Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 67
 28. október 2005 FÖSTUDAGUR38 tonlist@frettabladid.is Kynjaborgin Reykjavík Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsinu 29. október 2005. Málþing haldið í samvinnu Reykjavíkurborgar og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands í tilefni af 30 ára afmæli kvennafrídagsins 24. okt. Kl. 11.00 - 11.10 Setning: Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Kl. 11.10 - 11.25 Gerður Róbertsdóttir sagnfræðingur Árbæjarsafni: Frá peysufötum til pinnahæla. Brot úr sögu kvenna. Kl. 11.25 - 11.40 Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur: Símaulandi og símalandi Um reykvískar konur í íslenskum glæpasögum. Kl. 11.40 - 11.50 Ingibjörg Haraldsdóttir les ljóð. Kl. 11.50 - 12.05 Salvör Jónsdóttir skipulagssviði Reykjavíkurborgar: Skipulagsmál og feminismi. Kl. 12.05 - 12.20 Heiða Jóhannsdóttir kvikmyndfræðingur: Í sjónmáli ferðamannsins: Reykjavík sem heita borgin í norðri. Kl. 12.20 - 12.40 Kaffihlé Kl. 12.40 - 13.00 Magga Stína og hljómsveit Kl. 13.00 - 13.15 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur og lektor við H.Í.: Kynlegar tölur um stöðu reykvískra kvenna. Kl. 13.15 - 13.25 Sigurbjörg Þrastardóttir les ljóð. Kl. 13.25 - 13.40 Harpa Björnsdóttir myndlistarkona: Konur í reykvískri myndlist. Kl. 13.40 – 14.00 Umræður. Málþingsstjórar verða Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og starfandi forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. RANNSÓKNARSTOFA Í KVENNA- OG KYNJAFRÆÐUM E N N E M M / S IA / N M 13 5 7 0 Hljómsveitin Depeche Mode hefur gefið út sína tólftu hljóðversplötu sem nefnist Playing the Angel. Freyr Bjarnason renndi yfir feril þessarar merku sveitar. Hljómsveitin Depeche Mode á rætur sína að rekja til sveitarinn- ar No Romance in China sem var stofnuð árið 1976 af þeim Vince Clarke og Andrew Fletcher. Sú sveit hætti fljótlega og árið 1979 stofnaði Clarke French hljóm- sveitina Look ásamt Martin Gore. Fletcher gekk fljótlega til liðs við þá félaga og gengu þeir undir nafninu Composition of Sound. Þegar David Gahan kom inn í sveitina 1980 var nafninu breytt í Depeche Mode og liðsuppstilling- in var orðin fullmótuð, allt þar til Clarke, aðallagahöfundur sveitar- innar, hætti árið 1981 til að stofna sveitina Yazoo með söngkonunni Alison Moyet. Gore fór að semja lögin þess í stað og hefur gert það að mestu allar götur síðan með góðum árangri. Depeche Mode varð ein vin- sælasta tölvupopphljómsveit níunda áratugarins og ein sú fyrsta til að byggja hljóm sinn í kringum hljóm- borðstóna sína. Hún byrjaði sem hressileg danspoppsveit en þróaði smám saman myrkari og dramat- ískari hljóm sem átti eftir að gera hana að risa í tónlistarheiminum. Sveitin náði almennri athygli eftir útgáfu plötunnar Violator árið 1990. Þar var meðal annars að finna lögin Enjoy the Silence, Policy of Truth og Personal Jesus sem öll slógu ræki- lega í gegn. Eftir aðra vinsæla plötu, Songs of Faith & Devotion, sem kom út 1993 með lögum á borð við Barrel of a Gun og It´s No Good, fór hún að liðast í sundur, meðal annars vegna heróínnotkunar söngvarans Gahans og misheppnaðrar sjálfsvígstilraun- ar hans. Eftir fjögurra ára pásu mætti sveitin sterk til leiks á ný með plöt- unni Ultra og enn þann dag í dag virkar sveitin í toppformi. Þykir nýjasta plata hennar, Playing the Angel, til að mynda töluvert sterk- ari en sú síðasta, Exciter. Meiri áhersla er lögð á þann hljóm sem gerði Depeche Mode fræga í upp- hafi, þar sem blandað er saman sérstæðum hljómborðsleik Gore, teknóáhrifum og fallegum melód- íum. Gott dæmi um það er fyrsta smáskífulag plötunnar, Precious. Upptökustjóri Playing the Angel er Ben Hillier, sem hefur áður unnið með sveitum á borð við Blur, Elbow og Clinic. Í heimildar- mynd um gerð plötunnar, sem er að finna á viðhafnarútgáfu hennar, lýsa liðsmenn Depeche Mode yfir ánægju sinni með Hillier og þá breytingu sem hefur orðið á sveit- inni frá síðustu plötu. Hillier var enginn sérstakur aðdáandi sveit- arinnar áður en hann byrjaði á plötunni, en var fljótur að finna út hvernig hljómurinn ætti að vera. Lagði hann áherslu á að vinna hana hratt og markvisst því það hentaði hljómsveitinni mun betur. Depeche Mode hefur alla tíð verið öflug tónleikasveit og er hún byrjuð á umfangsmikilli tónleika- ferð um heiminn til að fylgja plöt- unni eftir. The Bravery, sem spil- aði á Iceland Airwaves í fyrra, og The Raveonettes frá Danmörku munu hita upp á tónleikaferð hennar um Bandaríkin. Á næsta ári er síðan fyrirhuguð tónleika- ferð um Evrópu og er Ísland því miður hvergi á þeim lista. Dramatískir tölvupopparar DEPECHE MODE Tólfta hljóðversplata Depeche Mode, Playing the Angel, er komin út. Á TÓNLEIKUM David Gahan, söngvari Depeche Mode, er þekktur fyrir öfluga sviðsframkomu. > Plata vikunnar... SLEATER-KINNEY: The Woods „Stelpurnar í Sleater-Kinney eru búnar að vera svo lengi að gefa út plötur að þeim er loksins orðið skítsama hvað öðrum finnst um sköpunar- verk sín. Þær hafa aldrei verið betri.“ BÖS > Popptextinn... Situations have ended sad, relationships have all been bad. Mine‘ve been like Verlaine‘s and Rimbaud. Bob Dylan samdi lagið You‘re Gonna Make Me Lonesome When You Go um það leyti sem hann var að skilja við konuna sína. Lagið er á plötunni Blood on the Tracks. Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Hjálmar: Hjálmar, KampKnox: A tad 65, Worm is Green: Push Play, Cynic Guru: Iceland, Ramm- stein: Rosenrot, Stevie Wonder: A Time 2 Love og The White Stripes: Get Behind Me Satan. Dúettinn The White Stripes segist eiga Bretlandi margt að þakka. Jack og Meg White eru nú á túr í Evrópu og munu spila í Bretlandi hinn 5. nóvember. Þá halda þau tónleika í Alexandra Palace í London 8.-9. nóvember. Þau segja það að spila í Bretlandi hafa haft mikil áhrif á það hvernig þau haga sér á tón- leikum. „Við vorum örlítið áhyggju- full yfir tónleikunum í Alexandra Palace þegar við spiluðum þar síðast. Við héldum að staðurinn yrði tómur en tónleikarnir urðu svo mjög áhugaverðir og sér- staklega áhorfendurnir. London er staður sem við höfum notað mikið í að læra inn á það hvað við komumst upp með og hvers konar andrúmsloft þarf að vera til staðar svo okkur líði vel þegar við komum fram,“ sagði Jack White. Hann bætti því við að hinir ýmsu tónleikar í Bretlandi hefðu náð ólíkum hlutum út úr honum og Meg. „Það er mis- munandi andrúmsloft á hverjum stað. Sem skemmtikraftur þarf maður að díla við við þetta allt, sama hvernig manni líður.“ The White Stripes er þekkt fyrir að halda tryllta tónleika og mun sýna okkur mátt sinn og megin þann 20. nóvember þegar dúettinn heldur tónleika hér á Íslandi. Þá er óskandi að íslenskir tónleikagestir nái að skapa þetta rétta andrúmsloft fyrir þau systkin svo tónleikarn- ir verði sem bestir. Andrúmsloftið skiptir máli WHITE STRIPES Þau halda tónleika hér á landi þann 20. nóvember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.