Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 6
6 18. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Sjö manna fjölskylda frá Kosovo komin til Reykjavíkur:
Fyrstu flóttamennirnir komnir
FJÖLMENNING Fyrstu flóttamenn-
irnir á þessu ári komu til landsins
um hádegi í gær en alls verður
tekið við þrjátíu og einum á þessu
ári.
Þennan fyrsta hóp skipar sjö
manna fjölskylda frá Kosovo en
hún hefur búið síðustu ár í flótta-
mannabúðum í Bosníu.
Að sögn Atla Viðars Thorsten-
sen hjá Rauða krossi Íslands er
svo von á konum og börnum frá
Kólumbíu í næsta mánuði en alls
munu tuttugu og fjórir flóttamenn
koma þaðan í tveimur hópum.
Reykjavíkurborg mun hafa um-
sjón með fólkinu fyrst um sinn.
Að sögn Drífu Kristjánsdóttur
hjá velferðarsviði Reykjavíkur-
borgar munu þeir sem eru á
grunnskólaaldri fara í Austurbæj-
arskóla en þeir sem eru á aldrin-
um 18 til 23 ára munu nema við
nýbúadeild Iðnskólans. Þeir sem
eldri eru munu hins vegar læra ís-
lensku og samfélagsfræði í full-
orðinsfræðslu en það nám stendur
í níu mánuði og er kennt fjórar
klukkustundir á dag.
Atli segir að um það bil sextíu
sjálfboðaliðar á vegum Reykja-
víkurdeildar Rauða krossins muni
hafa þann starfa að aðstoða fólkið
við að aðlagast aðstæðum hér á
landi.
- jse
Ekkert lát er á róstunum í Írak:
Á fimmta tug Íraka bei› bana í árásum
BAGDAD, AP 43 Írakar biðu bana í
þremur bílsprengjuárásum í
Bagdad í gær og 89 slösuðust.
Þetta eru mannskæðustu árásir
sem gerðar hafa verið í höfuð-
borginni í margar vikur.
Allar árásirnar voru gerðar á
fjölförnum stöðum á háannatíma.
Fyrsta sprengjunni var beint að
lögreglumönnum fyrir framan
Nahda-rútustöðina í miðborginni
en sú næsta sprakk örskömmu
síðar í bílageymslu stöðvarinnar
en þaðan leggja rútur af stað til
Basra og Amarah, tveggja fjöl-
mennra sjíaborga. Mikil skelfing
greip um sig á stöðinni og mátti
sjá limlest lík og stórslasað fólk
hvarvetna. Sú þriðja sprakk svo
nærri Kindi-sjúkrahúsinu þegar
rúmur hálftími var liðinn frá til-
ræðunum en þangað var verið að
flytja marga hinna slösuðu.
Enginn hefur lýst ábyrgð á
hendur sér en lögregla handtók
fjóra menn í tengslum við árás-
irnar í gær.
Þá dóu þrír í sprengjuárás í
borginni Fallujah síðdegis í gær.
Tveir hinna látnu voru börn.
Íraskir stjórnmálaleiðtogar
hófu að funda á ný um stjórnar-
skrá landsins eftir að viðræðurn-
ar fóru út um þúfur á mánudags-
kvöldið. Nái þeir ekki samkomu-
lagi um inntak hennar fyrir
næsta mánudag verður þingið
leyst upp og boðað til nýrra kosn-
inga. ■
Mótmælendur kæra
Andstæ›ingar virkjunar og álvers segja lögreglu leggja mótmælendur í einelti
og beita flá har›ræ›i. Hyggjast fleir fara fram á opinbera rannsókn á starfs-
a›fer›um lögreglunnar.
LÖGREGLUAÐGERÐIR Mótmælendur
Kárahnjúkavirkjunar og álvers í
Reyðarfirði hyggjast í dag leggja
fram kæru hjá Ríkissaksóknara
vegna framkomu og vinnubragða
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu og á Austurlandi. Segjast þeir
hafa verið lagðir í einelti af ein-
kennisklæddum og óeinkennis-
klæddum lögreglumönnum og þurft
að sæta meðferð sem væru þeir
hryðjuverkamenn. Jafnframt hafa
þeir falið lögmönnum sínum að and-
mæla úrskurði Útlendingastofnun-
ar um hugsanlega brottvísun þeirra
erlendu mótmælenda sem hand-
teknir voru á Austurlandi í þremur
lögregluaðgerðum á tímabilinu 26.
júlí til 4. ágúst en þeir voru 21 tals-
ins.
Birgitta Jónsdóttir, einn tals-
manna mótmælenda, segir um
helming þeirra erlendu mótmæl-
enda sem handteknir voru á Austur-
landi farna úr landi og þeir verði
allir horfnir af landi brott um næstu
mánaðamót. Brottvísun hafi því
engan tilgang annan en að tryggja
að þeir geti ekki komið hingað aftur
næstu árin.
„Lögregluyfirvöld hafa ítrekað
brotið grundvallarmannréttindi
okkar og því munum við fara fram á
að aðgerðir lögreglunnar sæti opin-
berri rannsókn. Sum okkar hafa
verið handtekin fyrir engar sakir og
í fyrradag þvinguðu óeinkennis-
klæddir lögreglumenn sér leið inn í
húsnæði í Reykjavík, þar sem hluti
mótmælenda hefur dvalist undan-
farna daga, með því að hóta að
brjóta upp útidyrnar,“ segir
Birgitta.
Gísli M. Auðbergsson, lögmaður
á Eskifirði og annar tveggja lög-
manna mótmælenda, segir ljóst að
lögreglan á Austurlandi hafi einnig
gengið hart fram gegn mótmælend-
um. „Mér finnst fyllsta ástæða til að
láta reyna á lögmæti þeirra aðgerða
og er ég að undirbúa það,“ segir
Gísli.
Katrín Theódórsdóttir, lögmaður
eins erlendu mótmælendanna,
óskaði í gærmorgun eftir þeim
gögnum frá Útlendingastofnun sem
úrskurður stofnunarinnar um hugs-
anlega brottvísun byggir á en segist
ekki hafa fengið nein svör. „Jafn-
framt óskaði ég í gær eftir gögnum
frá sýslumannsembættinu á Eski-
firði en var tjáð að sökum anna væri
ekki hægt að senda þau fyrr en í
dag,“ segir Katrín.
Hvorki náðist í yfirmenn Útlend-
ingastofnunar né Þóri Oddsson
vararíkislögreglustjóra vegna
málsins í gær.
kk@frettabladid.is
Söfnun handa flóttamönnum:
Gáfu nær alla
búsló›ina
SÖFNUN Hjónin Ísleifur Marz Berg-
steinsson og Andrea Þórðardóttir
gáfu nær alla sína búslóð í söfnun
Rauða kross Íslands fyrir flótta-
fólk sem setjast mun að hér á landi.
Að sögn Sólveigar Hildar
Björnsdóttur, verkefnisstjóra hjá
Rauða krossinum, sögðust hjónin
sem eru á sextugsaldri vilja hefja
nýjan kafla í sínu lífi án þess að
vera að draga allt það gamla með
sér, en þau eru að flytja úr einbýl-
ishúsi yfir í íbúð.
Sólveig segir að fólkið hafi tekið
þessa ákvörðun þegar það heyrði
að von væri á einstæðum mæðrum
hingað til lands sem flóttamönnum.
- jse
Reiðir Nígeríumenn:
Loku›u
dælustö›
NÍGERÍA, AP Hundruð reiðra íbúa
þorpa við óshólma Níger-fljótsins í
Nígeríu lokuðu einni af dælustöðv-
um Royal Dutch Shell olíufélagsins
á svæðinu í gær og þar með dróst
olíuframleiðsla landsins saman um
10.000 föt á dag.
Mikill olíuleki varð á þessum
slóðum fyrir hálfu öðru ári og
finnst fólkinu skaðabótatilboð
Shell heldur snautlegt, en það er
rúmlega sextíu þúsund krónur.
Talsmenn fyrirtækisins segja hins
vegar að bæturnar séu í samræmi
við það sem gerist í Nígeríu.
Nígería er langstærsti olíufram-
leiðandi Afríku og er mestum hluta
olíunnar dælt upp við ósa Níger. ■
VÍTISVÉL Lögreglumenn í Dakka skoða
sprengju sem var aftengd í borginni í gær.
125 slasaðir:
Tveir létust
í árásarhrinu
DAKKA, AP 350 sprengjur voru
sprengdar nánast samtímis um
allt Bangladess í gær. Tveir eru
sagðir látnir og 125 særðir.
Sprengjurnar voru flestar litl-
ar og greinilega ætlað að vekja
frekar skelfingu en valda mann-
tjóni. Engu síður lést dráttarmað-
ur hlaupakerru í Chapainawa-
bganj og tíu ára piltur í Savar.
Mikið öngþveiti greip um sig í
helstu borgum landsins í kjölfar
sprenginganna.
Átta manns voru handteknir
síðar um daginn en þeir eru sagð-
ir tilheyra íslömskum öfgahópi
sem stjórnvöld bönnuðu fyrir
nokkru. ■
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Jurys Inn Glasgow
16.-18. des., 13.-15. jan., 27.-29. jan. og 10.-12. mars.
Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
www.icelandair.is/glasgow
Glasgow
Flug og gisting í tvær nætur
Verð frá 29.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og
Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
Eiga Samfylking og Framsókn
að bjóða sameiginlega fram til
borgarstjórnar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að hækka laun leikskóla-
kennara?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
64%
36%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Teiknistofan
Gláma / Kím mun sjá um hönnun á nýjum
byggingum á Sólborgarsvæðinu.
Háskólinn á Akureyri:
Sami› um
n‡byggingar
HÖNNUNARSAMNINGUR Menntamála-
ráðuneytið hefur samið við teikni-
stofuna Glámu / Kím um hönnun og
undirbúning útboðs vegna áfram-
haldandi byggingar á húsnæði Há-
skólans á Akureyri.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
háskólans, segir að um sé að ræða
fyrirlestrasali, kennslustofur og
aðalinngang háskólans á Sólborg,
samtals 2.000 fermetra.
„Kostnaðaráætlun liggur ekki
fyrir en gert er ráð fyrir því að
verkið verði tilbúið til útboðs í
mars á næsta ári,“ segir Þorsteinn.
- kk
ÖNGÞVEITI Tvær sprengjur sprungu í gærmorgun við rútustöð í höfuðborginni í gær og sú
þriðja við sjúkrahús. Að vonum greip mikil skelfing um sig hjá borgarbúum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FLÓTTAMENN KOMA TIL LANDSINS Þrjátíu
og einn flóttamaður kemur til landsins á
þessu ári og komu þeir fyrstu í gær. Mynd-
in tengist ekki þeim flóttamönnum.
YFIRHEYRSLA Þessi mynd er tekin af mótmælendum og segir Birgitta Jónsdóttir hana sýna þrjá óeinkennisklædda lögreglumenn yfir-
heyra sænskan mótmælanda. „Þeir hótuðu að fara með hann á lögreglustöðina og hengja upp á fótunum ef hann myndi ekki tæma
vasa sína viljugur,“ segir Birgitta.