Tíminn - 21.06.1974, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.06.1974, Blaðsíða 1
v<* Auglýsingadeild TÍMANS Aðalstræti 7 WWI c 101. tölublað — Föstudagur 21. júni—58. árgangur c kostar kemst MINNA LENGRA Tékkneska bifreiða- umboðið á islandi Auðbrekku 44-46 Kópavogi Sími 42606 SANNLEIKURINN UM HÚSNÆÐISAAÁLIN: Stóraukið fjármagn í byggingasjóð ríkisins — dkvarðanir um Idnveitingar teknar í dag — enginn fótur fyrir skrifum Mbl. HHJ—Rvik. — Morgunblaðið hefur að undanförnu þyrlað upp miklu moldviðri vegna húsnæðismál- anna og gert allt, sem i þess valdi hefur staðið, til þess að vekja ugg í brjósti húsbyggjenda og einskis svifizt í þvi efni. Vegna þessa, sem og ummæla Magnúsar Torfa ólafssonar félagsmálaráðherra i sjónvarpsumræðum s.l. miðvikudagskvöld, en þar lét ráðherrann þau orð falla, að i raun réttri sé það meiri hluti húsnæðismálastjórar, sem komið hefði i veg fyrir, að handbært væri nægilegt fé til þess, að unnt væri að standa við skuldbindingarnar varðandi úthlutanir húsnæðismálastjórnarlána, sneri Timinn sér til Þráins Valdimarssonar, varaformanns hús- næðismálastjórnar og spurðist fyrir um þessi mál. Bannað — og þó leyft Engan skal undra þótt maður- inn á myndinnisé á báðum áttum. Hann lagði bilnum sínum (hepp- inn að ná I stæöi) við stööumæli á Klapparstignum, neðan við Hverfisgötu, og ætlaði að fara aö borga i mælinn, þegar hann rak augum I skilti, sem þýðir aö bannað er aö leggja þarna bil. Þarna hefur öngþveitið, sem rlkir i umferðarmálum borgar- innar, knúð borgaryfirvöld til að setja bilastæði, þar sem áður hef- ur þótt ástæða til að banna bila- stöður harðlega. Hægri höndin veit ekki, hváð sú vinstri gerir, og afleiðingin verður sú, að sama at- höfnin er bæði bönnuð og leyfð. Bflastæðin, sem þarna eru tvö, eru innan við 5 metra frá gatna- mótunum og valda þvi, að þar, sem áður voru tvær akreinar, verður ekki nema ein og hálf. — Tlmamynd: Róbert. — Mig furðar á þvi hvað Mbl. hefur skrifað dólgslega um lána- málin, sagði Þráinn, og er fáheyrður svo ósvlfinn mál- flutningur, þótt menn séu ýmsu vanir, þegar það blaö á hlut að máli. Óhætt er að segja, að ég er sammála félagsmálaráðherra, þegar hann segir, að I þessum efnum hafi siður en svo staðið upp á rlkisstjórnina að útvega fé til byggingasjóðs. Auk fastra tekjustofna sjóðsins, var þannig samþykkt á siðasta Alþingi, að 1% af launaskatti til viðbótar rynni I sjóðinn, en á einu ári næmi sú upphæð um 600 milljónum króna, að þvi að áætl- að er. Þar sem þessari skipan var á komiö frá og með 1. marz, má áætia að upphæðin nemi þegar á þessu ári 450-500 milljónum króna. Auk þessa voru geröir sérstakir samningar þess efnis, að lífeyris- sjóðirnir keyptu skuldabréf fyrir upphæð, sem svaraði 20% af ráð- stöfunarfé og þessir fjármunir koma til úthlutunar hjá Húsnæðismálastofnun. Aætlað er, að ráöstöfunarfé lifeyrissjóðanna nemi um fjórum milljöröum króna, þannig að hér er um 800 milljónir króna að ræöa. Þvi er augljóst að möguleikar á útlánum hafa rýmkað mjög frá þvi sem verið hefur. Að sjálfsögðu er rétt að taka til- lit til þess, aö kvaðir þær, sem lagðar hafa verið á byggingasjóð, hafa aukizt ár frá ári. Má þar nefna áætlun um byggingu 1000 leiguibúða, um land allt á næstu fimm árum, aukna starfsemi verkamannabústaða, hækkun lána, og aðstoð við þá, sem kaupa eldri Ibúöir, svo að nokkuð sé nefnt. — Nú hefur Mbl. haldið þvi fram I grein eftir grein með flennistórum fyrirsögnum, aö allt fé byggingasjóðs væri uppurið. Hvernig stendur á „gagnrýni” þess, ef gefa má Morgunblaðs- skrifunum slikt nafn? — Ég efast ekki um, að rótina til skrifa Mbl. má rekja til þess að framundan eru kosningar og þessar greinar eru einn þátturinn i þvi að hræöa fólk og telja þvi trú um að allt sé á heljarþröm. — Má þá segja, að Mbl. fari með staðlausa stafi i þessum efn- um? — Það er alveg óhætt aö segja það. Astæðan til þess aö ekki hef- ur farið fram úthlutun lána til þeirra, sem fengu fyrrihlutalán i september s.l. er sú, að meiri- hluti Húsnæðismálastjórnar þverskallaðist við aö taka á móti þvi fjármagni, sem samið hafði verið um frá lifeyrissjóðunum. Það er rétt, sem félagsmála- ráðherra héltfram i sjónvarpi, að það voru ekki sizt fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins I Húsnæðismála- stjórn, sem stóðu aö óeðlilegum töfum i þessu máli. Framhald á bls. 3 Þráinn Valdimarsson A eða ekki? HHJ-Rvik — Margir munu þeirr- ar skoðunar, að þeim beri undan- tekningarlaust að kjósa á sama stað i Alþingiskosningunum og þeir gerðu I sveitarstjórnar- kosningunum, en svo þarf ekki að vera. Ekki er vist, aö þeir, sem kærðir voru inn á kjörskrá i sveitarstjórnarkosningunum séu á kjörskrá á sama stað I Alþingis- kosningunum, þvi að kjörskrá i Alþingiskosningunum miöast ein- göngu við lögheimili manna, eins og þaö var hinn 1. desember s.l., en i sveitarstjórnarkosningum gilda rýmri reglur. Mönnum er þvi bent á, að huga að þvi hvort þeir séu á kjörskrá i Alþingiskosningunum, áður en kærufrestur rennur út á næstu dögum. NIÐJARNIR 150, enda húsfyllir við afmælismessuna SJ-Reykjavik. Mikið var um dýrðir i Grimsey I gær á 100 ára afmælisdegi Ingu Jóhannesdótt- ur. Húsfyllir var við hátiöamessu henni til heiðurs i Miðgaröakirkju I gærmorgun. Veður var gott og allir bátar inni, en kvöldið áður og fram á nótt var keppzt við aö vinna úr aflanum, svo allir ættu fri I gær. Veðrið var gott i Grimsey, en nokkur þokuslæðingur. Inga var hin hressasta á afmælisdaginn eftír þvi sem efni stóðu til. Ættingjar afmælisbarnsiris og nokkrir aðrir gáfu flygil i félags- heimilið i Grimsey i tilefni þessa merkisdags. Þá gáfu börn henn- ar, fósturbörn og nánasta skyldu- lið ljósabúnað i kirkjuna af sama tilefni. Afkomendur Ingu eru 150 tals- ins og eru fjórir ættliðir frá henni komnir. Siödegis var afmælisveizla i félagsheimilinu og voru enn væntanlegir afmælisgestir til ey jarinnar flugleiðis eftir hádegi i gær. Á Bandaríkjadollarinn að hækka úr 94 krónum í 193 krónur? ,,Viðreisnar”-flokkarnir fara eins og kettir i kringum heitan graut, ef þeir eru spurðir um, hvaða ráðstafanir þeir vilja gera i efnahagsmál- um. Þeir treystu sér ekki til að taka neina ákveðna afstöðu til efnahagsmálanna á nýloknu þingi, og gerðu þingið þannig óstarfhæft. Eftir það var óhjá- kvæmilegt fyrir forsætisráð- herra að rjúfa þingið og leggja málin I vald kjósenda. Einn meginþátturinn i kosninga- baráttu Sjálfstæðisflokksins hefur verið fólginn i þvi aö tala sem óljósast um stefnu flokks- ins I efnahagsmálum og þyrla upp þeim mun meira mold- viðri blekkinga og falsana um afkomu rikissjóðs, gjaldeyris- stöðuna og fjárráð fjár- festingarsjóöanna. En þótt Sjálfstæðisflokkur- inn reyni þannig að dylja efna- hagsstefnu sina, er hún eigi að siður ljós. Til þess að fá vit- neskju um hana, þarf ekki annaö en að kynna sér verk flokksins á kjörtimabilinu 1967-’71, þegar hann fór með stjórnarforustuna og réð mestu um stjórnarstefnuna. Þá var það aðalúrræði i efna- hagsmálum að fella krónuna. Fyrst var krónan felld 24. nóvember 1967 um 24,6% og svo var hún felld aftur 12. nóvember 1968 um 35.2%. Þetta þýddi það, að dollarinn var hækkaöur um 104%, en i krónutölu hækkaði hann úr 43 krónum i 88 krónur. Ef ,,viðreisnar”-flokkarnir kæmust aftur til valda og gripu til hliðstæðra gengisfell- inga og á kjörtimabilinu 1967- ’71, þá myndi dollarinn hækka úr 94 krónum, sem er sölu- gengi hans nú, og i hvorki meira né minna en 193 krónur. Það væri hliðstæð hækkun á dollarnum við þá hækkun, sem varð á honum á kjörtímabilinu 1967-1971. Hver vill gefa „viðreisnar”- flokkunum tækifæri til þess á næsta kjörtimabili að fella krónuna með þeim afleiðing- um, að dollarinn hækki um 104%, eins og átti sér stað á siöasta kjörtimabili? Menn skulu minnast þess, að sagan getur endurtekiö sig. Hver „vill vidreisnina" aftur?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.