Fréttablaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 46
Hillary fékk stórlúðu með humri og heimalagaða skyrtertu í eftirrétt sem hún borðaði með bestu lyst,“ segir Sveinn Sveinsson, yfirmaður veitingasviðs á veitingastaðnum í Bláa lóninu, sem þjónaði Hillary til borðs þegar hún var hér á landi um daginn. Það er ekki í fyrsta sinn sem Sveinn þjónar henni til borðs því hann gerði það einnig um árið þegar hann var yfirþjónn á Hótel Sögu og Hillary kom hingað til lands á kvennaráðstefnu. „Hillary bar af sér góðan þokka og það var ánægjulegt að afgreiða hana,“ segir Sveinn. ■ Norður, Öxin og jörðin, Mýrarljós, Dínamít og Jesús Kristur ofurstjarna – kortasalan stendur yfir Le ik á ri ð 2 0 0 4 -2 0 0 5 Svört mjólk Nítjánhundruð Grjótharðir Blindi fiðluleikarinn eftir Vasílij Sígarjov eftir Alessandro Baricco eftir Hávar Sigurjónsson eftir Marie Jones Böndin á milli okkar Koddamaðurinn Rambó 7 eftir Kristján Þórð Hrafnsson eftir Martin McDonagh eftir Jón Atla Jónasson eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur leikgerð Hilmars Jónssonar eftir skáldsögu Ólafs Gunnarssonar eftir Marina Carr Ævintýraheimur H.C. Andersens. Barnaleikrit eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason eftir Birgi Sigurðsson söngleikur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice Stóra sviðið Smíðaverkstæðið Litla sviðið Áskriftarkort -þitt sæti! -þitt val! Opið kort 5 sýningar með möguleika á breytingum: 5 sýningar að eigin vali hvenær sem er leikársins Verð kr. 9.900.- Verð kr. 9.900.- Norður Öxin og jörðin Mýrarljós Klaufar og kóngsdætur Dínamít Jesús Kristur ofurstjarna Sýningar frá fyrra leikári: Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner Edith Piaf eftir Sigurð Pálsson Þetta er allt að koma leikgerð Baltasars Kormáks eftir skáldsögu Hallgríms Helgasonar Græna landið eftir Ólaf Hauk Símonarson Spennandi vetur í Þjóðleikhúsinu! Tekur þátt í sýningu Davids Bowie 5. september 2004 SUNNUDAGUR Tónlistarmaðurinn David Bowie heldur úti listavef, bowieart.com, þar sem hann kynnir áhugaverða listamenn í myndlist, ljóðlist og tónlist. Myndlistarkonan Sigríður Björg Sigurðardóttir hefur verið valin ein af listamönnum vefsíð- unnar. „Ég kláraði framhaldsnám í myndlist frá Glasgow School of Art nú í vor,“ segir Sigríður sem fæst aðallega við teikningar, videoverk og málaralistina um þessar mund- ir. „Nemendur á framhaldsstigi í skólanum mínum voru kynntir á heimasíðu Davids Bowie í vetur en sérstök nefnd valdi svo sextán myndlistarmenn til að taka þátt í sýningu sem haldin verður á þeirra vegum í vor.“ Sigríður var valin til verksins. „Sýningin kallast Bloc og verður haldin í County Hall galleríinu í London í mars á næsta ári,“ segir þessi upprennandi listamaður en Sigríður er nýlega flogin af landi brott eftir að hafa haldið tvær sýn- ingar á Íslandi í sumar. Annars vegar tók hún þátt í sýningunni Draumar Dystopiu í Gallerí KlinK og BanK og hins vegar opnaði hún einkasýningu í Menningarmiðstöð- inni á Seyðisfirði. Sigríður er nú stödd í London til að opna sýninguna The Other People Show. „Sýningin fjallar um óvísindalegt samband milli manna, dýra og véla en hópur ungs fólks sýnir verkin haldin í nýju galleríi sem heitir Three Colts Gallery.“ Listahópurinn hafði upp á Sigríði í gegnum netið og bauð henni að taka þátt í sýningunni eftir að hafa skoðað verk hennar. Sigríður segir það ótrúlegt hvernig allt hafi raðast saman eftir námið en nú strax eftir sýninguna í London tekur hún þátt í spennandi verkefni í Skotlandi. „Sýningar- stjórinn Francis McKee var kom- inn með augastað á íslensku mynd- listarkonunum Ásdísi Sif Gunnars- dóttur, Gunnhildi Hauksdóttur og Gabríelu Friðriksdóttur,“ en þær hafa allar vakið athygli út fyrir landsteinana. „Ég kynntist Francis í náminu og hann fékk þá ótrúlegu hugmynd að leiða okkur íslensku stelpurnar saman. Það kom okkur öllum á óvart en sýningin verður haldin í CCA (Center of Contemporary Art) í Glasgow.“ tora@frettabladid.is MYNDLIST SIGRÍÐUR BJÖRG SIGURÐARDÓTTIR ■ Hefur verið valin til samsýningarinnar Bloc sem haldin verður í galleríinu County Hall í London á næsta ári. SIGRÍÐUR BJÖRG SIGURÐARDÓTTIR Heldur sýningu með Gabríelu Friðriksdóttur og fleiri íslenskum myndlistarkonum í Glasgow í október. HILLARY CLINTON Sveinn Sveinsson færði Hillary stórlúðu með humri og skyrtertu í eftirrétt. Þjónaði Hillary tvívegis Þráinn Bertelsson rithöfundur gerði það gott í jólabókavertíðinni í fyrra með sjálfsævisögu sinni Einhvers konar ég. Hann ætlar einnig að láta til sín taka í bókaslagnum í ár þótt það sé með nokkuð öðrum hætti. Allt bendir þó til þess að það muni gusta af Þráni á ný þar sem væntanleg sakamálasaga hans, Dauðans óvissi tími – Íslendingasaga úr nú- tímanum, er þegar farin að valda titringi þó að hún sé ekki komin úr prentun. Þeir sem séð hafa handrit sög- unnar telja það í meira lagi eld- fimt og þótt höfundurinn sverji af sér allar tengingar persóna sinna við nafngreinda Íslendinga mun ekki þurfa mikið hugmyndaflug til þess að lesa þessa nýju bók sem einhvers konar lykilróman þar sem hægur vandi er að gera sér í hugarlund að lykilpersónur og aðstæður eigi sér traustar stoð- ir í íslenskum veruleika. Ein hels- ta persóna bókarinnar er eigandi „Þjóðbanka Íslands“, í byrjun bókarinnar opnar hann útibú bankans í Sánkti Pétursborg við hátíðlega athöfn að viðstöddum forseta Íslands. Þegar menn eru komnir til Pétursborgar er rúss- neska mafían vitaskuld ekki langt undan og allt getur gerst. Tengsl Landsbankafeðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar við Rúss- land eru öllum kunn og því hljóta einhverjir að leiða getum að því að atburðarásin sé að einhverju leyti byggð á ævintýralegum upp- gangi þeirra í íslensku viðskipta- lífi. Það er JPV útgáfa sem gefur bók Þráins út, rétt eins og í fyrra, og þar á bæ virðast menn ekki ætla að taka neina sénsa. Frétta- blaðið hefur nefnilega heimildir fyrir því að handrit Dauðans óvissa tíma sé komið í yfirlestur hjá lögfræðingum sem skoða það með það fyrir augum að ganga úr skugga um að innihaldið gefi eng- um tilefni til hugsanlegra lög- sókna. ■ ÞRÁINN BERTELSSON Gerði stormandi lukku með Einhvers konar ég í fyrra og mun sjálfsagt hrista upp í bókamarkaðn- um með nýrri sakamálasögu í vetur. Ný bók Þráins hjá lögfræðingi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.