Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 28
Sumarparadís í uppgjöri
Oft nýta markaðsaðilar tækifærið á uppgjörskynn-
ingum til að spyrja ýmissa spurninga. Eftir að Frið-
rik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, og Baldur
Guðnason, forstjóri Eimskips, kynntu niðurstöður
fyrsta ársfjórðungs dundi spurningaflóðið
á þeim félögum. Meðal annars var
spurt um innleyst gengistap upp á
hátt í fimm hundruð milljónir en
það var sagt mjög dreift. Einnig var
óinnleyst gengistap að upphæð um
1.600 milljónir en það má rekja að
mestum hluta til eignarhlutarins í
Carnegie og Skandia. Einnig var spurt
um aukna skuldastöðu en skuldir fé-
lagsins hafa aukist úr 28 milljörðum í
45 milljarða á fyrsta ársfjórðungi. Einnig
kom fasteignafjárfesting á Spáni dálítið á
óvart, nema að frístundaheimili fyr-
ir forríka Íslendinga sé í far-
vatninu. Alla vega hlýtur
Björgólfur Thor að sjá tækifæri með kaupum á
sumarhúsasvæði á Spáni.
Samdráttur í Bretlandi
Bresk smásala hefur verið að dragast saman að
undanförnu. Hækkun fasteignaverðs hefur á
undanförnum misserum drifið áfram kaup-
kraft almennings í Bretlandi. Smásala dróst
saman um fimm prósent í Bretlandi í apríl
miðað við sama mánuð í fyrra. Meðal
þeirra sem hafa birt uppgjör er Somerfield
sem Baugur hyggst kaupa ásamt fjárfest-
um. Uppgjör þess ber merki þessarar þró-
unar og dróst salan saman. Matvæli verða
síst fyrir minnkandi kaupgetu almennings,
enda er hin ástæðan fyrir samdrættin-
um sögð vera harðnandi sam-
keppni og fara þar stórir
keppinautar eins og
Tesco fremstir í flokki.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.955
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 249
Velta: 2.658 milljónir
-0,13%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
28 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Konur í atvinnulífinu
bjóða í Símann.
Þeir sem skila inn óbindandi til-
boði í Símann á þriðjudaginn, þeg-
ar tilboðsfrestur rennur út, eru
ekki endilega þeir einu sem eiga
þess kost að skila inn bindandi til-
boði á seinna stigi útboðsferlisins,
segir Jón Sveinsson formaður
einkavæðingarnefndar. Tveir að-
ilar, sem óska eftir að kaupa
meira en fimmtíu prósent hluta-
fjár samanlagt, geta fengið þriðja
aðilann til liðs við. Skiptir þá ekki
máli þó að hann hafi ekki tekið
þátt í fyrra stigi útboðsins.
Jón segir ekki ljóst hvaða hóp-
ar muni vinna saman að kaupum á
Símanum. Það þurfi ekki heldur
að vera ljóst eftir að fresturinn
renni út á þriðjudaginn. Einka-
væðingarnefnd yfirfari tilboðin
og ákveði hverjir uppfylli skilyrði
til að taka þátt í seinna stigi út-
boðsins. Síðan þurfi þrír óskyldir
aðilar að koma sér saman um
sameiginlegt tilboð. Ekki sé enn
ljóst hvenær þurfi að skila því.
Það fari eftir því hversu vel gangi
að fara yfir óbindandi tilboðin og
þar ráði fjöldinn mestu.
Engum, sem er trúverðugur
tilboðsgjafi og tilbúinn að skrifa
undir trúnaðarsamning, hefur
verið neitað um útboðsgögn Sím-
ans, segir Jón.
Að minnsta kosti sjö hópar
undirbúa tilboð í Símann. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa fjórar konur úr atvinnulífinu
verið að undirbúa boð í Símann.
Stefna þær á að kaupa allt að 45
prósenta hlut í samvinnu við er-
lenda fagfjárfesta. Hefur Áslaug
Magnúsdóttir, lögfræðingur og
starfsmaður Baugs í Bretlandi,
farið fyrir hópnum. Hún mun
samt ekki taka sjálf þátt í tilboð-
inu.
Burðarás hefur líka verið að
íhuga tilboð eins og margir aðrir.
Friðrik Jóhannsson forstjóri segir
félagið í góðri stöðu til að skuld-
setja sig og kaupa hlut í Símanum.
Hann vildi þó ekki staðfesta að
það stæði til og sagði það koma í
ljós á þriðjudaginn.
– bg
Peningaskápurinn…
Actavis 40,30 – ... Atorka 5,95 -0,80%
... Bakkavör 33,70 +0,60% ... Burðarás 13,35 -1,10%... FL Group 14,35 -
0,40% ... Flaga 5,10 -1,00% ... Íslandsbanki 12,95 -0,40% ... KB banki
525 +0,60% ... Kögun 62,40 – ... Landsbankinn 15,80 -0,60% ... Marel
55,80 -0,20% ... Og fjarskipti 4,17 +0,50% ... Samherji 12,10 – ...
Straumur 11,40 -0,40% ... Össur 79,50 -0,60%
Óbindandi tilboð ekki
skilyrði fyrir þátttöku
Bakkavör +0,60%
KB banki +0,57%
Og fjarskipti +0,48
Síminn -2,56%
Nýherji -1,21%
Burðarás -1,11%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Íslensk erfðagreining (ÍE) og
samstarfsaðilar hafa birt niður-
stöður prófana á hjartalyfinu
DG031 í tímaritinu JAMA, sem
bandarísku læknasamtökin gefa
út. Niðurstöðurnar sýna meðal
annars að hjartalyfið DG031 dreg-
ur úr þekktum áhættuþáttum hjá
þeim sem hætt er við hjartaáföll-
um.Niðurstaðan er ekki síður
merkileg fyrir þær sakir að
hjartalyfið er afrakstur mikilla
rannsókna á erfðamenginu og
gæti opnað leið að frekari fram-
þróun við lyfjagerð fyrir þá sem
haldnir eru einhvers konar erfða-
göllum.
Gengi hlutabréfa í deCode
genetics, móðurfélagi ÍE, tók
stórt stökk upp á við eftir að frétt-
in birtist og hækkuðu bréfin um
sjö prósent. Hluturinn fór yfir
átta dali á hlut og hefur því hækk-
að um 40 prósent frá síðustu mán-
aðamótum. Gengi bréfa í deCode
fór hæst í 9,25 dali á hlut á síðasta
ári en lægst fóru þau niður í 5,09.
Það vantar því lítið upp á að félag-
ið nái hæsta verði á undanförnu
ári. - eþa
Vaxandi áhugi á sumar-
húsum.
Burðarás á 21 prósents hlut í AB
Capital ehf. sem er fasteignafélag
á Spáni. Kaupverð hlutarins var
12,5 milljónir evra eða um millj-
arður íslenskra króna. Um er að
ræða 190 hektara landsvæði sem
stjórnendur Burðaráss segja
bjóða upp á mikla möguleika.
Landsvæðið er í héraðinu Murcia
og er nálægt Mar Menor innhaf-
inu. Áhugi á sumarhúsum á Spáni,
sem annað heimili, hefur farið í
vöxt.
Á kynningu á uppgjöri Burðar-
áss kom fram að félagið teldi AB
Capital áhugavert fjárfestingar-
verkefni til lengri eða skemmri
tíma. - dh
Rannsóknir á nýju hjartalyfi:
Dregur úr hjartaáföllum
ÍSLENSK ERFÐAGREINING Vísinda-
menn frá Íslenskri erfðagreiningu og sam-
starfsaðilar hafa birt rannsóknir á nýju
hjartalyfi í tímariti bandarísku læknasam-
takanna. Gengi deCode hefur rokið upp á
síðustu dögum.
Bur›arás á
landsvæ›i á Spáni
SUMARHÚS Á SPÁNI Annað heimili í
suðrænum löndum lokkar.
JÓN SVEINSSONFORMAÐUR EINKAVÆÐINGARNEFNDAR Tilboðsgjafar hafa sex daga til að skila inn óbindandi tilboðum í Símann.
Viðskiptahalli í Bandaríkjunum
var 55 milljarðar dala í mars eða
yfir 3.500 milljarðar króna. Þetta er
mun minni halli en gert hafði verið
ráð fyrir. Hefur innflutningur ekki
verið minni í einum mánuði í fjög-
ur ár.
Tap Líftæknisjóðsins á fyrsta
fjórðungi ársins nam 13,7 milljón-
um króna samanborið við 12,9
milljón króna hagnað á sama tíma-
bili 2004. Innleyst tap tímabilsins
var 4,7 milljónir króna samanborið
við 5,7 milljón króna tap á sama
tíma í fyrra.
Netia, fyrirtæki Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur frest til
mánudags til að ákveða hvort það
tekur við leyfi til rekstrar farsíma-
nets fyrir þriðju kynslóð farsíma í
Póllandi.