Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 51
„Ef þú ferð á markað og þér vegn- ar vel, hvers vegna ættirðu ekki að halda áfram? Íslenskir fjárfestar hafa séð kauptækifæri á Norður- löndunum og í Bretlandi og stokk- ið á þau,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson. Halldór segist hvorki sannfærð- ur um að hlutfallsleg skipting fjár- festinga milli landa eigi að breytast eða að slíkt sé æskilegt. Engin rök- bundin nauðsyn sé á því að stefnu- breyting verði í þeim efnum. Hann telur þó að menningar- legir þættir kunni að hafa eitthvað að segja. „Þessi samfélög eru nátt- úrulega mjög opin fyrir erlendum fjárfestum. Lundúnir, og raunar New York líka, eru til að mynda samansafn innflytjenda að miklu leyti. Það skiptir engu máli hvaðan þú ert, bara hvað þú gerir.“ Halldór telur að gríðarleg hug- arfarsbreyting hafi átt sér stað und- anfarin ár. Menn hugsi ekki lengur um Ísland sem eina markaðinn, heldur horfi með opnum huga út fyrir landsteinana. „Skýringin ligg- ur held ég í augum uppi. Ísland er náttúrulega ótrúlega lítill markað- ur. Þegar markaðurinn er orðinn mettur hér er í rauninni bara einn kostur í stöðunni: Útrás.“ Segja má að einkavæðing bank- anna um síðustu aldamót hafi leyst áður óþekkt öfl úr læðingi á íslenskum fjármálamarkaði. Hall- dór segir tilgang bankakerfisins að veita fjármagni til hagkvæmustu fjárfestinga sem völ er á. Þegar þetta afl hafi enn verið undir ríkis- doða hafi hlutirnir óhjákvæmilega ekki verið jafn skilvirkir og þeir eru í dag. „Það mætti kalla þetta tómatsósuáhrif. Maður kreistir og kreistir en ekkert gerist. Svo þegar stíflan loksins brestur er eins og flæðið ætli aldrei að stöðvast.“ Halldór telur þá umræðu sem undanfarið hefur átt sér stað um íslenska hagkerfið vera til þess fallna að styrkja stoðirnar. Gagn- rýni hafi að miklu leyti verið röng og óréttmæt. Einblínt hafi verið á einn, afmarkaðan hlut, til að mynda viðskiptahallann, og álykt- anir dregnar „Það hefði mátt skoða hlutina í víðara samhengi og líta til dæmis til þess að eignir lífeyr- issjóðanna nema hærri upphæð á mann hér en eignir norska olíu- sjóðsins.“ Halldór segir einnig vafasamt að lesa of mikið úr þeirri staðreynd að erlendar fjárfestingar nái hærra hlutfalli landsframleiðslu en gerist og gengur í öðrum löndum. „Hag- kerfið er lítið og því eðli málsins samkvæmt veikara fyrir sveiflum. Menn sjá það best sjálfir að ein stór kaup geta haft drastísk áhrif á hlutfallið. Svo er spurningin nátt- úrulega alltaf hvenær fyrirtæki er íslenskt og hvenær ekki. Sum þess- ara fyrirtækja fá áttatíu til hundrað prósent tekna sinna erlendis frá.“ 7 Halldór Benjamín Þorbergsson segir hagkerfið lítið og vafasamt að lesa of mikið út úr því að erlendar fjárfestingar verði hlutfallslega hærri en annars staðar. Gripu gæsina er hún gafst Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, segir ástæðuna fyrir því að íslenskir fjárfestar hafa einkum sótt til Bretlands og Norðurlanda einfaldari en margur kann að halda. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { íslensk útrás } ■■■■ Íslenska fyrirtækið Industria hefur opnað skrifstofu í Kína. Industria selur breiðbandslausnir til fjárfest- inga- og fjarskiptafyrirtækja og er nú með starfsemi í sex löndum. Starfsmenn Industria eru nú hundrað og tíu talsins. Fram- kvæmdastjóri Kínaskrifstofu Indu- stria verður Song Shen. Skrifstofan verður sú fyrsta á vegum fyrirtæk- isins utan Evrópu. „Kínaskrifstofan mun vinna náið með öðrum félögum í sam- steypunni. Eitt af helstu verkefnum Industria Kína verður að vinna með Zignal, stafræna sjónvarpslausn Industria, því á Kínamarkaði eru gríðarlegir möguleikar að opnast með stafrænni sjónvarpstækni.“ Industria hlaut á dögunum verð- laun frá viðskiptatímaritinu Red Herring, fyrir að vera eitt af hundr- að framsæknustu fyrirtækjum Evr- ópu. Industria til Kína Kínaskrifstofa Industria verður sú fyrsta á vegum fyrirtækisins utan Evrópu. Song Shen, framkvæmdastjóri Kínaskrifstofu Industria, fyrir utan News Building í Shenz- hen, þar sem hin nýja skrifstofa er til húsa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.