Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 62
> Plata vikunnar ...
HILDUR VALA:
Hildur Vala
„Það á greinilega
vel við Hildi Völu
að syngja róleg lög
þar sem gullfalleg
rödd hennar nýtur sín svo vel. Þó að
lögin á plötunni séu ekki öll jafngóð
hífir Hildur Vala þau flest upp til
skýjanna með söng sínum.“ FB
46 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Strákarnir í hljómsveit-
inni Lokbrá eru skraut-
legir félagar sem lýsa
grúppunni sinni sem einu
stóru hjónabandi. Með-
göngutími fyrsta af-
kvæmis þeirra er nú orð-
inn alllangur og loksins
er komið að fæðingunni.
Borghildur Gunnarsdótt-
ir spjallaði við Baldvin
Albertsson hljómborðs-
leikara.
„Platan heitir Army of Soundwa-
ves og er nafnið eins konar vís-
bending að einhverju stóru sem
er á leiðinni og kemur bara í ljós
seinna,“ segir Baldvin Alberts-
son dularfullur.
„Tónlistin okkar er einhvers
konar málamiðlun á milli eldri
tónlistar og yngri. Það hefur oft
verið sagt við okkur að við séum
mikið að berjast á milli kynslóða
í tónlistinni eins og einhvers kon-
ar vitstola tímavél. Það mætti
segja að tónlistin sé svona gamal-
dags nútíma tölvuleikja
hipparokk. Upptökustjórinn,
Birgir Örn Steinarsson, vildi ná
frekar hráu sándi á plötunni en
samt eins konar framtíðarfílingi
og ég held að það komist nokkuð
vel til skila og við gætum ekki
verið hamingjusamari með frum-
burðinn.“
Fyrsta barnið fætt
Hljómsveitin hefur í þrjú ár
verið í samskonar mynd og hún
er núna. „Við erum í rauninni
búnir með stúdentinn núna þegar
platan er komin út og höfum ver-
ið að dimmitera í þrjú ár. Við
erum allir orðnir rosalega góðir
vinir og erum í rauninni eins og
eitt stórt hjónaband og fyrsta
barnið fæðist í dag,“ segir hann
og á að sjálfsögðu við nýju plöt-
una sem gefin er út af útgáfufyr-
irtækinu MSK.
„Þetta eru Þorkell Máni Pét-
ursson og fleiri sem eru þarna
með ekta lítið útgáfufyrirtæki
sem er reiðubúið að taka áhættur.
Platan mun fást í öllum betri
hljómplötubúðum og kannski
Hagkaup. Svo koma bráðum Lok-
brár-dúkkur, við erum í samn-
ingaviðræðum við japanska
framleiðendur,“ segir Baldvin en
því miður er lítil alvara í rödd-
inni.
Lýðræðið ríkir
Strákarnir semja lögin í sam-
einingu en það er Trausti Laufdal
Aðalsteinsson, söngvari sveitar-
innar, sem semur textana en auk
þeirra Baldvins eru þeir Óskar
Arngrímsson trommari og Oddur
Ingi Þórsson bassaleikari í
hljómsveitinni. “Það er mikið
lýðræði sem ræður ríkjum hjá
okkur og við gerum þetta allt í
sameiningu. Lögin fæðast flest á
æfingum í litla gluggalausa og
loftlausa herberginu okkar uppi á
höfða. Ef það koma fleiri en átta
þangað inn þá verður alvarlega
loftlaust og vanalega fer allavega
einn aðili upp á sjúkrahús vegna
súrefnisskorts. En þetta er það
sem við viljum gera svo við lát-
um okkur hafa það.“
Aðspurður hvort hann eigi
eitthvert uppáhaldslag á plötunni
segir hann: „Þetta er svolítið
þannig að sum hjón eiga þrjú
börn og halda upp á eitt en vilja
ekki gefa það upp hvaða barn er í
uppáhaldi. Það er líka þannig
með okkur, við erum voðalega
hjátrúarfullir og viljum ekki tala
um svona lagað.“
Strákarnir fóru í myndatöku
úti í hinni íslensku náttúru og
prýðir afraksturinn af þeirri
myndatöku plötuumslagið nýja.
„Við fórum þarna með honum
Sigurjóni Árna ljósmyndara og
vorum pínu þunnir og kjánalegir
að labba í blautum sandi og við-
bjóði og urðum eiginlega allir
kvefaðir eftir á. Þetta er nú ekki
beinlínis landkynning en það sést
þarna falleg íslensk náttúra á
plötuumslaginu og útkoman er
bara nokkuð töff.“
Stop the Music
Fyrsta lag plötunnar er nú
þegar farið í spilun og er það lag-
ið Stop the music. „Lagið fór í
spilun fyrir rúmlega mánuði og
við reynum að troða fleiri lögum
í spilun á næstunni. Myndbandið
við lagið er líka farið að sjást á
Popptíví. Þetta er okkar fyrsta
myndband og fyrir það dressuð-
um við okkur bara upp eins og
fífl og mættum upp í Norðurljós
með glimmervél og fullt af ljós-
um og mæmuðum eins og vitleys-
ingar. Við erum ánægðir með út-
komuna og við erum líka orðnir
rosalega góðir í að mæma.“
Aðspurður hver tilfinningin sé
nú þegar platan er komin út seg-
ir Baldvin: „Þetta er rosalega
skrýtið því þetta eru búin að vera
okkar lög í svo langan tíma en
núna verður platan svona al-
menningseign. En það er allt í
lagi, við erum alltaf að vinna í
nýrri músík hvort sem er.“ ■
Eins og vitstola tímavél
HLJÓMSVEITIN LOKBRÁ Þeir félagar senda nú frá sér sína fyrstu breiðskífu sem nefnist Army of Soundwaves. Þeir félagar eru eitt stórt
hjónaband sem að þeirra eigin sögn hefur nú fætt sitt fyrsta barn og nú tekur við heljarinnar uppeldi. Fyrsta lag plötunnar er nú þegar
komið í spilun á öllum betri útvarpsstöðum og er það lagið Stop the Music.
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Hildur Vala: Hildur Vala, Weezer: Make Believe, Vax:
EP, Svona er Eurovision: 44 vinsæl Euruvision lög,
Eurovison Song Contest: Kiev 2005 og Pan: Virgins.
>
W
ee
ze
r
>
H
ildur Vala
The Spell kemur út 30. maí
> Popptextinn ...
„Look at all those movie stars
They’re all so beautiful and clean
When the housemaids scrub the floors
They get the spaces in between“
Rivers Cuomo, söngvari
Weezer, öfundast út í hinar
vel snyrtu Hollywood-
stjörnur í laginu Beverly
Hills af nýju plötunni
Make Believe.
BYRJAR AFTUR AF KRAFTI
FÖSTUDAGINN ÞRETTÁNDA MAÍ
Hljómsveitin Leaves sendir frá sér smá-
skífuna The Spell 30. maí. Lagið er tekið
af annarri plötu sveitarinnar, The Angela
Test, sem kemur í búðir 15. ágúst.
Á smáskífunni verður einnig að finna nýtt lag sem
nefnist Do I Sink? og Till I Die sem er eftir gömlu
popparana í Beach Boys. Tónleikaferð Leaves um
Bretland hófst síðastliðinn laugardag í Bristol þar
sem þeir hituðu upp fyrir Thirteen Senses. Tón-
leikaferðin stendur yfir til 31. maí en frá hvíta-
sunnudeginum 15. maí mun Leaves hita upp fyrir
hina heimsfrægu hljómsveit Supergrass.
Leaves opnaði fyrir skömmu nýja heimasíðu sem
er afar vel úr garði gerð og sýnir svo ekki verður
um villst að vel hefur verið hugsað um strákana
eftir að þeir gerðu fimm plötu samning við Is-
land/Universal í Bretlandi.
Upptökustjóri Leaves á nýju plötunni var Marius
Devries sem hefur áður unnið að plötunum Post
og Debut með Björk og Protection með Massive
Attack, auk þess sem hann var tilnefndur til
Grammy-verðlaunanna fyrir vinnu sína við plötuna
Ray of Light með Madonnu.
LEAVES
Hljómsveitin Leaves er um þessar mundir í tónleika-
ferð um Bretland.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N