Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 15

Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 22. marz 1978. 15 Magntis Tómasson mýndlistar-naður og smámumir hans, „Minnismerki um óþekktu hænuna”. Timamynd: Gunnar. Myndin hér að ofan er frá sýningu, sem nú stendur yfir I Norrsna hús- inu og minnzt hefur verið á hér I blaðinu áöur, „Börnin og umhverfið.” Er á þessari sýningu leitazt við að kynna I máli og myndum, hvernig ytra og innra skipulag borga og hfbýla manna þarf að miðast við yngstu kynslóöina. Sýningin er hingað komin frá Neytendaráöinu f Noregiígegnum Kvenfélagasamband Isiands og mun hún fara vítt um landiö. Fóstrufélag Islands sýnir um leið ýmsar geröir leikfanga og litið brúðuleikhús er á staönum. Foreldrar vita þvi ekkert af börnum sinum á meöan þeir skoða sýninguna, en hún veröur opin fram á annan dag páska, alla daga nema föstudaginn ianga og páskadag, frá 14-19. Timamynd: Gunnar Kjarvalsstaðir: Smá sýning á smámunum Magnúsar Tómassonar FI — Magnús Tómasson mynd- listarmaöui' hefur nú til sýnis á Kjarvalsstöðum ýmsa smámuni, „objects”, sem gerðir eruá árun- um 1967 —72ogkennir þar ýmissa grasa. Sumir hinna eidri eru skissur að stærri verkum, en þá yngri hefur hann kaliað Visual Poetry eða sýniljóð. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð- ingur segir i sýningarskrá, að að- ferðir Magnúsar byggist i höfuð- atriðum á samtafli ólikra atriða, breytingu á náttúru hluta eða þá útleggingum á viðteknum skoð- unum eða menningararfleifð, þ.á.m. sögum og ævintýrum. „Litla gula hænan verður þátt- takandi i ljóðrænu drama og niðursuðudósir neyzlumenningar innihalda hin furðulegustu fyrir- bæri.” Vötn á Arnar- vatnsheiði boðin til leigu Veiðifélag Arnarvatnsheiðar býður nú til leigu vötnin Borgar- fjarðarmegin á heiðinni auk nokkurra vatna á Tvidægru. Veiðifélag Borgfirðinga á Arnar- vatnsheiði var stofnað 1976, en fyrr hefur ekki verið veiðifélag um þetta mesta vatnaávæði landsins. Aðild að veiðifélaginu eiga bændur á liðlega 60 jörðum i Hálsahreppi, Hvitársiðu og Reyk- holtshreppi. Nær félagið til um 30 vatna og vatnahverfa á Arnar- vatnsheiði, svo og til fiskigengra áa og lækja, sem i vötnin falla eða tengja þau saman. Verkefni hins nýja félags er að viðhalda góðri fiskigengd á fé- lagssvæðinu og ráðstafa veiði á þann hátt sem hagkvæmast þykir hverju sinni. A siðasta sumri starfaði gæzlumaöur við vötnin og var haft strangt eftirlit með allri umferð um heiðina, en til þess tima hafði veiði þar verið nær eftirlitslaus. Vötnin sem veiðiféiagið hefur yfirráð yfir verða leigð ti) stang- veiði eingöngu, og áskilur veiðifé- lagið sér rétt til að taka hvaða til- boði sem er eða hafna öllum. Til- boðum um leigu fyrrnefndra vatna skal senda Pétri Jónssyni, bónda i Geirshlið i Borgarfiröi, formanni veiðifélagsins. Aörir i stjórn félagsins eru Guðmundur Kristjánsson, Grimsstöðum, Snorri Jóhannesson, Augastöð- um,’ Magnús Sigurðsson, Gils- bakka og ólafur Kristófersson, Kalmanstungu. [aStslataEtalalaBIalaBEIalalalsIatglsIalEÍIsIalalsIsIalsIa polyvlies ODYR GÓLFDÚKUR Verð pr. ferm.: 1507, 1650, 1872 og 2248 SAMBANDIÐ BYGGINGAVQRUR SUDURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRA ARMULA29

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.