Fréttablaðið - 26.08.2004, Blaðsíða 56
FÓTBOLTI Arsenal bætti met sitt og
Nottingham Forest frá því 1978
þegar liðið lék sinn 43. leik í röð í
ensku úrvalsdeildinni án þess að
tapa. Arsenal-liðið gerði gott
betur því liðið vann öruggan 3–0
sigur á Blackburn og settist í
kjölfarið við hlið Chelsea með
fullt hús á toppnum. Arsenal
hefur skorað 12 mörk í fyrstu
þremur umferðunum.
Theirry Henry skoraði fyrsta
markið eftir sendingu frá Dennis
Bergkamp, Gilberto Silva bætti
því öðru við eftir horn frá Henry
sem síðan lagði upp síðasta
markið fyrir Spánverjann Jose
Antonio Reyes. Henry hefur
skorað 3 mörk og gefið 5
stoðsendingar í fyrstu þremur
leikjunum.
Hermann Hreiðarsson lagði
upp fyrra mark Francis Jeffers
sem skoraði tvö mörk í 3–0 sigri
Charlton á Aston Villa. Luke
Young skoraði þriðja markið í
seinni hálfleik.
Mark Viduka lék sinn fyrsta
leik með Middlesbrough, í 0-2
útisigri á Fulham, og var fljótur
að komast á blað eftir undirbún-
ing Jimmy Floyd Hasselbaink.
Nýja framherjapar Boro nær því
greinilega vel saman frá fyrsta
leik. Szilard Nemeth skoraði
seinna markið.
Newcastle ætlar að ganga illa
að landa fyrsta sigrinum. David
Bellamy og Aaron Hughes komu
þeim í 2–0 gegn Norwich en
David Bentley og Gary Doherty
jöfnuðu fyrir nýliðana.
Zoltan Gera kom WBA yfir
gegn Tottenham en Jermaine
Defoe jafnaði leikinn áður en
hann yfirgaf völlinn meiddur.
Bolton komst aftur á sigur-
braut þegar liðið vann
Southampton, 1–2 á útivelli.
Henrik Pedersen og Jay Jay
Okocha komu Bolton í 0–2 en
Peter Crouch minnkaði muninn.
Tvö mörk frá Alan Smith
Manchester United lék seinni
leik sinn gegn Dynamo Búkarest
í forkeppni meistaradeildar
Evrópu og það var Alan Smith í
aðalhlutverki og skoraði tvö
mörk í 3–0 sigri, bæði á upphafs-
mínútum seinni hálfleiks. David
Bellion skoraði síðasta markið.
United vann 5–1 samanlagt.
Real Madrid komst líka áfram
eftir 3–1 sigur á Wisla Krakow,
Ronaldo skoraði tvö markanna í
fyrri hálfleik. Real vann saman-
lagt 5–1. Þá vann Juventus
Djurgarden 4–1 og því samanlagt
6–3. ■
28 26. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
Ertu viss?
„Ég tel mig hafa meira fram að færa til íslenska lands-
liðsins.“
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í viðtali við DV í gær.
sport@frettabladid.is
Við hrósum...
...Jóni Arnóri Stefánssyni fyrir að láta ekki bjóða sér hvað sem er hjá Dallas Mavericks og
færa sig um set yfir til Rússlands. Jón Arnór á ábyggilega eftir að standa sig vel þar.
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
körfuboltamaður hefur samið til
eins árs við rússneska liðið Dyna-
mo St. Petersburg og leikur með
því í vetur. Jón er laus allra mála
hjá Dallas Mavericks en hann
segist hafa orðið þreyttur á að fá
ekkert að spila. „Ég sá ekki fram
á að fá að leika mikið með Dallas
í vetur og ákvað því að prófa eitt-
hvað nýtt,“ sagði Jón í samtali við
Fréttablaðið. „Mér leist best á
þessa rússnesku deild sem er ein
ef ekki sú sterkasta í Evrópu í
dag. Ég fæ að spila fullt sem er
mjög mikilvægt fyrir mig núna
eftir að hafa setið á bekknum í
heilt ár. Ég er mjög spenntur
fyrir þessu.“
Þarf þrjátíu mínútur
Jón Arnór segir það haft mikil
áhrif á sig sem leikmann að spila
ekki í heilt ár. Tíminn fór þó ekki
til spillis því hann æfði sig
grimmt hjá Mavericks. „Þetta var
nú aðallega bara leiðinlegt,“ segir
Jón Arnór hlæjandi. „En ég lærði
að vísu mjög mikið, bæði af leik-
mönnum Dallas-liðsins og hjá
þjálfurunum, sem eru miklir
snillingar. Aðstaða Dallas liðsins
var náttúrulega eins og hún ger-
ist best og það nýttist mér vel.
Það reyndi samt ekki mikið á
þessa nýju þekkingu fyrr en í
sumar þegar ég lék í sumardeild
NBA, þar sem mér gekk þrusu-
vel. En ég get ekki setið úti í heilt
ár í viðbót. Ég verð að spila í um
30 mínútur í leik til þess að bæta
mig. Ég mun svo reyna fyrir mér
aftur í NBA þegar þar að kemur.“
Jón hittir Black
Dynamo-liðið er búið að stokka
upp svo um munar í liðinu, kom-
inn nýr forseti og fjöldi nýrra
leikmanna. Einn af virtustu þjálf-
urum Evrópuboltans, David
Black, er kominn til liðsins og
segir Jón að Black hafa haft mik-
il áhrif á ákvörðun sína. „Hann
hefur náð feiknagóðum árangri
með Maccabi Tel Aviv, sem hefur
verið eitt besta lið Evrópu í fjöl-
mörg ár. Við erum líka skráðir í
Evrópukeppni og fáum að spila
við lið utan rússnesku deildarinn-
ar og það er mjög spennandi fyrir
mig sem leikmann.“
Rússar eru gríðarlega sterk
körfuboltaþjóð og eiga nokkra
leikmenn í NBA. Þar á meðal
Andrei Kirilenko, leikmaður Utah
Jazz, og voru fyrrverandi félagar
Jóns hjá Dallas að ná sér í Pavel
Podkolzin fyrir komandi tímabil.
Eru Rússar greinilega ekki á
flæðiskeri staddir þegar körfu-
boltamenn eru annars vegar.
Dallas á forgangsrétt
Þó að Jón Arnór sé yfir sig
ánægður að vera á leið til Rúss-
lands, segist hann yfirgefa
Dallas-liðið með miklum söknuði.
„Það toppar ekkert NBA-deildina
varðandi aðstöðu og glamúr og ég
stefni að því að komast aftur
þarna inn eftir ár. Reyndar hefur
Dallas forgangsrétt á mér sem er
bara mjög gott mál. Þeir eru með
topplið og frábært fólk sem vinn-
ur í kringum liðið. Það yrði mjög
gaman að vera leikmaður fyrir
Dallas, ekki sitja bara á bekknum.
Ég kveð bara NBA í bili,“ sagði
Jón Arnór Stefánsson áður en
hann hélt í rússneska sendiráðið
að ganga frá sínum málum.
smari@frettabladid.is
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Hann er á leið til Rússlands þar sem hann mun spila með
Dynamo St. Pétursborg. Hann ætlar þó að reyna við NBA-deildina á ný að ári liðnu.
Jón Arnór til Rússlands
Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaðurinn snjalli, er á leið til
Dynamo St. Petersburg í Rússlandi. Dallas Mavericks á forkaupsréttinn.
ÓLYMPÍULEIKAR Það er ekkert lát á
lyfjahneykslunum á Ólympíu-
leikunum í Aþenu. Greint var frá
því í gær að Kamerúninn,
Francoise Mbango Etone, sem
bar sigur úr býtum í þrístökki
kvenna á mánudagskvöld, hafi
fallið á lyfjaprófi. Gullið í þeirri
grein mun því fara til Grikkja,
því það var gríska stúlkan,
Hrysopiyi Devetzi, sem varð önn-
ur á eftir Etone.
Í öðrum lyfjahneyklisfréttum
frá Aþenu bar það hæst að ung-
verski lyftingamaðurinn, Zoltan
Molnar, var rekinn heim í gær
fyrir að mæta ekki í lyfjapróf og
er hann tíundi lyftingamaðurinn
á Ólympíuleikunum sem lendir í
lyfjaveseni. ■
Vilt þú ganga
í blaðberaklúbbinn?
Nú vantar okkur fleiri blaðbera fyrir Fréttablaðið
og DV. Athugaðu hvort það sé laust í þínu
hverfi, virka daga eða um helgar.
Ef þú vilt eiga möguleika á að vera í sigurliðinu þá
endilega hafðu samband við okkur.
UM HELGAR:
200-40 Hlíðarvegur
Vogatunga
200-41 Álfhólsvegur
201-25 Skjólsalir
Straumsalir
Suðursalir
Sólarsalir
201-26 Glósalir
Hlynsalir
210-25 Asparlundur
Einilundur
Hvannalundur
Skógarlundur
Víðilundur
210-28 Garðatorg
Heiðarlundur
Hofslundur
Kirkjulundur
210-33 Ásbúð
210-41 Engimýri
Fífumýri
Krókamýri
Langamýri
225-01 Austurtún
Blátún
Hátún
Skólatún
Smáratún
Suðurtún
225-07 Brekkuskógar
Bæjarbrekka
Lambhagi
Miðskógar
Ásbrekka
230-07 Háteigur
Smáratún
Vesturgata
230-10 Hringbraut
Miðtún
Frétt ehf. • Skaftahlíð 24 • Dreifingarsími 515 7590
Einnig vantar okkur fólk á biðlista
Upplýsingar í síma 515 7590
GOTT EN EKKI GILT Etone féll á lyfjaprófi
og missir því ólympíugullið sitt til Grikkja.
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu í gærkvöld:
Metið í húsi á Highbury
ÁTTA MARKA MAÐUR Thierry Henry
hefur komið að átta mörkum Arsenal í
fyrstu þremur leikjum tímabilsins. AP
Enn eitt lyfjahneykslið:
Etone féll
á lyfjaprófi