Tíminn - 07.02.1976, Blaðsíða 11

Tíminn - 07.02.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 7. febrúar 1976. TÍMINN 11 Bandaríkjastúlkan fljúgandi — Sheila Young vann fyrsta gull Bandaríkjanna í Innsbruck, þegar hún setti nýtt Ólympíu- metí 500 m skautahlaupi SHEILA YOUNG, Bandaríkjastúlkan fljúgandi, setti nýtt ólympiumet í 500 m skautahlaupi i Innsbruck, þegar hún tryggði sér gullið. Þessi 25 ára gamla skauta- úndum — gamla metið átti landi drottning, sem er heimsmethafi, hennar, Anna Henning, sem hún hljóp vegalengdina á 42,76 sek- setti i Sapporo fyrir fjórum árum SOVÉZKUR HERMAOUR FÉKK GULL SHEILA YOUNG........ skautadrottningin snjalla frá Bandarikjunum — 43.33. Young, sem varð önnur i 1500 m skautahlaupinu, vann fyrsta gull Bandarikjanna i Inns- bruck. Sheila Young hafði mikla yfir- burði, en baráttan um silfrið og bronsið var geysilega jöfn og spennandi. Cathy Priestner varð önnur — aðeins 5 sekúndubrotum á undan Sovétstúlkunni Tatjönu Averina, sem hlaut einnig bronsið i 1500 m hlaupinu. Annars urðu úrslitin þessi i 500 m skautahlaupi kvenna — efstu stúlkurnar: Young, Bandarik . .42,76 Pristener, Kanada . .43.12 Averina, Sovét Lena Poulos, Bandar .43.21 Vera Krashnova, Sovét ... . .43.23 Dadmikova Ljubov, Sovét. . .43.80 Nagaya Makio Japan .43.88 Paula Halonen, Finnl .. 43.99 Lori Munk, Bandar ..44.00 —SOS Nikolai Kruglov varð sigurvegari í 20 km skíðagöngunni og skotkeppninni — EG er yfir mig hrifinn og ánægður, sagöi hinn 26 ára hermaður í sov- ézka hernum — NIKOLAI KRUGLOV, eftir að hann var búinn að tryggja sér sigur i 20 km göngunni og skotkeppninni á skíðum i Seefeld. Þctta var kórónan á glæsilegan feril Kruglov, sem byrjaði að æfa á skiðum 18 ára gamall og helgaði sig göngu og skotkeppni 1970. Hann komst fljótlegá á toppinn og tryggði sér sæti I landsliði Sovétrikjanna 1973_ varð sovézkur meistari i lOkm göngu og skotfimi 1974, og i fyrra varö hann heimsmeistari. Uppáhald Sovétmanna, Aleksander Elizarov.sem hefur verið nær ó- sigrandi undanfarin ár i 20 km göngunni, varð að láta sér nægja 5. sæti i Innsbruck — horfði á eftir gullinu til félaga sins úr sovézka hernum. Finninn Heikki Ikola hlaut silfrið, en Sovétmaðurinn Aleksander Elizr- ovtryggði sér bronsið — mikill munur var á Ikola og Elizrov. Italinn Willy Bertinvar sá keppandi, sem kom mest á óvart — hann hlaut fjórða sætið. Norðmenn urðu fyrir miklum vonbrigðum, þvi að fyrsti maður þeirra Tor Svendsberget, varð að láta sér nægja 9. sætið. Norðmaðurinn Kjell IÞvda varð fyrir óhappi — hann braut skiði, áður en hann komst að fyrsta skotmarkinu. Hovda fékk þá lánað skiði og stóð sig mjög vel viö fyrstu þrjú skotmörkin — en hann varð sterkum vindi að bráð við siðasta skotmarkið, eins og Sovetmaðurinn Tikhonov. —sos Punktar • JÚDÓLANDSKEPPNI ÞAÐ má búast við fjörugri og spennandi keppni, þegar allir beztu júdómenn Islands og Noregs leiða saman hesta sina i iþróttahúsi Kennaraháskólans kl. 17 i dag, en þá fer fram 10 manna sveita- keppni milli Islendinga og Norðmanna. • „BUKABINGÓ" í KÓPAVOGI HANDKNATTLEIKSDEILD Breiðabliks i Kópavogi efnir nú til fjölskyldubingós.sem nefnter „Blikabingó”. Eru seld spjöld og sex spjalda kort til nota heima, en tölur verða birtar i útvarpi og blööum, þær fyrstu þriðjudaginn 10. febrúar. Sölufólk deildarinnar mun ganga i hús meö spjöldin. Einn leikur er seldur i senn, og er vinningur ferð fyrir tvo til sólar- landa, að verðmæti 120 þúsund krónur. • SKJALDARGLlMA ármanns 64. SKJALDARGLIMA Armanns fer fram i iþróttahúsi Kennarahá- skóla tslands sunnudaginn 8. febrúar 1976 kl. 17. 8 keppendur eru skráöir til glimunnar frá þremur félögum. Frá Armanni Guðmundur Freyr Halldórsson, Guömundur Ólafsson og Guðni Sigfússon. Frá KR Sigtryggur Sigurðsson, Rögnvaldur Clafs- son og Elias Arnason. Frá Vikverja Eirikur Þorsteinsson og Þor- steinn Sigurjónsson. Núverandí Skjaldarhafi, Sigurður Jónsson, getur ekki tekið þátt i keppninni vegna meiösla. „Berjumst af full- um krafti og stefnum að sigri" — segir Birgir Örn Birgis, aldursforseti körfuknattleikslands- liðsins, sem leikur gegn Ólympíuliði Breta í Laugardals- höllinni í dag og — VIÐ munum berjast af fullum krafti og stefna að sigri, segir Birgir Örn Birgis, körfuknatt- leiksmaðurinn snjalli úr Ar- manni, sem leikur með landslið- inu gegn ólympiuliði Breta I Laugardalshöllinni um helgina. Ekki er að efa, að leikirnir gegn Bretum verða fjörugir og spenn- andi. Bretar eiga mjög góðu liði á að skipa, og það veröur þvi við ramman reip að draga fyrir is- lenzka liðið, en það hefur oft sýnt frábæra leiki, ekki hvað sizt á móti sterkum liðum. Ahorfendur geta haft sitt að segja, og er ástæða til að hvetja menn til að standa nú vel saman — fjölmenna á leikina, sem hefj- ast kl. 2 báða dagana, láta i sér heyra og hvetja landann. Birgir og félagar hans verða þvi i sviðs- ljósinu um helgina. Birgir örn Birgis, sem er einn litrikasti körfuknattleiksmaður okkar, hefur 32 sinnum klæðzt landsliðsbúningnum — hann lék 32 fyrstu landsleiki Islands og skoraði 191 stig i þeim. Birgir örn var valinn i fyrsta landslið Is- lands 1959, þá aðeins 16 ára. — Fyrsti landsleikurinn minn verður mér alltaf eftirminnileg- ast.ur — við lékum þá gegn Dön- um i Kaupmannahöfn. Ég gleymi honum aldrei. — Þegar þjóðsöng- urinn var leikinn, fór skjálfti um mig, og ég var stoltur af að vera Islendingur. Ekki höfðum við nú morgun BIRGIR ÖRN.......klæðist nú aftur landsliðspeysunni. reyndar heppnina með okkur — við töpuðum naumt i3b:41 fyrir Dönum. — Geturðu nefnt fleiri eftir- niinnilega leiki? — Já, ég hef tekið þátt i mörg- um eftirminnilegum leikjum. Leikurinn gegn Dönum i Polar Cup i Kaupmannahöfn 1966 verður mér alltaf minnisstæður. Þá sigruðum við 68:67 i æsispenn- andi leik. Kolbeinn Pálsson skor- aði siðustu 2 stigin úr vitaköstum, er leikurinn var úti. Þetta var i framlengingu, en staðan eftir venjulegan leiktima var 60:60. Staðan i hálfleik var 32:32. Þegar við erum að tala um leiki gegn Dönum, þá er leikurinn gegn þeim 1964 i Polar Cup i Helsinki, mér i fersku minni — við sigruð- um þá 57:56. Þorsteinn Hall- grimsson skoraði þá sigurkörf- una, er nokkrar sekúndur voru til leiksloka. — Einnig er leikur gegn Skotum i Glasgow 1969 ofarlega i huga 1| minum — við strákarnir mættum þá beint i leikinn, eftir mikla hrakninga, en við biðum þá heilan dag eftir flugvél til Skotiands. Þreyttir og slæptir lögðum við af stað frá Reykjavik — og fengum smátima til að leggja okkur i flugvélinni. Við áttum ekki von á góðu. þegar við mættum svo til leiksins — beint af flugveliínum i Glasgow. En þrátt fyrir þreyturia náðum við að sýna góðan leik og sigra Skota 69:64, sagði Birgir Framhald á 5. siðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.