Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 A u g lýsin g asto fa G u ð rú n ar Ö n n u VAXTALAUST í 12 mánuði* –frábær sjónvarpstilboðSAMSUNG WS32MO66T • 32” 100Hz með flötum myndlampa. • 2x20w magnari • 200 blaðs. íslenskt textavarp. • 2 x scart tengi • 1 x viðeovélatengi og S-video tengi. • Virtual Dolby • Tónjafnari SAMSUNG CW29M064T • 29” 50Hz með flötum myndlampa • 2x20w magnari • Íslenskt textavarp. • 2 x scart tengi • 1 x viðeovélatengi. • Tónjafnari Tilboðsverð 49.990,- Tilboðsverð 69.990,- á mánuði 6.190,- á mánuði 4.464,- LOEWE AVENTOS 29" • 29” 100 Hz • Super Black Line myndlampi • Flatur skjár • 2 x Scart tengi • RCA og Super-VHS tengi að framan • PIP (Mynd í mynd) • 5 ára ábyrgð á myndlampa Tilboðsverð 84.900,- á mánuði 7.476,- SMÁRALIND SÍMI 530 2900 SÍMI 530 2800 SÍÐUMÚLI 9 www.ormsson.is SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN EFTIR JÓN KALMAN STEFÁNSSON 5-STJÖRNU BÆKUR F í t o n / S Í A F I 0 1 4 8 9 8 SLEPPTU MÉR ALDREI EFTIR KAZUO ISHIGURO - Kirkus Reviews ÞETTA ER EKKERT ANNAÐ EN MEISTARAVERK ... SENDIÐ EINTAK EINS OG SKOT TIL NÓBELSNEFNDARINNAR.“ „... HRÍFANDI FYNDIN ... SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN ER FRÁBÆRLEGA VEL STÍLUÐ BÓK. ... ÞVÍ SKÁLD ER JÓN KALMAN, GLIMRANDI SKÁLD.“ - Páll Baldvin Baldvinsson, DV SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR Nískupúki var skammaryrði þegar ég var að alast upp í Keflavík - sem var á svipuðum tíma og slatti af íslensku ríkis- stjórninni var að bardúsa við að komast á legg í öðrum plássum. Ef mig hefði grunað þá að heimurinn ætti eftir að líma þetta skammar- yrði á íslensku þjóðina hefði ég sleppt því að heillast af landi, þjóð og sögu, drifið mig í Kanann upp úr fermingu og sest að á einhverju nábýli í Kansas þangað sem ekki berast fréttir frá umheiminum. VIÐ Íslendingar höfum alltaf verið fallegust og sterkust - um það er engum blöðum að fletta. Við erum alveg að verða ríkust og fundum greinilega samfara því sterka hvöt til að sanna orða- tiltæki sem hljómar á þá leið að margur verði af aurum api. EN ÉG vil ekki trúa því að þegnar þessa lands séu nískir, þótt mér sé löngu orðið ljóst að þeir sem stýra þjóðarbúinu hætti að skilja mælt mál þegar á það er bent að aðstoða þurfi þá sem eiga um sárt að binda í lífinu og þarfnast hjálpar. Það er eins og þeir hafi snúið hinu undur- fagra og sársaukafulla ljóði, sem Bjartur í Sumarhúsum kveður til Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, upp á andskotann og kveði við raust: Spurt hef ég tíu milljón manns/sé myrtir að gamni utanlands/sann- lega mega þeir súpa hel/ég syrgi þá ekki/fari þeir vel. UM LEIÐ og ég vona að vísubrot- ið sé rétt munað hjá mér þar sem ég hef ekki bókina uppivið, get ég ekki varist þeirri hugsun að við Íslendingar þurfum að staldra við og hugsa okkar gang. VIÐ VILJUM vera þjóð meðal þjóða, láta taka mark á okkur, fá að stýra Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og vera í klíku stóru strákanna í hnattvæðingunni. Við viljum vera aðal. Það er hins vegar nokkuð ljóst að við viljum ekki axla ábyrgðina sem því fylgir og leggja af mörkum það sem okkur ber til hnattsamfélagsins. Við viljum taka við, þiggja og láta dást að okkur en gefa minna en við komumst upp með í staðinn. VIÐ ERUM á góðri leið með að verða Jóakim frændi meðal þjóða og ættum því hvorki verða undr- andi, sár né hneyksluð þegar Rip, Rap og Rup fara að kasta í okkur grjóti um leið og þeir æpa á eftir okkur: Nískupúkar! Nískupúkar! Jóakim frændi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.