Tíminn - 22.01.1976, Blaðsíða 1
/•
Leiguflug— Neyöarflua
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122-11422
Aætlunarstaðir:
Blönduós — Sigiuf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
i Hvammstangi — Stykkis-
ihólmur—Rif Súgandafj.
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
12-60-60 &
2-60-66
GUNNAR THORODDSEN, IÐNAÐARRÁÐHERRA:
ENGAR NYJAR FRAM-
KVÆMDIR VIÐ
KRÖFLU Á DÖFINNI
Gsal-Reykjavlk. — Aö sögn
Gunnars Thoroddsen, iönaö-
arráðherra, hefur veriö ákveðiö
Gsal-Reykjavik. — A rikis-
stjórnarfundi i gærmorgun
var ekki tekin ákvörðun um
það, hvort Geir Hallgrims-
son, forsælisráöherra, færi
til Lundúna til viðræöna viö
YViison, forsætisráöherra
Breta, en boö þess efnis,
barst til Geirs i fyrradag. Aö
sögn forsætisráöherra var á-
kvcðiö, að rikisstjórnin ætti
fund með utanrikismála-
nefnd og landhelgisnefnd um
máliö. Sá fundur veröur kl.
9.30 I dag.
— Rikisstjórnin vill hafa
samráö viö þessa aöila, en
hinu er ekki að neita, aö á-
kveöinsaindóma skoöun var
rikjandi á fundinum I morg-
un, sagöi forsætisráöherra i
samtali viö Timann i gær.
að halda áfram þeim fram-
kvæmdum, sem nú er unnið aö við
Kröflu, en þær eru einkum I þvi
fólgnar, aö ganga frá þaki stööv-
arhússins og styrkja húsiö sjálft.
Svo sem greint hefur veriö frá,
var iönaðarráöherra sent bréf frá
fjórum jarövisindamönnum fyrir
skömmu, þar sem þeir bentu á, að
óráðlegt væri aö haida áfram
framkvæmdum viö Kröflu. — Þaö
sem við hyggjumst gera nú og
höfum gert ráö fyrir, þaö fellur i
rauninni alveg saman viö skoöun
jarðvisindam annanna, sagöi
Gunnar.
Iðnaðarráðherra sagði, að vél-
ar i væntanlega virkjun kæmu
ekki fyrr en með vorinu, og
nefndi, að ekki væri ætlun að
byrja á neinum borholum fyrr en
i vor, og sama máli væri að gegna
um háspennulínuna. — Það gefst
þvi timi til þess á næstu vikum að
sjá hverju fram vindur og taka á-
kvarðanir um framhaldið, sagði
ráðherra.
— Það hefur ekki þótt rétt að
stöðva framkvæmdir við stöðvar-
húsið sjálft, sem miða að þvi að
ganga frá þaki og styrkja húsið.
Jarðvisindamennirnir telja, að ef
gos komi upp á Mývatnssvæðinu,
þá séu mestar likur á þvi, að það
yrði i Leirhnúk og sprungu
sem Leirhnúkur er á.
Þess vegna má segja, að Kisiliðj-
an og gufuaflsstöðin sem eru i
Bjarnarflagi, séu i öllu meiri
hættu en stöðvarhúsið við Kröflu.
Varðandi sig stöðvarhússins við
Kröflu, sagði ráðherra, að það
yrði tekið til sérstakrar athugun-
ar.
— Það sem er alvarlegast i
bréfi visindamannanna fjögurra,
er þessi hætta, sem þeir telja á
nýju gosi, — og þá höfum við
mestar og alvarlegastar áhyggj-
ur af byggðinni við Mývatn, sagði
Gunnar Thoroddsen að lokum.
Iðnaðarráðherra lagði bréf vis-
indamannanna fyrir rikisstjórn-
arfund i gærmorgun.
Olíumengun á
Djúpavogi
í snjómokstri....
Timamynd Gunnar.
Fiskmjölsframleiðendur:
Fá ekki fjárstyrk
frá stjórnvöldum
Gsal-Reykjavik — Stjórnvöld
hafa enga peninga til þess að
halda uppi undirstöðuatvinnu-
vegunum. Sjá varútvegurinn
getur aldrei oröiö styrkþegi, —
hann er undirstaðan og þegar
hann bregzt er ekki i önnur hús aö
venda, sagði Matthias Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra i samtali
viö Tímann i gærkvöldi, er blaöiö
Ieitaði álits hans á þeirri skoöun
f iskm jölsf ra m leiðenda , aö
nýákveðið loðnuverð sé þaö iágt,
aö stjórnvöld veröi aö bæta þar
um, ella stöðvist verksmiöjurnar
vegna tapreksturs.
Fulltrúar fiskm jölsfram-
leiðenda gengu á fund sjávarút-
vegsráðherra i gær. Loðnuverð
það, sem nýlega hefur verið
ákveðið af verðlagsráði sjávarút-
vegsins, mun gilda út janúar-
mánuð, en það er 3,50 pr. kg. í.
verðlagsráði var loðnuverðið
samþykkt af fulltrúum seljenda
og oddamanni, en fulltrúar
kaupenda greiddu atkvæði gegn
þvi.
— Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins er nokkurs konar dómur um
fiskverð á hverjum tima, sagði
Matthias Bjarnason — og það
getur alltaf reynzt erfitt að ná
endum saman i málum sem
þessum, en ég tel að undir svona
kringumstæðum sé sá kostur
einn, að fara bil beggja. Það fær
enginn það sem hann ætlar sér.
Ráðherra kvaðst telja, að skoða
þyrfti þetta mál mjög gaumgæfi-
lega, þegar núgildandi loðnuverð
fellur úr gildi um næstu mánaða-
mót og sagði, að mikið starf biði
verðlagsráðs.
Mó—Reykjavik — Eftir komu
skips til Djúpavogs um miðjan
þennan mánuð, fór að bera á
oliumengun i höfninni. Að sögn
Óla Björgvinssonar, oddvita á
Djúpavogi, virðist ekki um stór-
fellda oliumengun að ræða, en
þó er eitthvað um að fuglar hafi
orðið oliunni að bráð.
Taldi Óli liklegast, að skipið
hefði annað hvort tapað oliu út-
byrðis, eða hreinlega dælt úr-
gangsoliu i höfnina. Slikt væri
mjög alvarlegt, ef rétt reyndist,
en mál þetta er i athugun.
,,Atli Heimir er
mjög vel að
þessum verð-
launum kominn"
► O
ASÍ og VSI taka 15 atriði
upp við ríkisstjórnina
BH—Reykjavik — Rikisstjórnin
hefur nú til athugunar atriði
þau, sem samkomulag er um
milli ASt og Vinnuveitenda að
taka sameiginlega upp i viðræð-
um við rikisstjórnina. Atriði
þessi voru samþykkt á fundi
samninganefnda þessara aöila
með sáttasemjara i fyrradag,
og i gær voru þau send ríkis-
stjórninni.
Helztu atriði þessa samkomu-
lags eru þessi:
1. Tryggð sé full atvinna.
2. Verðbólgu verði haldið i
skefjum.
3. Sérstakt kapp verði lagt á að
auka útflutningsframleiðslu
og framleiðslu, sem sparar
erlendan gjaldeyri.
4. Dregið verði úr rikisútgjöld-
um.
5. Lánakjör framleiðslufyrir-
tækja verði bætt og vextir
lækkaðir.
6. Þjónustugjöldum opinberra
aðila verði haldið i iág-
marki.
7. Verðmyndunarkerfi verði
endurskoðað.
8. Endurskoðun lifeyrissjóða-
kerfisins.
9. Söluskattur verði lækkaður
og tollar, söluskattur (sölu-
gjald) og vörugjald af hrá-
efnum, vélum og tækjum til
framleiðslu i samkeppnis-
iðnaði felld niður.
10. Lækkun launaskatts.
11. Lækkun fasteignaskatts.
12. -13. Innlend nýsmiði skipa og
viðgerðastarfsemi verði
efld. Stuðlað verði að auknu
jafnvægi i byggingariðnaði.
14. Greiddir verði vextir af inn-
stæðum orlofsþega hjá Pósti
og sima.
15. Gert verði verulegt átak i
verk- og tæknimenntunar-
málum.
------------> ©