Tíminn - 13.01.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 13. janúar 1978
17
Dýraspitali
Watsons opnar
hjálparstöð
Stjórn „Dýraspitala Mark Wat-
sons” ákvaö á fundi sinum 6.
janúar sl. aö opna nú þegar i hús-
næöi spitalans viö Fáksvöll i Viöi-
dal viö Vatnsveituveg hjálparstöö
fyrir dýr.
Vonast stjórnin til þess að sú
starfsemi gæti stuðlað að þvi, aö
starfsemi hins eiginlega dýra-
spitala þar gæti hafizt af fullum
krafti um leið og læknir fæst til
starfa þar.
Akvöröunin um opnum
Hjálparstöövarinnar var tekin
eftir aö formaöur stjórnar spital-
ans haföi gert grein fyrir margra
mánaöa viöræöum viö þá aöila,
sem þessi mál heyra undir, — en
litt hafa færzt nær takmarkinu, en
þaö er ráöning dýralæknis aö
spitalanum.
Dýrahjúkrunarkonan Sigfrið
Þórisdóttirhefur verið ráöin til aö
veita hjálparstööinni forstööu.
Stöðinni hafa verið settar eftir-
farandi reglur til að starfa eftir:
a) Skyndihjálp viö særð og sjúk
dýr, þar til þau komast undir
læknishendi.
b) Þjónusta viö hesta, þ.a' m. af-
not af röntgentækjum spitalans
og öörum tækjum, sem þörf er
fyrir hverju sinni.
c) Móttaka og umönnun dýra sem
hafa villzt frá heimilum sinum
eöa eigendur hafa yfirgefið eða
óska ekki eftir aö hafa hjá sér.
Einnig umönnun dýra eftir ósk
eigenda þeirra.
d) Leit að heimilum fyrir
heimilislaus dýr.
e) Rannsókn á kvörtunum yfir
illri meðferö á dýrum.
f) Vinna I nánu sambandi við lög-
reglu og dýraverndarfélög, vegna
slysa, sem dýr valda, svo og um
öll ofangreind atriöi.
g) Vinna aö ábendingum um
endurbætur á löggjöf um dýra-
vernd.
h) Hvers konar upplýsingastarf-
semi um dýravernd s.s. Utgáfa
bæklinga og fleira i samvinnu við
dýraverndarfélög.
Stöðin veröur opinalla virka daga
kl. 1-6 og auk þess er svarað i
sima 76620 (Dýraspitali Wat-
son’s) 26221 (dýrahjúkrunar-
kona) og 16597 (Samband dýra-
verndunarfélaga Islands).
Nýr deildarstjóri í
Fjármálaráðuneytinu
Fjármálaráðherra hefur sett
Gunnlaug M. Sigmundsson, við-
skiptafræðing, til að vera deildar-
stjóri i fjármálaráöuneytinu frá
1. janúar 1978. Gunnlaugur M.
Sigmundsson mun veita gjalda-
deild ráðuneytisins forstöðu.
Aðalviöfangsefni gjaldadeildar
er gerð greiösluáætlana gjalda
rikissjóðs og eftirfylgni þeirra
áætlana. Jafnframt sér gjalda-
deild um samantekt tillagna
ráðuneytisins um fjárveitingar til
stofnana ráðuneytisins og aðal-
skrifstofu þess.
Gunnlaugur M. Sigmundsson er
fæddur 30. júni 1948. Hann hefur
verið fulltrúi i f jármálaráöuneyt-
inu frá 1. júni 1974.
(frá Fjármálaráðuneytinu)
Gunnlaugur M. Sigmundsson
267 fengu aðstoð hjá
Mæðrastyrksnefnd
Enn til fatnaður handa
þeim er þurfa
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
er nú að baki. Fé það, sem
safnaðist, nam samtals kr.
2.449.12500 og er þaö hærri fjár-
hæö en safnazt hefur nokkru sinni
fyrr. Auk þess safnaðist mikiö
magn fatnaöar sem ekki hefur
enn verið ráðstafaö til fulls.
Mæðrastyrksnefnd færir Reyk-
vikingum og öörum þeim, er
lögöu fram fé eöa sendi fatnað að
gjöf i Jólasöfnun nefndarinnar,
innilega þökk og fullvissar þá um,
að framlög þeirra komu aö mjög
góöum notum.
Samtals nutu 267 aðilar aðstoð-
ar Mæörastyrksnefndar aö þessu
sinni, þar af 76 fjölskylduheimili,
en þar að auki einstaklingar,
gamalmenni og sjúklingar.
Nokkrar af fjölmennustu fjöl-
skyldunum, er aöstoöarinnar
nutu, voru einstæðar mæður meö
6-7 börn á framfæri sinu. Þeir,
sem fyrst og fremst nutu aöstoðar
nefndarinnar aö þessu sinni, voru
einstæðar mæöur, gamalmenni,
oft og tiöum sjúklingar og fjöl-
skyldur þar sem sjúkleiki og/eöa
drykkjuskapur hrjáir. Mikil sjálf-
boðavinna var aö venju unnin af
nefndarkonum viö framkvæmd
söfnunarinnar og nam þvi allur
rekstrarkostnaöur ekki nema
ulþ.b. 125 þúsund krónum.
Eins og áöur segir hefur enn
ekki veriö ráöstafaö öllum þeim
fatnaöi er barst. Einstaklingar og
fjölskyldur, sem þurfa á honum
að halda og vilja þiggja hann aö
gjöf, geta átt þess kost komi þeir
á skrifstofu Mæörastyrksnefndar
aö Njálsgötu 3 næstkomandi
þriðjudagog miövikudg, 17. og 18.
janúar, kl. 2-5 siðdegis.
Mæörastyrksnefnd itrekar
þakklæti sitt til allra þeirra, sem
af örlæti sinu og rausn létu nokk-
uö aö hendi rakna i jólasöfnun
hennar og fullvissar þá um, að
framlög þeirra og fatagjafir
komu hvarvetna aö mjög góðum
notum.
Barnageð-
læknir og
félagsmála-
fulltrúi gestir
á fundi i
Félagi
einstæðra
foreldra
Fundur veröur haldinn i Félagi
einstæöra foreldra fimmtudaginn
19. jan. nk. og hefst hann kl. 21 aö
Hótel Esju. Þar mun Steinunn
ólafsdóttir, félagsmálafulltrúi
tala um hegðunarvandamál
bama og unglinga og Helga
Hannesdóttir barnageölæknir
fjallar um geöræn einkenni hjá
börnum og unglingum. Aö fram-
söguerindum loknum gefst
fundargestum kostur á aö bera
fram spurningar. Þetta umræöu-
efni ætti umfram margt aö höföa
til einstæðra foreldra og þvi hvet-
ur stjórn FEF félaga til að fjöl-
menna, og skal tekið fram aö nýir
félagar eru velkomnir.
!
Tímínner
penlngar
{ Auglýsúf
l í Timanum
Lengi getur gott botnuð!
Ennþá betri
MfRYGGIIlG
NYTT!l SUMARLEYFISROF
FYRIR HEIMILI OG FJOLSKYLDU
Sem bætir óhjákvæmileg aukaútgjöld og endur-
greiðir ónotaðan feróakostnað, ef sumarleyfisdvöl er
rofin vegna ýmissa ófyrirsjáanlegra atvika
NÝTT!< BÓNUS
vegna tjónlausra ára, allt að 20% lækkun
á iðgjaldi
ALTRYGGING ÁBYRGDAR
er ný heimilistrygging sem bætir missi eóa tjón á persónu-
legum lausafjármunum, sem á rætur að rekja til ein-
hverra skyndilegra og ófyrirsjánlegra atvika og tryggingin
gildir í öllum heiminum!
- bæði menn og munir eru vemdaáir á ferðalagi sem við dvöl
ALTRYGGING ÁBYRGOAR
tekur einnig til:
Skaóabótaskyldu
-bætir lífs-eóa líkamstjón meÖ allt að 10.000.000 kr.
og eiejíiatjon allt aÓ 4.000.000 kr.
Réttarverndar - SkaÖabótaréttar
Slysa
-örorku, lækniskostnaðar, tanntjona
Feróa-og sjúkratryggingar
+ aukakostnaÓur vegna fæðis og húsnæÖis
Ef pabbi missir
málninguna ofan i
nýja teppió
þa bætir
ALTRYGGINGIN
tjónió
Ef þu fotbrýtur þig i
Napoli e&a
Neskaupstaó
ALTRYGINGIN
grei&ir
aukakostnaóinn
ABYRGD
TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
Skúlaj'ótu li.i - I0.1* Kt*\kja\ik - Simi 21)122
H
r