Mánudagsblaðið - 04.10.1965, Blaðsíða 1
\
17. árgangur
Mánudagur 4. október 1965
36. tölublað.
Blaéfyrir alla
Flugfélögunum, Flugráði og Flugmála
stjórn bægt úr „flugvallarnefnd"
Furðuleg og hláleg nefndarskipan flugmálaráðherra — Nefndar
menn eitt sameiginlegt — „ekkert vit á flugvallarmálum64.
Faxafréttir, starfsmannablað Flugfélags Islands, er nú nj'-
komið út og flytur að mestu innanfélagsfréttir. 1 blaðið skrifar
nú Örn Ó. Johnson, forstjór! F.í. stutta rabbgrein um flugvall-
armálin, en s.I. vor skipaði flugmálaráðherra nefnd til að rann-
saka öll þessi mál, en nefndin hefur m.a. snúið sér til F.í. og
leitað álits þess um ýmislegt varðandi flugvallarreksturinn hér
í Reykjavík, á Keflavíkurvelli eða vajrðandi byggingu nýs flug-
vallar.
ENGINN
SÉRMENNTAÐUR.
Örn bendir á í grein sinni
harla merkilega ráðstöfun, en
sú er, að flugfélögin hafa eng-
an mann í nefndinni, né held-
ur fulltrúar úr flugráði eða
flugmálastjórn! Það er erfitt
að skilja hvað llugmálaráð-
herra meinair með slíkri skip-
an, því þótt Örn Johnson segi,
að allir þessir menn séu ,,m{et-
ir menn', þá hefur Mánudags-
blaðið spurzt fyrir um „þekk-
ingu“ þeirra á þessum málum
og fengið þær upplýsingar, að
hún sé næstutn engin, og
hvergi séirfræðileg. Til gamans
viljum við telja upp nefndar-
menn: Brynjólfur Ingólfsson,
ráðuneytisstjóri, Gústaf E.
Pálsson, verkfr., Guðlaugur
Þorvaldsson, skrifstofustj., Sig-
urgeir Jónsson, hagfr. Seðla-
bankans og Gunnar Vagnsson
deildajrstj. Bjarni Einarsson,
viðskiptafr. vinnur að sérstök-
um verkefnum fyrir nefndina.
| MÆTIR MENN
! Það er engin ástæða til að
rengja orð forstjórans um að
þetta séu allt mætir menn. Það
eru þeir eflaust. Hitt er skylt
að benda á, að EKKI EINN
EINASTI ÞEIRRA er annað
en titlar þeirra gefa til kynna
og virðast sumir þessara titla
harla fjarri flugvallargerð,
staðsetningu og rekstursáhrif-
um flugvallanna hér við fló-
ann.
HVAÐ MEINAR
RÁÐHERRA?
* Það eir ekki létt verk, að
gera sér í hugarlund hvar ráð
herrann er að kaupa sér frið
með því að skipa þessa flokks-
gæðinga í embætti eða nefnd,
sem þeir hafa hvorki menntun
né annað að bakhjarli til að
sinna. Hitt verður að benda á,
að flugvallærgerð hér er það
mikið og dýrt verkefni, að um
þau mál ættu ,aðeins að fjalla
erlendir sérfræðingar og kunn-
áttumenn í flugmálum Islend-
inga, I stað þess að gera þá
aðeins að tillöguaðilum, sem ef
laust, ef að vanda lætur, ekk-
ert tillit verður tekið til.
Það væri sannarlega þakk-
arvert ef tækist að halda flug-
málum í heild, flugvallarmál-
unum sérstaklega utan við póli-
tik og gæðingaskipan.
„Osjálf rái" ávísa naskrif valda deil-
um - Kaupmannasamtök í eldlínunni
Ber út óhróður um gæzkuríkan sjálfstæðismann
— Herforingjar kaupmangara leiddir á blóð-
völl — Liðsmenn hlaupa undan merkjum — Ný
yfirlýsing væntanieg?
Ekki blæs nú byrlega hjá forkólfum verðlunarmannastéttar-
innar og sitja óvinir á fleti fyrir livarvetna. Fyrst kom það
upp, að óknyttamenn laumUðu smyglvarningi í matvörubúð foir-
manns verzlunarráðs, eij síðan myndast kviksögur um það, að
formaður kaupmannasamtakanna þjáist nú af þessum óviðráð-
anlegu skrifum, sem jafnan hafa þótt ískyggileg og í hæsta
máta óábyggileg. Hefur vikublað eitt nú krafizt rannsóknar á
öllum þessum vandræðum, en blað þetta er hið mesta mála-
fylgjublað og þykir ekkert mál umtalsvert nema, það komi þar
nærri.
KURRAR I
K A UPSÝ SLUMÖNNUM
Annars eru viðbrögð verzl-
Er það saf að fræg bílstöð sé
að baki Langjökulssmyglinu?
unarmanna í heild hin skemmti
legustu. Þeir kurra illa hver í
sínu kramhúsi, en vilja ekki
blanda sér í málið. Munu það
þykja ómerkilegir liðsmenn, er
hlaupa í felur, meðan herfor-
ingjar þeirra berjast einir á
blóðvellinum. Einhver órói hvíl
ir þó innan vissra klíkna stétt
arinnar, einkum hinna eldri,
sem krúnka eitthvað í þá átt-
ina að nú sé ,,blettur“ fallinn
á liópinn og beri að afmá hann
hið snarasta.
Um formann kaupmanna-
samtakanna skal ekkert full-
yrt. Hann er fósturbarn for-
kólfa íhaldsins, þótt heldur fá
ir viti eiginlega hvaða hæfi-
leikar urðu honum t.íl eKVror
vegsemdar. Prægastur er hann
fyrir dugnað sinn í að koma
,,tum“-eigendum og öðrum
smákaupmönnum í vanda með
því að loka kvöldsölum þeirra,
en sögðu illgjarnir að öfund
réði meira en hagsmunir þeirra
manna, sem hann átti að berj-
ast fyrir. Þótti það mikill ljóð-
ur á ráði borgarstjóra, að hann
skyldi láta þennan pilt hafa
slík völd, sem hann hafði.
MISTÖK
Nú fullyrðir blað eitt, að
Sigur r nafi gefið ávisanir út,
sem ekki voru góðar, en al-
mannarómur vill hafa, að upp
hæðin sé nær kr. 800 þús., en
ef rétt er, verður hinum seka
gert að greiða allt að 25 pró-
sent upphæðarinnar í sektir
fyrir mistök sín. Engum bland
ast hugur um, að slík ávísana
skrif eru ekki gerð af ráðnum
hug, og munu nú sem fyrr ein-
hver æðri völd hafa heltekið
þennan samvizkusama pilt og
reynt að steypa honum í glöt-
un.
Það er ekki úr vegi, að við
förum að dæmi hins ágæta
blaðs, sem um þessi mál fjall-
ar og krefjumpt einhvers. Mun
um við eindregið krefjast þess
^rmalur kaupmannasam-
takanna gefi út handhæga yf-
irlýsingu um að allt sé þetta
uppspuni. Eru þar hæg heima-
tökin, því sagt er, að vinur
hans, Þorvaldur, hafi í fórum
sínum nokkur enn ónotuð yf-
irlýsingablöð, sem skýlaust
hreinsa af svona ákærum. Mun
formaðurinn eflaust þakka
slíka aðstoð enda ekki á hvers
manns færi að semja slíkar
sakleysisyfirlýsingar svo allir
trúi.
STÉTT I EINELTI
Það er furðu bíræfið að
leggjast svona hastarlega á
forustumenn kaupsýslumanna,
heildsala, stórkaupmanna og
smákaupmanna. Einmitt nú
ríður á að þessi mikla stétt
hafi örugga forustu, sem ekki
hugsar um eigin gróða heldur
allrar stéttarinnar. Hefur og
margsinnis verið sannað, að
hvorugur þessara manna hef-
ur sótzt eftir persónulegum
auði, heldur sí og æ fórnað
sér fyrir heildina. Finnst oss
tími til kominn, að báðir þessir
menn hreinsi sig með öllu, af
leiðindaáburði, sæki óknytta-
menn og seiðskratta lil sektar
og útlegðar og „komi húð fyrir
þá gjald þrýtur“ eins og segir
í gömlum dómum.
Keppnin heldur áfram:
■ ‘
Hver er islenzka
stúlkan í Holly-
wood?
Hér birtast tvær myndir af j
ungu íslenzku stúlkunni í
Hollywood, sein ætlar að verða
filmstjarna þar vestra. ,,Það
er svo gott að vakna snemma“
virðist stærri myndin segja, en
lesendur verða sjálfir að
mynda sér skoðun um hina
myndina. Við eigum enn 2—4
myndir eftir, sem birtast bráð-
lega. I millitíðinni ættu ungu
mennimir að hugsa málið.
Hví ekki fingraför
allra Islendinga?
Yrði öryggisráðsföfun — Upplýsti glæpi — Slys,
sjórekið fólk o.s.frv. — Fáránleg mótmæli — Sjálf-
sögð ráðstöfun.
Fyrji nokkrum árum skaut Mánudagsblaðið fram þeirri hug-
myifl, að taka skyldi fingraför allra Islendinga. Taldi blaðið
þá fram ýmsar ástæður fyrir þvi, að þetta væri æskilegt, t.d.
ef tnenn ræki úr sjó, skilríkjalausa, ef flugslys yrðu og farþegar
og áhöfn skaðaðist eða í öðmm tilfellum, þegar \iðkomandi
þekktust ekki af andliti, líkamseinkennum, eða Hefðu ekki skil-
riki. Þá lagði blaðið sérstaka áherzlu á það, að slíkt myndi
auðvelda mjög lögreglustörf, t.d. að handsama þjófa, innbrots-
menn o.s.frv.
„MÖÐGUNIN“ MIKLA
Þessari tillögu var tekið sem
fjarstæðu af hinu opinbera.
sögðu þeir, sem um málið
ræddu, að slíkt væri ,,móðgun“
við almenning og myndi marg-
ur saklaus gjalda. Þessi við-
bára, eins og flestar aðrar
varðandi það að „móðga“ al-
menning er eins fáránleg og
hún sýnir glögglega hinn ó-
upplýsta búra, sem löngum
hefur verið við völd hér á
landi. Að taka fingraför
manna er fyrst og fremst gert
í öryggisskyni, en kemur hins-
vegar mjög að notum í ýmsum
vandræðum, sem kunna að
| dynja yfir. Má þar m "> nefna
I ef til ófriðar kemur og árása
úr lofti, þar sem fólk yrði
drepið og skaðað þannig, að
ekki þekktist nema öryggi
fingrafaranna kæmi til.
AUÐVELDAÐI
RANNSÓKN
1 vikunni upplýstist t.d. ao
einhverjir óknyttamenn hefðu
brotizt inn í sæluhús Perða-
félagsins, brotið þar og
skemmt, jafnvel rænt sam-
sko-tabauk. Slik innbrot, sem
þessi, eru, því miður, algeng.
Innbrot í búðir, fyrirtæki ýmis
o.s.frv. eru nær daglegir við-
burðir í höfuðstaðnum. I lýs-
ingu, sem eitt blaðanna birti
af innbroti þessu, í sæluhúsið,
Pramhald á 6. síðu.