördis 6, Emilia 2, Soffia og Helga, eitt hvor . — SOS. Ármann komst af botninum Nú könnuðust menn við Ármannsliðið Ármann komst af botninum með þvi aö sigra Breiöablik I fremur lélegum leik I 1. dcild kvenna I llafnarfiröi á sunnu- dagskvöld. Þessi Ieikur var mjög þýðingarmikill fyrir bæöi liö, þvi að áður en lcikurinn byrjaöi voru bæði liðin á hotninum meö tvö stig. Armann byrjaði vel og tók for- ustuna strax meö góðu marki, sem Ágústa skoraði, en Breiða- blik jafnaði rétt á eftir. Þegar á leikinn leið, tók Armann leikinn i sinar hendur og þegar fyrri hálf- leik lauk höföu Armannsstúlkurn- ar yfir, 10:3. 1 siðari hálfleik barðisi Breiða- blik og tókst að láta stööuna I 12:6 en þótt þær hafi barizt og tekið eina Ur umferð, dugöi það þeim ekki til að jafna, og Armann vann með yfirburðum 15:8. Fyrir Ármann skoruðu: Guð- rún 4, Erla 4, Katrin 3, Sigriöur 2 og Agústa 1. Fyrir Breiðablik skoruðu: Alda 6, Knstin 2. —GKK. SLO NIÐUR DÓMARANN Sá leiðinlegi atburður átti sér staðþegar Verzlunarskóli Islands og Menntaskólinn i Reykjavik voru aö keppa i skólamóti i knatt- spyrnu að einum af leikmönnum Vi og markverði MR lenti saman, og varö þá leikmaður VI vond-' ur og sló markvörö MR i magann. Eftir slikt tilfelli hefði hvaða dómari sem er rekið þennan leikmann út af og gerði dómari þessa leiks það, en þá sló leikmaðurinn dómarann i andlitið og hálf rotaði hann. Leikmaðurinn sem sló dómar- ann er leikmaður i 1. deild og er spurningin sú, hvort þessi leik- maður verði ekki dæmdur I keppnisbann i sumar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.