Fréttablaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000     HÆG BREYTILEG ÁTT Í DAG og lítilsháttar væta sunnan- og vestanlands. Þykknar upp í kvöld og fer að hvessa af suðaustri með rigningu. Hito 4-8 stig. VEÐUR 4 MÁNUDAGUR 3. október 2005 - 266. tölublað – 5. árgangur Móðirin Með því að birtast okkur sem ung kona kemur Gísli Marteinn því inn hjá okkur að hann sé náttúrlegi og eðlilegi arftaki Ingibjargar Sólrúnar, skrifar Guðmundur Andri Thorsson. UMRÆÐAN 14 Bárujárn og barneignir Í MIÐJU FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ● hús ● fasteignir ▲ www.felagsmalaraduneyti.is FÉLAGSMÁLARÁ‹UNEYTI‹ Umræ›ur um sameiningu sveitarfélaga RÁ‹HERRASPJALL Í dag frá kl. 14-15Yrkir um lífi› og dau›ann GYLFI GRÖNDAL Langar að ná í buffalóa Sigmar B. Hauksson matgæðingur og skotveiðimaður er 55 ára í dag. TÍMAMÓT 16 Chelsea lék sér að Liverpool Chelsea er komið með níu stiga forskot í ensku úrvalsdeildinni eftir 4–1 sigur á Evrópu- meisturum Liverpool á Anfield í gær. Það stefnir því allt í að Chelsea verji titilinn. ÍÞRÓTTIR 18 VEÐRIÐ Í DAG LÍKAMSÁRÁS „Ég held að honum líði bara eins og hægt er að búast við eftir þessa atburði,“ segir Guðrún Árný Arnardóttir, móðir Einars Ágústs Magnússonar, átján ára drengs sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í samkvæmi í húsi við Bæjargil í Garðabæ í fyrrinótt. „Það er sprunga í höfuðkúpunni og hann hefur verið í aðgerð. Það verður bara að koma í ljós hvernig honum líður,“ segir Guðrún. Fjórir átján ára drengir voru handteknir síðar um morguninn grunaðir um aðild að árásinni. Ein- um þeirra hefur nú verið sleppt en krafist var gæsluvarðhalds yfir hinum þremur í gærkvöld að sögn lögreglu. Lögreglan í Hafnarfirði segir unga manninn hafa komið sem gest í samkvæmi í húsi við Bæjargil. Þegar þangað var komið kom til átaka milli hans og árásarmann- anna, en þeir voru fyrir í húsinu. Slagsmálin færðust út fyrir húsið þar sem lagt var til Einars Ágústs þannig að hann hlaut höfuðkúpu- brot. Stór hnífur eða sveðja var notuð og hlaut Einar Ágúst slæma skurði á höfuð, handleggi og hend- ur. Skurðir á höndum eru í greipun- um og eru taldir hafa komið til þeg- ar Einar reyndi að verjast hnífsstungunum. Annar ungur maður á svipuðu reki meiddist þeg- ar hann reyndi að ganga á milli og stöðva slagsmálin. Meiðsl hans voru töluvert minni. Drengirnir voru fluttir á slysa- deild af fólki sem þeir komu með í samkvæmið og var atvikið tilkynnt lögreglu frá slysadeild. Fjórmenn- ingarnir sem voru handteknir hafa áður komið við sögu Hafnarfjarð- arlögreglu. Fjöldi vitna var að at- vikinu. - saj FÓLK 34 ▲ ÁTTUNDA LJÓÐABÓKIN Á LEIÐINNI BÍLVELTA Á REYKJANESBRAUT Bifreiðin endaði á toppnum á bensínstöðinni eftir að ökumaðurinn missti stjórn á henni í bleytunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ / DAGUR B. EGGERTSSON: DRESDEN Kristilegi demókrata- flokkurinn hafði betur í kosning- um til þýska sambandsþingsins sem fram fóru í Dresden í Þýskalandi í gær. Kosningunum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna andláts eins fram- bjóðanda í borginni. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld var búið að telja meirihluta atkvæða. Þá hafði frambjóðandi kristilegra demókrata fengið um 37 prósent atkvæða en frambjóðandi Jafn- aðarmannaflokksins 32. Kosn- ingaþátttaka í borginni var góð en 72 prósent greiddu atkvæði. Ef niðurstaðan verður þessi, fá kristilegu flokkarnir samtals 226 þingsæti á sambandsþinginu og bæta þar með við sig einu sæti en jafnaðarmenn fá 222. Þó þetta breyti litlu um niðurstöður kosninganna sem fram fóru 18. september mun þetta að öllum líkindum styrkja stöðu Angelu Merkel, leiðtoga kristilegra demókrata, en hún gerir, líkt og Gerhard Schröder, tilkall til kanslaraembættisins. Merkel og Schröder hafa tvívegis fundað að undanförnu um möguleikann á stjórnarmyndun stóru flokk- anna en viðræður hafa strandað á því hvort þeirra eigi að leiða stjórn landsins. - sgi STYRKIR STÖÐU SÍNA Úrslit kosninganna í Dresden styrkja stöðu Angelu Merkel, leiðtoga kristilegra demókrata í stjórnar- samningaviðræðum við Gerhard Schröder, leiðtoga jafnaðarmanna. Kristilegi demókrataflokkurinn hafði betur í kosningunum í Dresden: Sta›a Angelu Merkel styrkist Lög›u til átján ára drengs me› sve›ju Átján ára drengur, Einar Ágúst Magnússon, var› fyrir fólskulegri líkamsárás í Gar›abæ í fyrrinótt. Hann hlaut sprungu í höfu›kúpu og lagt var til hans me› stórum hnífi e›a sve›ju flannig a› hann hlaut skur›i á höf›i og höndum. Bílvelta á Reykjanesbraut: Hvolfdi inn á bensínstö› SLYS Volkswagenbíll valt við bensínstöð Orkunnar, rétt norðan við Smáralind, um fimmleytið í gær. Ökumaður bílsins var á leiðinni suður eftir Reykjanesbraut þegar hann missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að bíllinn valt yfir vegkant og hafnaði síðan á toppnum á bílaplani bensínstöðvarinnar. Að sögn lögreglu gaf ökumaðurinn þá skýringu að hann hefði misst stjórn á bílnum vegna bleytu á veginum. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Meiðsl mannsins munu ekki alvarleg og þykir það mildi. Hann fékk að fara heim að skoðun lokinni. Að sögn lögreglunar í Kópa- vogi er bifreiðin hinsvegar mjög illa farin og jafnvel ónýt. - jse Óvenjuleg lagasamkeppni: Vöggulag fyrir eiginmenn MALASÍA Stjórnvöld í héraðinu Kelantan í Malasíu leita að góðu vöggulagi sem konur geti sungið fyrir eiginmenn sína. Leiðtogar ís- lamska stjórnmálaflokksins sem eru við völd í héraðinu hafa undan- farið reynt að milda ímynd flokks- ins og skipulögðu til að mynda á dögunum fyrstu popptónleikana í héraðinu í fimmtán ár. Talsmenn yfirvalda telja að keppnin muni styrkja fjölskyldu- böndin. ■ KONA Á MARKAÐI Malawi er vinsælasta söngkonan þar ytra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.