Tíminn - 05.04.1977, Blaðsíða 15

Tíminn - 05.04.1977, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 5. aprll 1977 forustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Mwgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: SigrúnBjörnsdóttirles söguna „Strák á kúskinns- skóm” eftir Gest Hannson (4). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Hin gömlu kynni kl. 10.25: Valborg Bentsdóttir sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Suisse Romande hljóm- sveitin leikur „Thamar”, sinfóniskt ljóð eftir Milij Balakireff, Emest Anser- met stj./ David Oistrakh og Nýja fllharmonlusveitin i Lundúnum leika Fiðlukon- sertnr. 1 i a-moll op. 99 eftir Dmitri Sjostakovitsj. Maxim Sjostakovitsj stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Póstur frá útlöndum Sendandi: Sigmar B. Hauksson. 15.00 Miðdegistónleikar Fil- harmoniusveit Vinarborgar leikur Forleik i C-dúr i itölskum stil eftir Franz Schubert, Istvan Kertesz stj. Felicja Blumental og Nýja kammersveitin I Prag leika Pianókonsert i D-dúr eftir Leopold Kozeluch, Al- berto Zedda stj. Cleveland- hljómsveitin leikur Sinfóniu nr. 95 i c-moll eftir Joseph Haydn, George Szell stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Litli barnatiminn Guð- rún Guölaugsdóttir stjórnar timanum. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hvererréttur þinn 19.35 Hvererréttur þinn?Um- sjónarmenn þáttarins: Ei- rikur Tómasson og Jón Steinar Gunnlaugsson lög- fræðingar. 20.00 Lögunga fólksinsSverrir Sverrisson kynnir. 20.50 Frá ýmsum hliðum Hjálmar Arnason og Guð- mundur Árni Stefánsson sjá um þáttinn. 21.30 Trió fyrir fiðlu, selló og piand eftir Charles Ives Guðný Guðmundsdóttir, Hafliði Hallgrimsson og Philip Jenkins leika. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (48). 22.25 Kvöldsagan: „Sögukafl- ar af sjáifum mér” eftir Matthias Jochumsson Gils Guðmundsson les úr sjálfs- ævisögu hans og bréfum (16). 22.50 Á hljóðbergiMoll Fland- erseftir Daniel Defoe. Irska leikkonan Sioban McKenna les. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Þriðjudagur 5. april 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Þingmál. Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar- maður Haraldur Blöndal. 21.10 Colditz. Bresk-banda- riskur framhaldsmynda- flokkur. Svikarinn. Þýöandi Jón Thor Haraldsson. 22.00 Utan úr heimi.Þáttur um erlend málefni. Umsjónar- maður Jón Hákon Magnús- son. 22.30 Dagskrárlok. Hættulegt ferðalag eftir Maris Carr Báturinn átti að fara strax eftir morgunverð daginn eftir og Penny fór snemma á fætur til að hjálpa Grace með barnið. Nær allt starfsfólk plantekrunnar var á bryggjunni til að kveðja. Fanný og Nellie voru svo niðurdregnar, að Penny hló og sagði að þær myndu hitt- ast allar, niðri í bænum. Þær hresstust svolítið við þá tilhugsun. — Við verðum í Belem í að minnsta kosti mánuð, sagði Grace áköf. — Þið hin verðið komin þangað á þeim tíma. Þú veizt heimilisfangið, Fanný. Hringdu um leið og þú getur. Allir voru komnir um borð. Brian stóð við stýrið, brosandi og í sólskinsskapi að venju. Mike var klæddur hvítum stuttbuxum og skyrtu og leit glæsilega út eins og jafnan. Hann gaf innfæddu piltunum síðustu skipanir sínar og skyndilega kom einhver leiðinda tilf inning yf ir Pennýju. Bara, að hún gæti farið lika! Hún hafði ekki fengið eitt einasta tækifæri til að tala við Mike og hann tók alls ekki eftir henni núna, svo bezt væri fyrir hana að fara. Henni fannst hún alein í heiminum og var í þann veginn að leggja af stað upp í þorpið, þegar hún heyrði einhvern stökkva niður á bakkann. Hún sneri sér við aftur og þarna stóð Mike og brosti breitt niður til hennar. Langt andartak starði hún aftur og fann blóðið ólga í æðum sér. Og áður en hún vissi af, greip hann báðum handleggjunum utan um hana og lyfti henni upp frá jörðinni. Varir hans þrýstust fast að hennar skjálf- andi og þegar hann loks setti hana aftur niður, náði hún ekki andanum til að segja eitt einasta orð. — Husaðu um þetta....Það ætti að hjálpa þér til að gleyma Roy, sagði hann snöggt. — Sjáumst eftir sex daga. Hann brosti glettnislega til hennar og stökk aftur um borð í bátinn. Piltarnir leystu landfestarnar og hróp og köll kváðu við, þegar báturinn skreiðfrá bryggjunni. Fanný kom til Pennýjar og það var forvitnisglampi í augum hennar. — Þetta var sannarlega vandlega kvatt! sagði hún og brosti, þegar hún sá vandræðasvip- inn á kafrjóðu andliti Pennýjar. — Svona hef ég aldrei séð Mike gera áður! — Það var að minnsta kosti ekkert ástúðlegt, sagði Penný þurrlega. Hann gerði þetta bara vegna þess að hánn vissi að ég myndi reiðast. — Æ, láttu ekki svona! Fanný hló. — Þú ætlast þó ekki til að ég trúi því? Hún andvarpaði. — Þetta minnir mig á okkur Will fyrir tuttugu árum, hvort sem þú trúir því eða ekki! Pennybrosti. — Willerennþá bálskotinn í þér, Fanný og þú veizt það. Þið eruð mestu fyrirmyndarhjón. Penny var þakklát fyrir að samræðurnar snerust ekki lengur um Mike. Alla leiðina upp í þorpið var Fanný að segja henni sögur frá yngri árum þeirra Wills saman. Hvers vegna hafði Mike kysst hana þarna svo allir sáu? Penny f ékk nægan tíma til að hugsa um það næstu dagana, sem virtust hver öðrum lengri. Var þetta til- raun til að segja henni aðhann hefði þráttfyrir allt ekki verið ástfanginn af Júlíu? Hugsaði hann ef til vill svo- litið um hana? En hvers vegna hafði hann þá skipt sér svona lítið af henni? Æ, allar þessar spurning- ar Penny hélt að höf uðið á sér myndi klof na af öllum þessum hugsunum. Ef hann var nýbúinn að missa kon- una, sem hann hafði elskað, færi hann varla að kyssa aðra svona rétteftir jarðarförina. Hann gat ekki verið þannig. Stundum þegar hún sat og hugsaði á þessa leið, varð hún svo glöð, að henni fannst hún myndu geta dansað og sungið. En loksttókst henni að vísa allri óskhyggju á bug og finna sér eitthvað að gera. Will varð steinhissa þegar hún bauðst til að hjálpa honum í verzluninni, en þar sem hann gat sér þess til að henni leiddist, þáði hann boðið með þökkum. Hún fékk meira að segja áhuga á garðyrkjustörf um og hjálpaði Fannýju og inn- fæddu drengjunum að blúa að blómabeðunum. Fjórða morguninn vaknaði Penny snemma og það fyrsta sem henni datt í hug, var að nú væru Mike og hinir komnir aftur á heimleið. Þeir kæmu eftir tvo daga. Enn var of snemmt að fara á fætur, svo hún lá kyrr í rúminu og lét sig dreyma um allt sem gæti gerzt, þegar þær kæmu. En svo settist hún snögglega upp. Hvað átti hún að segja við Mike, þegar þau hittust aft- ur? Myndi hann hæða hana og gera leiðinlegar athuga- semdir um kunningsskap þeirra Roys? Hún var óróleg allan daginn og undir kvöld, þegar hún hafði ekkert annað að gera, ákvað hún að bezt væri að byrja að pakka saman dótið. Fanný hafði sagt, að liklega færu þau eftir nokkra daga, þvi Mike kæmi með nýjan yfirmann. Ég ætti að koma bókunum hans pabba fyrir fyrst, hugsaði Penný, þegar hún hafði losað töskurnar. Mike sagði að ég gæti sótt þær, þegar ég vildi. Nú voru aðeins fáir eftir á plantekrunni og það var óvenju hljótt, þegar Penny gekk yf ir torgið að kofa Mikes. Hún mundi hvar hann hafði lagt bækurnar og dótið og líka hversu nær- gætinn hann hafði verið, þegar hann sýndi henni það. Það var eitt af þeim fáu skiptum, sem Pennýju hafði fundizt samband þeirra náið. Hún leit forvitnislega í kring um sig, þegar hún opnaði dyrnar. Nú var ekki allt i jafn mikilli röð og reglu og í fyrra sinnið, þegar hún kom. Á skrif borðinu úði og grúði af skjölum og möpp- um og bókhald Wills fyllti tvo stóla. Ég býst við að hann þurf i að taka þetta allt með sér, þegar við förum, hugsaði Penny og stundi þungan. Svo virtist, sem Mike hefði yfirgefið kofann í flýti. Hún gakk að skrifborðinu og ýtti til bréfum, sem virtust vera að detta á gólf ið. Hún greip andann á lofti, þegar hún kom auga á bréf, sem Mike hafði greinilega verið að skrifa. Hann hlaut að hafa verið truf laður, því hann hafði ekki einu sinni lokið setningunni. Það var ekki naf nið og heimilisfangið á bréf inu, sem olli þessum viðbrögðum Pennýjar, heldur rithöndin. Þessa djarflegu skrift mundi hún þekkja hvar og hve- nær sem væri...auðvitað, því hún hafði hlakkað til að f á bréf með þessari skrift í tvö ár...! Svo það þá Mike sjálfur, sem hafði skrifað Tapajoz undir bréfin! Henni gat ekki skjátlast aftur. Hún f letti hratt gegn um skjöl- in á borðinu og loks fann hún undirskrift Mikes á einu bréfi. Hún rannsakaði hana vandlega, en lagði síðan f rá sér allar bækurnar á stól og settist á gólf ið. Hugsan- irnar þyrluðust um í höfði hennar. Nú kom allt heim og saman. Mike hafði áreiðanlega starfað við Tapajoz- ána með f öður hennar. Ekki var víst að þeir hef ðu verið þar saman allan tímann, en þeir höfðu orðið vinir hérna við Tigero. Mike vissi sjálfsagt, að faðir hennar vildi skrifa henni reglulega. En hvers vegna hafði hann gert gys að henni, þegar hún sagði honum að hana langaði til að hitta þennan pennavin sinn? Það var eins og allt félli saman og gleðin hvarf. Ef til vill hafði Mike orðið f yrir vonbrigðum með hana? Átti hann von á að hún væri öðruvísi? Slíkt gat gerzt. Hann hafði varað hana við og sagt henni, að ef til vill vildi maðurinn ekki gefa sig f ram og hann hafði ráðlagt henni að gleyma þessu öllu. Aldrei hafði henni fundizt hún jafn ein og yfirgefin. Hún þurrkaði tárin, sem voru tekin að streyma niður vanga hennar óg gekk að skápnum í horninu. Þaðan tók hún bækur föður síns og muni og án þess að lita f rekar i „Wilson er á leiöinni hingaö. Pabbi. Þú ættir aö láta þér detta eitthvaö sniöugt i hug til aö kæla ofsann i karlinum”. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.