Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
GSM Heimasími Internet
Og1 er ný þjónusta Og Vodafone sem lækkar kostnað
heimila verulega og færir þeim rausnarlegan ávinning.
0 KR. HEIM
Nú hringja allir heim úr GSM án þess að
greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hvert GSM númer fær 120 mínútur á mánuði
í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir GSM áskrift er 600 kr.
Gildir fyrir Frelsisnotendur með
500 kr. Frelsisáskrift.
0 KR. INNANLANDS
500 mínútur í aðra heimasíma eru innifaldar í
mánaðargjaldi. Flestir tala minna en í 500
mínútur á mánuði á milli heimasíma og greiða
því ekkert mínútugjald.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hver Heimasími fær 120 mínútur á mánuði í
heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir Heimasíma er 1.340 kr.
MEIRI HRAÐI, FRJÁLST NIÐURHAL
OG VERÐÞAK
Þú átt þess kost að fá 6Mb/s ADSL og
ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði
eða 4Mb/s ADSL og 1GB niðurhal fyrir 3.990
kr. á mánuði.
ADSL hraði miðast við þjónustusvæði
Og Vodafone.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM áskrift, Heimasíma og Internet, geta skráð sig í Og1.
Þeir sem eru með síma eða nettengingu frá vinnuveitanda ættu einnig að kynna sér Og1.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
81
26
04
/2
00
5
BÆNIR
Ég sá athyglisverða frétt í blaði ívikunni um nýlegar rannsóknir á
bænum. Þar komu fram ótvíræð
tengsl á milli bænar og betri vellíð-
unar. Fólk sem biður reglulega líður
betur en þeim sem biðja ekki. Þessi
niðurstaða gengur þvert á skoðanir
margra lækna og vísindamanna,
sem eru oftast fólk sem því miður
hefur oft litla reynslu af bænum og
heldur að gáfur og vísindi séu lausn-
in á lífsgátunni.
Það er sama hversu góður maður er,
maður getur aldrei allt. Enginn lækn-
ir getur læknað alla. Allir boxarar,
hversu góðir sem þeir eru, verða rot-
aðir fyrr eða síðar. Það er sama
hversu klár maður er að leysa vanda-
mál, einn daginn mun maður standa
frammi fyrir vandamáli sem maður
getur ekki leyst. Og gáfumenn munu
standa á gati og ekki vita hvað þeir
eiga að gera.
ÉG FÓR að biðja reglulega fyrir um
tveimur árum. Það hafði undraverð
áhrif á líf mitt og líðan. Ég nota bæn-
ina við lausn vandamála, andlegra
jafnt sem veraldlegra. Ég bið fyrir
öllu. Ég hef losnað við ótta og öðlast
áður óþekktan frið. Ég hef betri ein-
beitingu, betra minni og meiri hæfni
til samskipta. Bænin hefur líka gert
mig gáfaðari. Mér var einu sinni
kennt að ég ætti alltaf að snúa mér til
hæstráðanda en ekki tala við undir-
tyllur. Það er kjarni minnar bænar.
ÞAÐ ER til annað vitundarstig en
það sem við þekkjum í hinum áþreif-
anlega efnisheimi. Það er þaðan sem
við komum og þangað förum við
aftur. Þar er okkar raunverulega
heimili. Þar býr okkar innsti kjarni.
Hluti af okkur er alltaf þar. Og þar
eru allar manneskjur samtengdar og
jafnar. Þar er enginn tími.
ÉG GET beðið fyrir einhverjum sem
er langt í burtu. Bænin er hafin yfir
fjarlægðir. Í heimi bænarinnar eru
engar fjarlægðir, enginn tími. Ég get
beðið fyrir þeim sem eru látnir eða
jafnvel ekki ennþá fæddir. Í bæninni
tala ég við minn innsta kjarna.
BÆNIN ER auðveld. Hún er ekki
hugmynd eða orð heldur afstaða. Hún
er ekki sefjandi blekkingartæki fyrir
kjána. Máttur bænarinnar er máttur
auðmýktarinnar. Hann er leyndar-
dómur. Bænin er án takmarka. Ég
skil ekki hvernig bænin virkar, ég
veit bara að hún gerir það. Bænin er
vatn sálarinnar. Sá sem treystir á
bænina stendur aldrei á gati.
jongnarr@frettabladid.is
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR