Tíminn - 02.11.1975, Blaðsíða 26

Tíminn - 02.11.1975, Blaðsíða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 2. nóvember 1975. Greinarhöfundur, ameriski skurðlæknirinn William A. Nolen. — Eftir að ég hafði lesið grein um nála- stunguaðferðina i Kina, fór qg að velta fyrir mér, hvort læknir viti i raun og veru allt um lækna- visindi, segir dr. William Nolen, yfirlæknir] á hand- lækningadéildinni i Meeker County sjúkrahúsihu i Minne- sota, Bandarikjunum. — Þar af íeiðandi var ég fús til'að fara til Filipppseyja til að rannsakía, hvort galdralæknarnir þar séu að gera krafta- verk eða blekkja fólk. í mörg ár hefur dr. Nolen haft fastan dálk um læknisfræðileg efni i timaritinu McCalls. Hann hefur gefið út margar bækur og skrifað margar greinar i læknatimarit i heima- landi sinu. í þessari grein segir hann frá reynslu sinni á Filippseyjum. ; \ i í i/n A CTAl/rDI^ I JrWf t fmfV caa CZAI nPAP C U Jrm /» L U Im Jr\ IX. Galdralæknir gerir uppskurð á frægum skurðlækni FYRIR kcmur, að sjúklingar sætti sig ekki við þá sjúkdóms- greiningu, sem við læknar gerum. Ef læknavisindin geta ekki hjálp- að þeim, leita þeir hjálpar annars staðar. Viðbrögð læknastéttar- innar við ýmiss konar „náttúru”- læknum eru margvisleg. Hvað sjálfan mig snertir, verð ég að viðurkenna, aðá öllum starfsferli minuni sem læknir hef ég verið andsnúinn þeim. Reyndar var það ekki fyrr en 1971, en þá hafði ég starfað sem skurðlæknir i 11 ár, að ég fór að efast um rétt læknavisindanna til einokunaraðstöðu sinnar, þegar um lækningarþekkingu er að ræða. Þá las ég fréttagrein eftir James Reston i „New York Tim- es”, þar sem hann lýsir reynslu sinni af nálastunguaðferðinni i Kina. Hvi höfðu læknavisindin ekki sýnt áhuga á nálastunguað- ferðinni og notfært sér þá hluta hennar, sem kynnu að hafa þýð- ingu fyrir okkur? spurði ég sjálf- an mig. Er nálastunguaðferðin var orö- in afar umrædd, ákvað ég, að ég skyldi hliista, horfa og hugsa mig vel um, áður en ég fordæmdi lækningaraðferðir, sem ekki tiðk- ast I hinum vestræna heimi, er ég heyrði þeirra getið. Samt vissi ég, að ég kæmi til með að taka neikvæða afstöðu til þeirra! Arið 1972 spurði fréttamaður i Detroit mig: — Hafið þér nokkurn tima heyrt um sálrænar skurð- lækningar, dr. Nolen? — Varla get ég sagt það, svar- aði ég. — Er ekki einhver á Fil- ippseyjum sagður vera fær um að gera uppskurði án áhalda? — Einmitt. Vitið þér nokkuð um þetta? — Ekki mikið, nei. En ég geng út frá, aö þetta sé einhvers konar svindl. — Eruð þér vissir um það? — Nei, viðurkenndi ég. — Það er ég ekki. Hvers vegna spyrjið þér? 1 ljós kom, að vinur frétta- mannsins, sá hét Manny Hofman, hafði fengið sálrænan skurðlækni til að lækna dóttur sina. Hann hafði tekið myndir til að skjal- festa það, sem hann hafði oröið vitni að, og hann trúði algerlega Sálræni skurðlæknirinn Juan Blanc, að starfi. Fullyrt var, að tveimdögum siðar hefðu engin ummerki verið sjáanleg á hálsi stúlkunnar. þvi, sem hann hafði séð með eigin augum. 1 fyrstu ætlaði ég að láta þetta falla i gleymsku, en svo datt mér i hug, að nú hefði ég tækifæri til að sýna, að ég væri ekki fordóma- fullur. Þessari 1(> ára stúlku hafði vcrið sagt, að eina leiðin til að fjarlægja æxlið, sem var bak við annað augaværi sársaukafullur uppskuröur. Ekki náði ég þó tali af Hofman fyrr en i' april næsta ár. Eftir að hafa talað við hann i sima i tiu minútur, komst ég að þeirri nið- urstöðu, að frásögn hans væri þess virði, að ég færi aftur til Det- roit. Hofman er greindur og áreiöanlegur maður, sem rekur mjög stórt verktakafyrirtæki ásamt tengdaföður sinum. Eru sólrænar skurðlækningar, eins og þær eru tíðkaðar á Filipseyjum, lækningarblekking, eða dularfull kraftaverk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.