Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 10

Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Sunnudagur 22. ágúst 1976 RADIOBUÐIN Rætt við Halldór Laxdal forstjóra Kadióhuöin hl. Klapparstig 26, Keykjavik. Elzta og þekktasta búðin al Kadióbúðunum þrem. Þegar sjónvarpið byrjaði var barizt um sjónvarpstækin ó gangstéttinni fyrir framan Stærsta verzlun landsins með sjónvarpstæki, hljómtæki og skyldar vörur mun vera Radlo- búðin hf. Klapparstlg 26, eða Radiobúðirnar, væri ef til vill réttara að segja, en þær eru nú þrjár talsins, eða sú á Klappar- stignum, Itadiobúðin Skipholti 19 og Radiobúðin Sólheimum 35. Timinn kynnir Radiobúðirnar að þessu sinni og átti eftirfarandi viðtal við hinn litrlka eiganda verzlunarinnar, Halldór Laxdal, sem segist hafa svipað skipulag og Mao formaður, þótt i smærra sé, vera allt I senn bilstjóri, lager- maður, forstjóri og hvaöeina I Radiobúðunum þrem, þrátt fyrir annars ágætt starfslið. Aö venju spurðum viö fyrstum ætt og uppruna og haföi hann þetta aö segja, inn I milli þess aö hann svaraði i tvo sima eöa þrjá. Lærði radiotækni hjá RCA — Ég er ættaður úr Eyjafiröin- um, en kom suður áriö 1938 aö mig minnir, þvi ég ætlaöi aö veröa loftskeytamaöur, hvaö ég varö, ég lauk prófi frá Loft- skeytaskólanum áriö 1939 og fór siöan til sjós á togara. Loft- skeytaskólinn var -þá til húsa i gamla pósthúsinu 1 herbergi þar og skólastjórinn var Gunnlaugur heitinn Briem. — Ég var eitt ár, eða svo á togurunum, þvi ég haföi aldrei ætlaö mér aö stoppa þar, heldur notaöi siglingarnar til þess aö safna peningum fyrir frekara nám i radio-tækni. — Þá var gott aö safna pening- um, „hræöslupeningarnir” svo- nefndu voru i fullu gildi, eöa áhættuþóknunin og fé safnaðist fyrir fljótt hjá þeim sem nenntu ekki að eyöa þvi strax. Slðan hélt ég til Bandarikjanna og hóf nám i radio-tæknifræði hjá RCA Institut i New York. — Ég kom heim aö afloknu námi áriö 1945 aö mig minnir, en þá var veriö aö afhenda ís- lendingum flugvallarmannvirkin i Reykjavik, eða hluta þeirra. Mitt starf var aö taka viö vissum hlutum af setuliðinu, þar á meðal radio-þjónustu vegna flugturns- ins og fl. Þaö voru merkilegir timar og ég var með, eöa viö- staddur þegar þeir kveiktu i aöal- stöðvunum, head quarters. Þeir lögöu bara eld i allt drasliö og logarnir komu hvissandi eftir gólfinu I bragga eftir bragga. — Af hverju kveiktu þeir I? — Það fóru nú ýmsar sögur af þvi.þarámeöal var ein skýringin sú, að eldsvoöi væri heppilegri en endurskoðun á fjármálum her- deildanna. Þeir voru hinir kát- ustu og tóku myndir og viö sem vildum reyna aö bjarga einhverju dóti hættum þvi fljótlega og horföum á logana eyöa hinum striðsögulegu minjum. LORAN stöðin á Reynisfjalli Stjórnstööin lokaði sem sagt með eldsvoöa. — Næsta starf mitt var aö taka Halldór Laxdal, l'orstjóri Radió- búðarinnar hf. Halldór lærði loft- skeytafræði og tæknifræði, en snéri sér að viðgeröum og við- tækjasölu, þegar hann var rekinn úr starfi, þegar MacCarthy-ism- inn var I algleymingi. Halldór er kvæntur Sigriði Axelsdóttur og eiga þau 5 börn, fjóra syni og eina dóttur. Þau búa i Kópavogi. Búðin i Skipholti 19 v/Nóatún var stofnuö fyrir fjórum árum og er stærsta búðin. Radíóbúðina við Loranstööinni á Reynisf jalli, sem þá var algjört hernaðar- leyndarmál. LORAN tækin voru þá spánýtt staösetningakerfi og öllu var stranglega haldiö leyndu. Þetta mun hafa verið áriö 1946. — Mitt verk var aö þjálfa inn- lenda menn til þess að taka við stöðinni, en ég byrjaði fyrstur og var settur inn i málin, og slöan réöi ég mannskapinn og um voriö tókum við að okkur reksturinn að fullu. — Hvcrs vegna hættirðu þar? — Ég var rekinn. Þá var Mac- Carthy-isminn i algleymingi, en MacCarthy var öldungadeildar- þingmaður frá Wisconsin i Bandarikjunum, sem gat sér það til frægöar á sinum tima aö sjá svo aö segja allstaöar kommún- ista. Hann hélt auðvitaö að ég væri rússneskur njósnari, eða þeirsem fyrir hannstörfuðu og ég var rekinn. Ég var stuðnings- maður Sósialistaflokksins og það var þeim nóg. — Manni finnst nú á timum, þetta vera óskaplega einkenni- legt, og ungt fólk myndi ekki skilja þetta, MacCarttiy-isminn minnir meira á miðaldir, en nú- timann, sem betur fer. Þessi stefna sigldi i kjölfar versnandi sambúðar milli stór- veldanna, sem höföu verið i vin- áttu og samstarfi viö að losa heiminn undan oki nasismans, en nú tók versnandi sambúö rikj- anna sem sé aö bitna á hinum al- menna borgara, og m.a. ég var rekinn úr starfi. — Mér tókst ekki aö fá annaö starf hjá Landsslmanum, en ég skal láta þaö ósagt, hvort þeim hefur veriö bannaö aö ráöa mig eöa ekki, og þá byrjaöi ég meö Radiobúöina, sem fyrst var til húsa I dálitlu plássi i húsi Guö- mundar blinda aö Laugavegi 168, og þar hóf ég viðgerðir á útvarps- tækjum og sölu á einhverri smá- vöru. Þaö má þvi segja aö Mac- Carthy hafi I rauninni stofnaö Radiobúöina. Erfiðir timar — Þetta voru erfiöir timar. Ég var rekinn fyrirvaralaust og missti þá auövitaö húsnæöið lika fyrir austan. Þá voru glfurleg húsnæðis- vandræöi I Reykjavík og sem verra var, mikið atvinnuleysi var rikjandi. Þetta var um há vetur, sem ég kom suður með konu og þrjú börn og það voru sannarlega ekki blíðar viötökur þetta. Það var aö visu hægt aö fá húsnæöi á gifurlegu okri, sem enginn réöi i rauninni viö og allra slzt ég, en

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.