Tíminn - 02.11.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
TÍMINN
17
Vetraráætlun
Vængja gengin
í gildi:
Dag-
legar
ferðir
til Snæ-
fellsness
MÓ—Reykjavik. Nýlega gekk
vetraráætlun Vængja h.f. í gildi.
Með henni er stefnt að meiri
nákvæmni i tfmasetningu, en áð-
ur hefur verið, og þvi ætlaður
rýmri timi fyrir hverja ferð en
áöur hefur verið. Þá er um aö
ræða fjölgun á ferðum til
Snæfellsness og er nú flogið þang-
að dagiega.
Innan skamms er áætlað að
hefja áætlunarflug til Súganda-
fjaröar og hefst það vonandi um
miðjan nóvember. Þá heldur
Flugfélagið Vængir uppi
áætlunarflugi til 12 staöa á land-
inu, og eru farnar um 40
áætlunarferðir á viku.
Fastar áætíunarferðir eru
þrisvar I viku til Bildudals og
Flateyrar. Til Blönduóss og
Siglufjarðar eru ferðir fjórum
sinnum i viku, en daglega til
Ólafsvikur og Stykkishólms.
tvisvar i viku er svo flogið til
Hólmavlkur, Gjögurs, Hvamms-
tanga og Reykhóla, og ef óskað
er, er komið við i Búðardal, þegar
flogið er til Reykhóla. Ein ferð er
i viku til Mývatns.
Auk þessa eru farnar aukaferð-
ireftir þörfum, og likur eru taldar
til að þær verði með mesta móti i
vetur.
Nú eru fjórar flugvélar i eigu
félagsins. Tvær þeirra eru 19 sæta
af Twin Otter-gerð og tvær 9 sæta
af Islander-gerð.
Á þessu ári er áætlað, að
farþegafjöldi með vélum félags-
ins verði um 30 þúsund, og er það
um 25% aukning frá fyrra ári.
Verðlauna
teikningar
af
nytsömum
byggingum
„VERÐLAUNASJÓÐUR dr. phil.
Ólafs Danielssonar og Sigurðar
Guðmundssonar arkitekts” var
stofnaður árið 1954 af frú Svan-
hildi ólafsdóttur, dóttur hins
fyrrnefnda og eiginkonu hins sið-
arnefnda.
Tilgangursjóðsins er tviþættur,
annars vegar að verðlauna is-
lenzkan stærðfræðing, stjörnu-
fræöing eða eðlisfræðing, og heita
þau verðlaun „Verðlaun Ólafs
Danielssonar”, en hins vegar að
verðlauna teikningar Islenzkra
arkitekta aö nytsömum bygging-
um i landinu eða skipulagningu
innanbæjar i Reykjavik, að und-
angenginni samkeppni, og heita
þau verðlaun „Verðlaun Sigurðar
Guðmundssonar”.
Fjórum sinnum hafa „Verðlaun
Ólafs Danielssonar” verið veitt,
og hlutu þau prófessorarnir dr.
Leifur Asgeirsson, dr. Trausti
Einarsson og Þorbjörn Sigur-
geirsson, og dr. Guðmundur
Pálmason, forstööumaður jarð-
hitadeildar Orkustofnunarinnar.
Verðlaununum er úthlutað án
umsókna.
t stjórn verðlaunasjóðsins eiga
sæti Guðni Guðmundsson rektor,
dr. Halldór í. Eliasson prófessor
og Birgir Thorlacius ráðuneytis-
stjóri.
Flugvél Vængja á Reynihliðarflugvelli.
Timamynd G.E.
Hérsésthún Brúnka á beit á
bökkum Vatnsdalsár, skammt
fyrir framan Eyjavatns-
bungu. Hún lætur litiö yfir sér
og viröist hin rótegasta, en
myndin af henni var tekin úr
flugvél I vikunni. Ekki er
Brúnka þó alltaf svona róleg.
Tvisvar lentu gangnamenn i
miklum eltingaleik við hana i
haust, og I bæði skiptin fór hún
með sigur af hóimi, og gengur
þyi ennþá iaus frammi I af-
réttinni. Innan skamms munu
menn verða sendir fram á
heiöina og gera tilraun til að
sækja hana. Þá er hætt við að
þetta villta hross verði að láta
I minni pokann og verði rekið
til byggða, ásamt folaldinu
sinu, sem var skammt frá
henni, þegar við flugum
þarna yfir Grimstunguheið-
ina. Timamynd MÓ.
10. október 1936, sonur Haralds
Kristinssonar húsasmiðs og
Helgu Benónýsdóttur. Hann
stundaði i æsku margvisleg störf,
bæði á sjó og landi. Lærði ungur
að fara með blýant og vatnsliti,
svo að snemma hefur beygzt
krókurinn til þess, sem verða
vildi. Námsferil á hann langan aö
baki. Tvitugur að aldri lauk hann
búfræðinámi eftir tveggja vetra
dvöl á Hvanneyri, og siðan eins
árs nám i búfræðideild Mennta-
skólans á Laugarvatni. Tvo vetur
var hann við nám i Handiða- og
myndlistarskólanum i Reykjavik,
og sömuleiðis tvo vetur i Mynd-
listaskólanum.
Þá stundaði hann nám i Þýzka-
landi og Noregi. Hann lauk
smiðakennaraprófi frá Handa-
vinnudeild Kennaraskólans, og
frá rikisskóla i Noregi lauk hann
kennaraprófi i myndlistum með
litaíræði og skrift sem aðal-
greinar.
Hann hefur ásamt öðrum gefið
út kennslubók i leturgerð.
Að sögn Björgvins sýnir hann
tæplega 70 verk á sýningunni i
Norræna húsinu. Eru það túss-
myndir, túss- og vatnslitamyndir,
kolmyndir, oliumálverk, skúlp-
túrar og lágmyndir.
Björgvin er sjóðaður vel i list
sinni, og meðal kunnra verka
eftir hann er höggmynd Reykja-
vikurborgar „Landnám”, sem er
hálfur fimmti metri á hæð, og er
myndinni fyrir komið við Háa-
leitisbraut. -JG.
Björgvin Sigurgeir sýnir í Norræna húsinu
Björgvin Sigurgeir Haraldsson
hefur opnað málverkasýningu i
Norræna húsinu, og stendur
sýning hans til 9. nóvember.
Björgvin hélt einkasýningu i
Unuhúsi árið 1968 og hann hefur
sýnt myndir sinar á samsýning-
um FÍM frá árinu 1963. Þá liefur
hann og tekið þátt i samsýning-
um. Björgvin er kennari við
Myndlista- og handlðaskóiann i
Reykjavik og kennir þar litafræði
og skrift (lcturgerð).
Björgvin Sigurgeir Haraldsson
fæddistað Haukabergi i Dýrafirði
/