Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 12. maí 2005
Ofurfyrirsæta
hannar undirföt
HIN ÁSTRALSKA ELLE MCPHERSON
KYNNIR NÝJA UNDIRFATALÍNU.
G-STRENGIR FYLGJA EKKI LÍNUNNI.
Ástralska ofurfyrirsætan Elle McPherson
var í London á dögunum þar sem hún
kynnti nýja undirfatalínu sem hún hef-
ur hannað. Elle hefur haft yfirumsjón
með hönnun hverrar flíkur auk þess að
prófa hverja og eina spjör. Hún hafði
undirfatatísku frá miðri síðustu öld til
hliðsjónar við hönnunina.
Elle segir það
hafa verið
meginmark-
mið sitt að
hanna undir-
fatnað sem
hentar sem
flestum kon-
um – undirföt
þurfi að hafa
þrjá eigin-
leika; vera
þægileg, fal-
leg á að líta og á viðráðanlegu verði.
Þessu marki telur Elle sig hafa náð.
Sjálf segist hún hætt að ganga í g-
streng enda sé hún ekki lengur tvítug.
„Ég vil framleiða undirföt sem fellur öll-
um konum í geð,“ segir þessi geð-
þekka fyrirsæta frá Ástralíu.
NÝBÝLAVEGUR 12,
KÓPAVOGUR
SÍMI 554 4433
Opnunartími virka daga
10-18
og laugardaga 10-16
Flott föt
á allar
konur
Tískuhönnuðurinn, Carolina Herrera, tók þessa mynd af brúðhjónunum glænýju.
Renee Zellweger tók upp á því
öllum að óvörum að ganga í það
heilaga á Jómfrúreyjum á mánu-
daginn var. Renee hefur löngum
haldið tryggð við tískuhönnuðinn
Carolinu Herrera og það var að
sjálfsögðu hún sem hannaði brúð-
arkjólinn. Blessunin hún Bridget
Jones hefði nú tæplega komist
með annað lærið í þennan kjól
sem er níðþröngur og sýndi vel
hvað Renee hefur tekist að losa
sig við Bridget. Renee hefur
einkar fallegar axlir og sýnir þær
gjarna þegar hún vill líta einkar
vel út og það gerði hún svo sann-
arlega í þetta sinn. Kjóllinn var
með gamaldags hafmeyjusniði,
þröngur og aðsniðinn niður á mið
læri en víkkaði svo út með klauf
svo hin berfætta brúður gat svif-
ið þokkafull niður ströndina
ásamt sínum útvalda, sveita-
söngvaranum Kenny Chesney .
Hönnun Carolinu Herrera er á
sígildum nótum og klæðir hina
grannvöxnu Renee Zellweger
einkar vel enda skrýðist hún
kjólum Herrera við hvert tæki-
færi.
Berfætt brúður blikar af sælu
Glæsileg hönnun Carolinu Herrera naut sín vel á ströndinni.
Elle með soninn Arpad.
Ljósblá undirföt úr
smiðju Elle McPherson.