Fréttablaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 4
4 21. júlí 2006 FÖSTUDAGUR Í frétt um rússneska skólaskipið Sedov í gær var ranglega farið með stærð segl- búnaðar skipsins. Þótt skipið sé stórt eru 32 segl þess ekki fjórir ferkílómetrar að flatarmáli heldur fjögur þúsund fermetrar. LEIÐRÉTT Orðin „framleiðendur, heildsalar og smásalar gætu sumsé hirt skatta- lækkunina,“ í frétt Fréttablaðsins af viðbrögðum forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, við skýrslu formanns matvæla- verðsnefndar á miðvikudag voru ekki höfð eftir honum. ����������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ������������������� ����������������������������������������������������������������� ������ ������� ���� ���� ������ � ������ ����� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� SKEMMTANAHALD Björn Bjarna- son, dóms- og kirkjumálaráð- herra, hefur gefið út umburðar- bréf til lögreglustjóra vegna löggæslukostnaðar við útihátíða- hald. Samkvæmt nýjum reglum skulu mótshaldarar endurgreiða lögreglustjóra allan kostnað sem hlýst af aukinni löggæslu umfram það sem eðlilegt getur talist. Við mat á því hvað megi teljast eðlilegt ber lögreglustjóra að taka mið af reynslu fyrri ára vegna sambærilegra skemmtana, fjölda gesta, viðbúnaði leyfishafa og staðsetningu skemmtunarinnar, það er hvort hún er haldin í þétt- býli eða dreifbýli. - shá Löggæslukostnaður útihátíða: Reglugerð um endurgreiðslur ÚKRAÍNA, AP Júlía Tímósjenkó og um 120 félagar í þingflokki henn- ar á Úkraínuþingi gengu út af þingi í gær í mótmælaskyni við þingmeirihluta Viktors Janúkó- vitsj, fyrrverandi forseta lands- ins. Júlía krefst þess að Viktór Jús- jenkó, núverandi forseti, leysi upp þingið og boði til kosninga til þess að koma í veg fyrir að nýja þing- meirihlutanum takist að mynda ríkisstjórn. Hún hét því að þing- flokkur hennar, sem er sá næsts- tærsti á þinginu, muni ekki mæta til þings fyrr en daginn sem Jús- jenkó forseti leysir það upp. Honum er það ekki heimilt fyrr en 25. júlí næstkomandi. - gb Upplausn Úkraínuþings: Flokkur Júlíu farinn af þingi FÁNI BREIDDUR YFIR AUÐU SÆTIN Júlía Tímósjenkó og flokksfélagar breiddu stóran Úkraínufána yfir þingsæti sín áður en þau gengu út. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 20.7.2006 Bandaríkjadalur 73,21 73,55 Sterlingspund 135,27 73,55 Evra 92,39 92,91 Dönsk króna 12,383 12,455 Norsk króna 11,64 11,70 Sænsk króna 10,02 10,06 Japanskt jen 0,6271 0,6307 SDR 107,86 108,50 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 128,0652 Gengisvísitala krónunnar FJARSKIPTI Í stjórnsýslukæru sem barst til nefndar Póst- og fjar- skiptastofnunar 6. júní segir að erfiðlega geti gengið að rekja sím- töl í netþjónustu og á þeim for- sendum geti Ríkislögreglustjóri og Neyðarlína átt í erfiðleikum með að sinna störfum sínum með eðlilegum hætti. Í kærunni segir meðal annars að miklir „löggæslu- og rannsókn- arhagsmunir séu í húfi“, þar sem „mjög yrði höggvið í þann árangur sem náðst hefur við uppbyggingu fjarskiptamiðstöðvar lögreglu“, ef notendum yrði það í sjálfsvald sett hvort símar þeirra yrðu í skráðir innan eða utan staðsetn- ingakerfisins. Hinn 8. maí ákvað Póst- og fjar- skiptastofnun að Símanum hf. væri óheimilt að synja Atlassíma ehf. um númeraflutninga á grund- velli þeirra sjónarmiða sem síðar- nefnda félagið hélt fram. Í ákvörð- unarorðum segir „að Símanum hf. beri að flytja símanúmer í almennri talsímaþjónustu yfir í netsímaþjónustu til Atlassíma ehf. þegar um það berst umsókn sem fullnægir kröfum þess verkferils sem gildir um númeraflutning á fastanetinu.“ Ákvörðunin var tekin í deilu- máli sem sprottið var af athuga- semdum Símans hf. við því að ekki kæmi fram í umsókn Atlassíma ehf. hvar símanúmerið skyldi skráð. Af hálfu Símans var vísað til þess, að ef viðskiptavinur Atlassíma kysi að nálgast þjón- ustu um annað internetsamband „væri það mögulegt án tillits til nefndra félaga.“ Síminn taldi á þessum forsendum, væri Atlas- síma óheimilt að flytja númer til annarra en þeirra „sem tengja þau yfir heimataug, það er með skrán- ingu á tiltekinn stað“, eins og segir orðrétt í stjórnsýslukæru. Sérstaklega er frá því greint í kæru, og ákvörðun Póst- og fjar- skiptastofnunar, að notendur „sem kaupa svokallaða flökkuþjónustu“, en þá er engin föst staðsetning skráð og gengið út frá því að not- andinn geti tengst þjónustunni hvar sem er, komist hann í inter- netsamband, að það geti verið vandkvæðum bundið að staðsetja símtöl í netsíma. Póst- og fjarskiptastofnun lagði áherslu á það þegar ákvörðunin var tekin að fjarskiptafyrirtæki þyrftu að gera notendum sínum grein fyrir þeirri hættu sem gæti skapast af því að nota netsíma. magnush@frettabladid.is Erfitt að staðsetja notendur netsíma Í stjórnsýslukæru Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar segir að það geti verið vandkvæðum bundið að staðsetja notendur netsíma. Hætta getur skapast í neyðartilfellum í störfum lögreglu og björgunarsveita, að sögn kærenda. NÚTÍMAFJARSKIPTABÚNAÐUR Ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan kröfðust þess í stjórn- sýslukæru að brábirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar frá 8. maí, um flutning á símanúmerum, yrði felld úr gildi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÖRYGGISMÁL Allir sem starfa í Leifsstöð við öryggisgæslu, vopna- eða líkamsleit á farþeg- um hafa sótt sérstök námskeið þar að lútandi og eiga allir að þekkja þau lög og reglur sem gilda. Þetta staðfesta bæði flug- vallarstjóri á Keflavíkurflug- velli og forsvarsmenn þeirra öryggisfyrirtækja sem að vopna- leit koma í Leifsstöð en Frétta- blaðið hefur heimildir fyrir því að karlkyns öryggisverðir hafi framkvæmt líkamsleit á kvenkyns farþegum fyrir fram- an aðra farþega. Er þar um að ræða starfsmenn þeirra tveggja öryggisfyrirtækja sem sinnt hafa vopna- og líkamsleit í Leifs- stöð frá byrjun júlí, Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands. Björn Ingi Knútsson flug- vallarstjóri segir alla starfs- menn hafa sótt sömu námskeið og eiga að þekkja vel þau lög sem gildi. Skýrt er kveðið á um að sé líkamsleit framkvæmd skuli hún vera gerð af starfs- manni sem er af sama kyni og gæta skuli fyllstu kurteisi. Umrædd námskeið eru ítar- leg og þau taka allir sem koma nálægt öryggismálum á flugvöll- um landsins, hvort sem um er að ræða einkaaðila eða aðra. - aöe VOPNALEITARSALUR Í LEIFSSTÖÐ Vopnaleit á þeim sem koma frá Bandaríkjunum og gerð er af einkaaðilum hefur farið fyrir brjóstið á nokkrum farþegum. MYND/JÓN JÓNSSON Flugvallarstjóri segir alla sem starfa við öryggisgæslu þekkja lög og reglur: Allir hafa sótt námskeið GRÆNLAND Jonathan Motzfeldt, formaður grænlenska landsþings- ins, var fluttur alvarlega veik- ur frá Græn- landi á gjör- gæsludeild Landspítalans í gær. Græn- lenskir fjölmiðl- ar greina frá því að hann hafi veikst eftir að hafa neytt kæsts selspiks er hann dvaldi í heimabæ sínum Qaqort- oq. Hann var fyrst fluttur með þyrlu til Narsarsuaq og þaðan til Nuuk. Læknar þar ákváðu að senda hann til Íslands. Vakthafandi læknir á Landspít- alanum vildi ekki gefa neinar upp- lýsingar um líðan hans í gærkvöldi þar sem fjölskyldu hans hafði ekki allri verið greint frá því að hann hefði verið fluttur hingað til lands. - shá Jonathan Motzfeldt: Fluttur fársjúk- ur til Íslands JONATHAN MOTZFELDT Meðvitundarlítill Lögreglan á Akureyri handtók í fyrrinótt mann sem lá meðvitundarlítill af öl- og fíkniefna- vímu fyrir utan veitingahús í bænum. Fíkniefni fundust á manninum við leit og hafði hann verið staðinn að því að reyna að selja fíkniefni fyrr um kvöldið. LÖGREGLUFRÉTTIR SVEITASTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Þóri Kristin Þórisson í starf bæjarstjóra. Fjalla- byggð varð til við sameiningu Siglu- fjarðar og Ólafsfjarðar nú í vor og er Þórir fyrsti bæjarstjóri hins nýja sveitafélags. „Hugur minn og fjölskyldunnar er þegar í Fjallabyggð. Það eru mörg spennandi verkefni framundan, meðal annars vegna sameiningar- innar, gangagerðar og við að kynna nýtt sveitarfélag,“ segir Þórir. - öhö Þórir Kristinn Þórisson: Bæjarstjóri í Fjallabyggð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.