Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 16. mai 1975. TÍMINN 3 „BLÓÐRAUTT SÓLARLAG" KVIKM YNDAÐ í DJÚPUVÍK Djúpvíkingur í einu aðalhlutverkanna SJ—Reykjavik — Nú er i athug- un aö sjónvarpsmynd veröi gerö eftir leikrit Hrafns Gunnlaugs- sonar, Blóörautt sólarlag, i Djúpuvik á Ströndum. Leikur Hrafns gerist i eyöiþorpi og er Djúpavik á margan hátt vel til kvikmyndageröarinnar fallin. Þar var eitt sinn umfangsmikil sildarútgerö og er mikiil hiuti staöarins I meira lagi eyðilegur, þó búa þar nokkrar fjöískyldur, og fann raunar leiðangur, sem fór þangað á dögunum einn aðalleikarann á staönum. Hrafn Gunnlaugsson og Egill Eövaldsson, sem væntanlega kemur til með að stjórna upptöku myndarinnar, ásamt þrem mönnum öðrum komu á þriðjudagskvöldið úr nokkurra daga heimsókn í Djúpuvik. — Við fundum þarna einmitt það sem viðþurftum á aðhalda, tóm hús, gamla sildarverksmiðju og alls kyns rangala, sagði Egill Eðvaldsson. Agli og Hrafni bar saman um að fólkið i Djúpuvik hefði verið ákaflega vinsamlegt og sam- starfsfúst og það væri ekki hvað slzt mikils virði, þar sem ekkert hótel eða önnur aðstaða er i þorpinu fyrir kvikmyndaleið- angur að búa á. — Hugsanlegt er að kvik- myndatakan geti byrjað i júni eða ágúst, ef framkvæmdirnar fá grænt ljós, sagði Hrafn Gunn- laugsson. — Ég er sannfærður um að Blóðrautt sólarlag tek- ið i Djúpuvik er ódýrasta mynd, sem sjónvarpið gæti gert miðað við efni og aðstæður. Leiðangursmennirnir mældu upp allt þorpið, kvikmynduðu og ljósmynduðu i bak og fyrir. Kostnaðaráætlun lá fyrir áður en leiðangurinn var gerður, en málið er sagt á viðkvæmu stigi hjá forráðamönnum sjónvarps. Hrafn fékk sem kunnugt er mill- jón króna styrk frá Mennta- málaráði til að gera myndina, en kostnaður við slikar myndir er fljótur að hlaupa á milljónum svo sem kunnugt er frá Lén- harði fógeta og þvi er trúlegt að útvarpsráðsmenn og forráða- menn sjónvarps séu uggandi. Að sögn Hrafns eru leikarar aðeins fjórir auk þess sem fannst á staðnum? Óeðlilega mlkill verðmunur á farþega- og leiguflugi — segja forráðamenn Flugleiða Gsal-Reykjavik — Mikiar um- ræöur hafa oröiö á þingi um rikis- ábyrgö fyrir Flugleiöir hf., en máliö hefur enn ekki veriö til lykta leitt þar. Ýmis mál hafa spunnizt inn I þær umræöur á þingi, m.a. samkeppni feröaskrif- stofanna, sem leitt hefur til stór- iækkunar á fargjöldum til sólar- landa. Flugleiöir eiga þátt I þeirri samkeppni, þvi aö þær greiddu veg tveggja feröaskrifstofa I þá átt aö lækka fargjöldin, — og ferö nemenda Tónlistarskólans til Vínar, sem var boöin á 15.000 kr., sem er margfalt lægra verö en Flugleiöir bjóöa i sinu áætlunar- flugi. Að tilvisan stjórnarformanns Flugleiða hafði Timinn tal af Martin Petersen, framkvæmda- stjóra markaðsdeildar. Hann sagði, að verið væri að taka hlutina úr samhengi, þegar rætt væri um ferðina til Vinar. Að þvi er hann bezt vissi hefði i þvi tilviki verið búið að leigja vélina fyrir hóp frá Austurriki til Is- lands, og hefði hún ella flogið tóm út. Varðandi sólarlandaferðirnar sagði Martin, að forráðamenn beggja ferðaskrifstofanna hefðu gefið skýringar á þvi, þar sem fram hefði komið, að þeir hefðu sjálfir gert ákveðnar ráðstafanir hvað snerti þeirra eigin útreikn- inga, sem hefðu breytt verðinu. — Flugleiðir eiga ekki stærstan þátt I þessu máli. Þær eiga kannski einhvern þátt i þvi, en mér finnst, að of stór orð hafi ver- ið notuð um það, að við höfum verið að undirbjóða. Að sjálf- sögðu gæta allir sinna hagsmuna, og ég geri ráð fyrir að Otsýn og Úrval hafi verið að gæta sinna hagsmuna í sambandi við Sunnu- ferðaskrifstofurnar og Landsýn, sem voru, áður en þetta kom til, búnar að undirbjóða bæði fJtsýn og Orval. Martin kvað það vera skoðun forráðamanna Flugleiða, að mjög óeðlilegur munur væri orðinn á, annars vegar áætlunarflugi og hins vegar leiguflugi. Við inntum Martin eftir þvi, hvort hann teldi, að Flugleiðir myndu reyna að draga sig út úr samkeppni ferðaskrifstofukóng- anna^ eftir að þeir fengju rikisá- byrgð til lagfæringar rekstrar- stöðu sinnar. Kvaðst hann ekki geta talað um stefnu Flugleiða á þessu stigi málsins, þar eð þau mál hefði ekki borið á góma enn. Tlminn innti Kristján Guð- laugsson, stjórnarformann Flug- leiða eftir hans áliti á framkomnu boði forstjóra ferðaskrifstofunnar Sunnu, þess efnis að yfirtaka eitt- hvað af áætlunarflugi Flugleiða, til að sýna fram á, að hann gæti boðið lægri fargjöld en nú standa til boða. — Það er bara snakk. Það vita allir, að hann flýgur ekki fyrir 12 þús. kr. milli íslands og Norður- landanna. Það er útilokað, þótt hann hafi fulla vél, þvi þá hefði hann rétt fyrir eldsneytiskostn- aöi. Svona fullyrðingar eru bara til að hlæja að. Kristján kvað það algjöran misskilning, sem fram hefði kom- ið hjá einum þingmanna, en hann hélt þvi fram, að ekki hefði tekizt aö fá upplýsingar um eignir fé- lagsins erlendis. Nefnd sú, sem skipuð var af hinu opinbera, hefði haft fullan aðgang að öllum þeirra bókum og reikningum, þannig að engu væri verið að leyna. Kristján taldi eðlilegt, að rikið hefði eftirlit með rekstri félags- ins, og kvaðst telja, að þvi yrði á þann veg háttað, að félagið gæfi Seðlabankanum mánaðarlegt yfirlit um rekstur félagsins, svo og ársfjórðungslega. Þannig hefði eftirlitinu verið háttað, og kvaðst hann ekki telja, að breytingar yrðu á þvi fyrir- komulagi, þótt rikisábyrgð feng- ist. Verkfallinu í KHÍ aflétt Gsal-Reykjavik — Kennarahá- skólanemar hafa aflétt prófverk- falli sinu, án þess þó aö þeir hafi fengiö viöhlítandi lausn sinna mála, aö þvier þeir telja. Aö sögn eins nemandans afléttu þeir verk- fallinu, eftir að skólastjórnin hafðilýstþviyfir á fundi I gær, aö hún myndi lita á máliö með vel- vilja. ASÍ-fundi frestað FUNDI ASÍ, sem boðað var til i gær, var frestað, og hefur hann veriö boðaður i dag kl. 2 hjá sátta- semjara. Verkfræðingar undirrituðu bráðabirgðasamkomulag á fundi i fyrrakvöld, og var félagsfundur hjá þeim I gærkvöldi. Ekki er okkur kunnugt um að boöaöir hafi verið fundir i togara- deilunni, eftir £ð upp úr samn- ingaviðræðum slitnaði I fyrra- kvöld. Hvassafelliö er komiö tii Akureyrar, þar sem þaö biöur nú eftir aö komast I slipp. Þessa ljósmynd tók Friörik Vestmann af Hvassafellinu og brezka björgunarskipinu Lifeiine I Akureyrarhöfn i gærdag. Sjálfsvörn segir pilturínn Gsal-Reykjavik — Pilturinn, sem varð manni aö bana i Ólafsvík aöfaranótt miöviku- dags, hélt þvi fram viö yfir- heyrslur i fyrrinótt, aö verkn- aöurinn heföi veriö framinn I sjálfsvörn — en engin vitni voru aö atburöinum. Sakir þess, aö ekki liggur fyrir krufningsskýrsla, kvaöst sýslumaöurinn I Stykkishólmi ekki geta greint frá áverkum á líkinu, en vitaö væri um áverka á læri og á hálsi. Maöurinn sem lézt hét Rafn Svavarsson, til heimilis aö Bragagötu 38 í Reykjavik. AFAAÆLISHÁTÍÐ AAENNINGARVITA Á SIGLUFIRÐI JÞ-Siglufirði — A siðastliðnu ári kom fram hér á Siglufirði hug- mynd um að hefja til vegs og virðingar á ný minninguna um 20. mai 1918, en þann dag hlaut Siglu- fjörður kaupstaðaréttindi fyrir 57 árum. Fyrstu áratugina var dagurinn haldinn hátiðlegur með ýmsu móti, aðallega útihátiðarhöldum. Reynslan sýndi hins vegar, að þessi timi árs er ekki heppilegur til útihátiðarhalda hér norður frá. Af þessum og fleiri ástæðum lagöist niður allt tilhald 20. mai. Þeim, sem áhuga höfðu á endurreisn dagsins, datt i hug, að hægt væri að minnast hans með öðru móti og á annan hátt, sem ekki hefur tiðkazt áður, með þvi að efna til eins konar afmælis- menningarviku, sem bundin væri við 20. mai. Hugmyndin er i stuttu máli þessi, að tekið verði til með- feröar og flutnings ár hvert, verk einhvers listamanns, og verði það dagskrá heils kvölds bundin við 20. mat, en jafnframt verði svo höfð opin málverkasýning eins eða fleiri listmálara i heila viku. A málverkasýningunni einstök kvöld, væri svo ýms dagskráratr- iöi höfð um hönd, svo sem hljóm- list, upplestur eða erindi. Kiwanisklúbbúrinn Skjöldur beitti sér fyrir þvi á sl. ári, að skipuð var sjö manna nefnd til að sjá um undirbúning vikunnar, og eiga sæti I neíndinni fulltrúar frá þjónustuklúbbnum Kiwanis, Lions og Rotary, fulltrúi frá bæj- arst jórn, auk þriggja manna, sem eru tilnefndir 'þar fyrir utan. Undirbúningur að fyrstu vikunni, sem hefst 20. mai nk., er nú lokið, og verður fyrsta dagskráin helg- uð sr. Bjarna Þorsteinssyni, sem var þjónandi prestur á Siglufirði i 47 ár. Hátiðarsamkoma verður haldin þá um kvöldið I Nýja biói kl. 21 og verður i mörgum atrið- um. Miðvikudaginn 21. mai verður opnuð málverkasýning i Alþýðu- húsinu kl. 21, og verða þar sýnd úrvalsverk frá Listasafni Islands. Samtimis verður opnuð sýningin Islenzk grafik i Suðurgötu 10 og sýningin ísland — Islendingar i Sjálfstæðishúsinu. Sýningar þess- ar verða opnar á hverjum degi til 26. mai. og sími mesti vinnuaflsnotandi landsins POSTUR og simi er stærsti vinnuaflsnotandi hér á landi, og Samband Islenzkra sam- vinnufélaga númer tvö, eftir þvi sem fram kemur i saman- tekt tlmaritsins Frjálsar verzlunar um ,,100 stærstu fyrirtækin” á Islandi. Samkvæmt Frjálsri verzlun litur listinn þannig út (listinn er unninn úr gögnum Hagstofu Islands um vinnuaflsnotkun): 1. Pó^áur og sími. 2. Samband íslenzkra samvinnufélaga. 3. Flugleiðir. 4. Eimskip. 5. Kaupfélag Eyfirðinga (með útibúum). 6. Barna- og gagnfræðaskólar Reykjavíkur 7. Ríkisspítalar og fæðingardeild. 8. Hljóðvarp og sjónvarp. 9. Vegagerð ríkisins. 10. Borgarspítalinn. 11. íslenzka álfélagið. 12. Landsbanki íslands. 13. Sláturfélag Suðurlands. 14. Mjólkursamsalan. 15. Akureyrarkaupstaður. 16. íslenzkir aðalverktakar. 17. Landakotcspítali. 18. Rafmagnsveitur ríkisins. 19. Kleppur og Flókadeild. 20. Útgerðarfélag Akureyringa. 21. Bæjarútgerð Reykjavíkur. 22. Rafmagnsveita Reykjavíkur. 23. Stjórnsýsla lleykjavíkurborgar. 24. Kaupfélag Borgfirðinga. 25. Barnavinafélagið Sumargjöf. 26. Kaupfélag Árnesinga. 51. 27. Sjúkrahús Akureyrar. 52. 28. Olíuverzlun íslands. 53. 29. Hafnarfjarðarkaupstaður. 54. 30. Álafoss. 55. 31. Olíufélagið Skcljungur. 56. 32. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. 57. 33. Ilaraldur Böðvarsson og Co. 58. 34. Kópavogskaupstaður. 59. 35. Útvcgilbanki íslands. 60. 36. Hótel Saga. 61. 37. Kcflavíkurkaupstaður. 62. 38. ísbjörninn. 63. 39. Búnaðarbanki íslands.* 64. 40. Kaupfélag Skagfirðinga. 65. 41. Kópavogshæli. 66. 42. Aburðarverksmiðja ríkisins. 67. 43. Breiðholt. 68. 44. Slippstöðin, Akureyri. 69. 45. íshúsfél. Bolungarvíkur og Einar Guðfinnss. 70. 46. Vélsmiðjan Héðinn. 71. 47. Hraðfrystihús Ólafsvíkur. 72. 48. Landsvirkjun. 73. 49. Hrafnicla. ^4. 50. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga. 75. Sementsverksmiðja ríkisins, Akranesi. Hampiðjan. Árvakur. Landhclgisgæzlan. Götuvinna og sorphrcinsun í Rcykjavík. S.Í.B.S., Rcykjalundi. Meitillinn, Þorlákshöfn. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. Síldarvinnslan, Neskaupstað. Kassagerð Reykjavíkur. ísfélag Vestmannaeyja. Vita- og hafnarmálastjórn. Freyja, Suðureyri. 88, Skrifstofa tolhttjóra og tollgæzlan í Rvík 89. Hvalur. 90. Kaupfélag Þingeyinga. 91. Ellihcimilið Grund. Hraðfrystihús Eskifjarðar. 76. Samvinnutryggingar. 77. Mjólkurbú Flóamanna. 78. Slippfélagið, Reykjavík. 79. Seðlabanki íslands. 80. Júpiter. 81. Akraneskaupstaður. 82. Skipaútgerð ríkisins. 83. Blaðaprent. 84. Togaraafgreiðslan. 85. Þorgeir og Ellert, Akranesi. 86. Fiskiðjusamlag Húsavíkur. 87. Pálmi Jónsson (Hagkaup). 88. Miðnes. Síldarverksmiðjur ríkisins, Siglufirði. íslcnzkt verktak. Skólar í Kópavogi. 92. Flugmálastjóri. 93. Víðir, húsgagnagcrð. Silli og Valdi. 94. Kaupfélag Rangæingn. Hekla. 95. Vífilfell. Dagvistunarhcim., leiksk. og vöggust. í Rv 96. Sjúkrahús Akraness. Norðurtongi, ísafirði. 97. Barna- og gagnfræðaskólar Akurcyrar. Ölgerðin Egill Skallagrímsson. 98. Reykjavíkurhöfn. Norðurverk, Akureyri. 99. Hraðfrystistöð Reykjavíkur. Vífilsstaðahæli. 100. Vestmannacyjakaupstaður. * Útibú bankanna úti á landi vantar a. m. k. að einhverju leyti inn í myndina.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.