Tíminn - 02.11.1975, Blaðsíða 31

Tíminn - 02.11.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 2. nóvember 1975. TÍMINN 31 The Flying Burrito Bros — Flying Again PC 33817 — Coiumbia/Faco. ★ ★ ★ ★ ★ HLJOAAPLOTUDOAAAR NÚ-TÍAAANS AAest seldu plöturnar Vikuna 20. til 27. október Stórar plötur: 1. Whish You Were Here — Pink Floyd. 2. Extra Texture— George Harrison. 3. Sumar á Sýrlandi — Stuðmenn. 4. O'Lucky AAan — Alan Price. 5. AAinstrel In The Gallery — Jethro Tull. 6. One Of These Nights — Eagles. 7. Still Crazy after....-- Paul Simon. 8. Breakaway. — Art Garfunkel. 9. Who By Numbers — Who. 10. Prisoner In Disguise — Linda Rondstadt. Litlar plötur: 1. S.O.S. — Abba. 2. Rhinestone Cowboy — Glen Cambell. 3. El Bimbo — Bimbo Jet. 4. Who Loves You — Four Seasons. 5. It Only Takes A AAinute— Tavares. Faco hljómdeild Laugavegi 89 simi 13008 SENDUM I PóSTKRöFU Faco hljómdeild Hafnarstræti 17 simi 13303. Hickory Wind koma í dag: Hljómleikar í kvöld í Tónabæ Bandariska söng- og strengja- sveitin „Hickory Wind” kemur til islands, i dag, sunnudag, og kem- ur fram á tónleikum I Tónabæ i kvöld. Verða þetta einu almennu tónieikar sveitarinnar hérlendis, en að auki munu félagarnir i „Hickory Wind” koma fram fyrir hermenn á Keflavikurflugvelli, áður en þeir halda áfram á hljóm- leikaferð sina um Evrópu og N-Afriku. Hingað kemur sveitin á vegum Menningarstofnunar Bandarikjanna. Tónlist „Hickory Wind” er svokölluð „bluegrass”-tónlist, en sjálfir kalla þeir hana „tatara- tónlist frá Appalachia”, sem er fjallasvæði á austurströnd Bandarikjanna. „Hillbilly” er annað orð fyrir þessa tónlist, en „Hickory Wind” bindur sig þó ekki eingöngu við slika tonlist, heldur fer víðar, m.a. i svokallað „country-rock” og blues. Liðsmenn sveitarinnar eru á aldrinum 23-25 ára allir uppaldir i Vestur-Virginiu, þar sem tónlist þeirra er upprunnin. Hljóðfæra- skipansegire.t.v.mestum tónlist þeirra félaganna, en alls leika þeir á ekki færrri en 10 hljóðfæri: Gitar, banjó, fiðlu, bassa dulcimer, mandólin, dobro, kazoo, keltneska hörpu og munn- hörpu. Meðlimir „Hickory Wind” eru þeir Bob Shank, Sam Morgan, Pete Tenney, Mark Walbridge og Glen McCarthy. Tónleikarnir á sunnudaginn hefjast kl. 20.00 og kostar að- gongumiðinn 400 krónur. • 1/. The Flying Burrito Brothers hafa tekiðtil starfa á ný — mér og mörgum öðrum til mikillar ánægju. Það eitt að endurvekja Burrito Brothers er mikið hug- rekki, þvi til að standa undir þvi nafni þarf mikla hæfileika. Þeir sem eru i Burrito núna eru þeir Sneeky Peta Kleinmann, stál gít- ar, Chris Ethridge, bassi, Bib Guilbeau, fiðla og gitar, Joel Scot Hill, gitar og Gene Parsons, trommur og gitar (allir syngja). Þeir Sneeky Pete og Chris ‘ Ethridge voru f fyrstu f Burrito hljómsveitinni, þannig að i nýju__ Burrito eru 40% af upprunalegu hljómsveitinni, en eins og kunn- ugt er þá þykir fyrsta plata Burritos, The Gilded Palace Of Sin (1969) mikið meistaraverk, og hefur oft verið nefnd ein af beztu plötum sinnar tegundar. Hinir hafa aldrei áður komið nálægt Burrito, nema þá helzt Gene Parsons, en hann var trommuleikari The Byrds 1968-’72, en burrito eru angi af Byrds, oger Parsons fimmti fyrr- verandi Byrds meðlimur, sem spilar með Burrito. Snúum okkur þá að plötunni, sem þeir kalla einfaldlega Flying Again. Mesta vandamál Burrito hér áður fyrr var hvað þeir voru á undan sinni samtið, þannig að þeir náðu ekki til fjöldans. Flying Again er aftur á móti i takt við nútimann og ber með sér öll einkenni góðrar plötu. Tónlistin er auðvitað country-rokk og mætti jafnvel kalla hana þungt country-rokk vegna kraftsins i samspili bassans og trommanna Lögin eru yfir höfuð fjörug og gædd miklum krafti, og fer ekki millimála að þeir sem flytja hafa gaman af. Um frammistöðu einstakra er litið að segja, allir leggja sig fram við að gera það bezta, sem þeir og gera, þannig að um Flying Again er hægt að segja með beztu smvizku að hún sé vel spiluð, vel sungin með góð- um lögum og mátulega frumleg, þar sem þeir nota moog i country-rokki. Flying Again er Country rokk plata ársins ásamt Lindu Ronstadt, Prisoner i Desguise og EagleS, One Of These Nights.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.