Fréttablaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 12
Hákon Eydal átti sér engar málsbætur og var dæmdur í sextán ára fangelsi í gær. Honum er gert að greiða börnum Sri Rahmawati nær 22 millj- ónir króna. Verjandi hans segir hann ekki geta borgað. Verði svo fær hvert 600 þúsund krónur frá ríkinu. Hákon Eydal hlaut sextán ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir morðið á Sri Rahmawati, barnsmóður sinni. Hákoni er gert að greiða börn- um Sri tæplega 22 milljónir króna í skaðabætur. Það eru hæstu bætur sem dæmdar hafa verið í morðmáli hérlendis. Verjandi Há- konar telur hann ekki geta staðið skil á kröfunni. Hann eigi hvorki til þess fé né eignir. Ragnheiður Harðardóttir saksóknari segir niðurstöðuna í samræmi við það sem búist var við. Dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar. Hákon hafði krafist sýknu en til vara vægustu refs- ingar sem lög leyfa. Hákon hefur setið í fangelsi frá því í júlí þeg- ar hann var úrskurðaður í gæslu- varðhald og dregst sá tími frá dómnum. Metskaðabætur Brynjar Níelsson, verjandi Há- konar og hæstaréttarlögmaður, segir ekki fordæmi fyrir svo háum skaðabótum til aðstand- enda. Þremur börnum Sri eru dæmdar misjafnlega háar skaða- bætur. Það elsta sem er sextán ára fær samkvæmt dómnum um 5,5 milljónir, það næstelsta sem er fjórtán ára fær 6,2 milljónir og dóttur þeirra Sri og Hákonar, sem er þriggja ára, eru dæmdar rétt rúmar tíu milljónir. Brynjar segir að Hákon geti ekki greitt börnunum bæturnar. Hilmar Ingimundarson hæsta- réttarlögmaður segir ríkið hlaupa undir bagga og greiða skaðabæturnar geri Hákon það ekki. „Börnin fá þó ekki þessa fjárhæð frá bótanefndinni því þar er hámarkið sex hundruð þúsund,“ segir Hilmar. Hægt sé að krefjast fjárnáms í eignir Há- konar. Verði það árangurslaust geti komið til gjaldþrots hans. Við lok gjaldþrotaskipta verði fyrningarfrestur kröfunnar tíu ár. Miðað við dóminn nú megi bú- ast við að Hákon sitji inni í tólf ár. Ekki slegið af dómnum Brynjar segir sextán ára fangels- isdómnum áfrýjað þar sem rök séu fyrir því að refsingin ætti að vera vægari. „Verknaðurinn er framinn í geðshræringu og ákvæði eru í hegningarlögum um að það hafi áhrif á refsingu. Á það var ekki fallist nú,“ segir Brynjar. Í dómnum er greint frá niður- stöðu geðlæknis á andlegu ástandi Hákonar. Geðlæknirinn mat hann sakhæfan og ábyrgan gerða sinna. Í áliti læknisins stendur að geðskoðun sýni ekki nein örugg einkenni sturlunar, rugls eða ranghugmynda. Skammvinn einkenni ofsóknar- hugmynda og ofskynjanir virðist hafa komið fram á einstaka tíma- bilum en Hákon hafi þá örugg- lega verið í umtalsverðri fíkni- efnaneyslu. Geðlæknirinn taldi að lýsing Hákonar á sjálfum sér stangaðist á við álit náinna ættingja hans. Einnig virtist sem Hákon hefði afneitað eða bælt mörg vandamál eða atburði sem yfir- leitt trufli samvisku venjulegs fólks. Hann áleit að Hákon hefði skýr almenn skilmerki persónu- leikatruflunar og lítið innsæi í eða skilning á hegðun sinni. Það hindraði þó ekki sakhæfi hans. Iðraðist ekki gjörða sinna Auk voðaverks Hákonar ræðst þyngd dómsins af því hvernig Hákon hagaði sér eftir morðið á Sri. Hann reyndi að afmá öll merki morðsins og segir dómur- inn meðferð hans á líkinu smán- arlega. Hann hafi einsett sér að vera lögreglunni erfiður en hafi mátt vita að upp um hann kæmist. Hákon neitaði sök framan af lögreglurannsókninni og reyndi að villa um fyrir lögreglu í leit- inni að líkinu eftir að hann hafði játað. Þetta, auk skýrslu hans fyrir dómi og í geðrannsókninni, þykir gefa til kynna að hann hafi ekki verið mjög sakbitinn eftir morðið á Sri. Sextán ár eða lífið? Sri Rahmawati var 33 ára gömul þegar hún lést. Hún var frá Indónesíu en hafði ásamt systur sinni og fjölskyldu hennar búið á Íslandi. Hákon og Sri kynntust fyrir fimm árum og bjuggu sam- an í fimm til sex mánuði. Saman eignuðust þau dóttur. Fyrir liggur að samband þeirra Sri og Hákonar gekk erfið- lega. Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík má lesa um kærur Sri á hendur Hákoni fyrir ofbeldis- verk og hótanir í hennar garð. Einnig eru til skjöl sem greina frá kvörtunum Hákonar vegna deilna þeirra á milli um um- gengni við dótturina. Hákon bar því við fyrir dómi að hann hefði myrt Sri eftir að hún hefði hótað að hann fengi ekki framar að sjá dóttur þeirra. Andleg líðan hans, misgjörðir og ranglæti Sri hefðu ollið því. Hér- aðsdómur fellst ekki á það sjónar- mið Hákonar og segir gögn máls- ins í engu styðja ásakanir hans. Hákon ósannfærandi Niðurstaða héraðsdóms er að ekki verði séð að Sri hafi misboð- ið Hákoni hinn afdrifaríka morg- un þegar hann myrti hana. Lýs- ing Hákonar á hugarástandi sínu þegar hann framdi morðið sé mótsagnakennd og ósannfær- andi. „Atlaga hans að Sri Rahma- wati var heiftarleg og bersýni- legt er, að hann ætlaði sér að svipta hana lífi. Ekki þykir þó sannað, að hann hafi ásett sér það fyrr en skömmu fyrir voðaverkið og verður að byggja á þeim fram- burði hans að hann hafi ráðist á konuna eftir að þeim varð sund- urorða,“ segir í dómnum. Sextán ár eru því talin hæfileg refsing. Lík Sri Rahmawati fannst í djúpri og þröngri hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnar- fjörð 3. ágúst, mánuði eftir að Hákon myrti hana. ■ 12 19. mars 2005 LAUGARDAGUR GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING FANGELSISDÓMUR HÁKONAR EYDAL HÁKON EYDAL SKAL SITJA INNI Í SEXTÁN ÁR Hákon vonaðist eftir vægari dómi þar sem andleg heilsa hans hefði ekki verið góð. Hann áfrýjar dómnum. Sextán ára fangelsi fyrir morð HUNDRUÐ BJÖRGUNARSVEITARMANNA LEITUÐU SRI Mánu- daginn 19. júlí 2004 leituðu þrír kafarar að Sri við Geldinganes en síð- ar varð ljóst að Hákon hafði afvegaleitt lögregluna. TÆKNIDEILD LÖGREGLUNNAR Á VETTVANGI Þriðju- daginn 6. júlí 2004 rannsakaði lögreglan íbúð Hákonar Eydal í Stórholti. Blóðsýni úr íbúð og bíl hans voru send til rannsóknar í Noregi og hann var handtekinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.