Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 72
32 4. september 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Ítalski knattspyrnumaðurinn Gianfranco Zola ætti að vera öllum áhugamönnum um fótbolta vel kunnur. Hann kom víða við á löngum ferli sem leikmaður en starfar nú sem aðstoðarmaður Pierluigi Casiraghi hjá ítalska ungmenna- landsliðinu. Zola fór fögrum orðum um Eið Smára Guðjohnsen, fyrrum félaga sinn hjá Chelsea, þegar Fréttablaðið spurði hann um hans álit á Eiði. „Ég hef alltaf haft mikið álit á honum og dáist að honum. Hann er mjög góður leikmaður og mjög klókur. Stundum finnst mér að hann hefði getað náð lengra og mér fannst oft eins og hann væri vanmetinn. Hann getur spilað margar stöður og er mjög góður leikmaður. Hann er nú kominn til Barcelona og það sýnir hversu góður hann er,“ sagði Zola um landsliðsfyrirliðann Eið Smára. „Ég er enn í góðu sambandi við Chelsea og fylgist ennþá með ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Zola. Hann sagði að hugarfar leikmanna væri öðruvísi í Ítalíu en á Englandi. „Í Ítalíu er meira skipulag, en á Englandi eru leikmenn fastari fyrir og ákveðnari. Á Englandi er meira lagt upp úr því að vinna alla leikina en í Ítalíu er meira spáð í veikleika andstæðinganna og reynt að nýta sér þá. Á Englandi er ráðist á alla þó andstæðingurinn sé betri en þú,“ bætti Zola við. Spurður hver væri besti leikmaður sem hann hafi leikið með sagði Zola að hann ætti ekki í erfiðleikum með að svara því. „Maradona,“ sagði Zola án þess að blikka auga. „Ég lék með honum hjá Napoli og það var frábær reynsla fyrir mig. Hann var frábær náungi. Góður maður sem allir elskuðu. Þannig er Maradona,“ bætti Zola við. Zola var greinilega mikið niðri fyrir þegar hann var spurður út í skandalinn í kringum fótboltann í Ítalíu. „Þetta er sorgarkafli í ítölskum fótbolta. Sem fótboltamaður og sem íþróttamaður vil ég ekki sjá fótboltanum vera blandað í svona ljótt mál. En svona er lífið, því miður. Fólk gerir mistök. Það mikilvægasta er að þegar menn gera mistök þurfa þeir að taka afleiðingunum. Það er ekki bara skoðun mín á þessu máli heldur á öllum málum,“ sagði Zola. GIANFRANCO ZOLA: FYRRUM SAMHERJI EIÐS SMÁRA ORÐINN AÐSTOÐARÞJÁLFARI U-21 ÁRS LIÐS ÍTALA Eiður Smári er vanmetinn leikmaður FÓTBOLTI Það þurfti engan Nostradamus til að spá því fyrir að Valsstúlkur myndu tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í Lands- bankadeild kvenna í gær. Til stóð að fá FH í heimsókn og kraftaverk þurfti til að Valur klúðraði þessu. FH mætti hins vegar ekki til leiks og samkvæmt reglum fékk Valur skráðan sigur, 3-0. Það var því nokkuð skrítið andrúmsloftið á Valbjarnarvellinum í gær. Vals- stúlkur skiptu í tvö lið og spiluðu á stuttan völl til að drepa tímann fram að verðlaunaafhendingu og Elísabet Gunnarsdóttir sagði að tilfinningin væri örlítið skrítin. „Tilfinningin er skrítin en hún er samt góð,“ sagði Elísabet. Valur hefur haft töluverða yfir- burði í deildinni og athygli vekur hve mörg mörk liðið hefur skorað. „Liðsandinn er búinn að vera frá- bær og það eru engin vandamál í þessum hópi,“ sagði Elísabet um sitt lið. „Við vorum rosalega spenntar að fá að spila þennan leik og klára þetta og gá kannski hvað við næðum inn mörgum mörkum en því miður tókst það ekki dag. En sigurinn var kominn í höfn og það er það sem skiptir máli,“ sagði markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir. Margrét Lára sagði að það hefði verið svolítið erfitt að fagna til að byrja með en þegar bikarinn hefði verið kominn og allt fólkið hefði þetta verið frábær tilfinning. „Þetta er rosalega sterkur hópur. Við gerum allt saman, erum bestu vinkonur utan vallar og innan og það er erfitt að brjóta svoleiðis hóp niður. Við erum með frábæran þjálfara og aðstoðarþjálfara. Stjórnin og allt í kringum liðið hefur verið frábært. Það er stór hópur sem á þetta skil- ið og hefur unnið saman að þessu markmiði,“ sagði Margrét Lára. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals, var ekki í nokkrum vafa um hvað hafi skilað þessum sigri. „Sterk liðsheild. Við höfum verið dugleg- ar að æfa alveg frá því í vetur, höfum lagt hart að okkur. Við höfum misst stelpur í meiðsli en fengið inn nýjar og erum með mjög góðan hóp.“ dagur@frettabladid.is Frábær liðsandi og sterkur hópur Valsstúlkur tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Andrúms- loftið var samt sem áður skrítið vegna þess að FH mætti ekki til leiks. Sigurgleðin leyndi sér þó ekki. TOLLERUÐ Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Valsstúlkna, fékk fína flugferð eftir bikar- afhendinguna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON TIL HAMINGJU VALSSTÚLKUR BIKARINN Á LOFT Katrín Jónsdóttir sést hér taka við Íslandsmeistarabikarnum glæsilega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VALUR Leikmenn Vals stöfuðu nafn félagsins. LANGBESTAR Valsstúlkur eru einstaklega vel að Íslands- meistaratitlinum komnar. Fljótlega eftir að leikur Vals og FH var flautaður af vegna fjarveru FH-liðsins barst Fréttablaðinu eftirfarandi tilkynning frá kvennaráði FH í knattspyrnu: „Sl. haust ákváðu nær allir leikmenn sem spiluðu fyrir FH á síðasta keppnistímabili að hætta knattsspyrnuiðkun, en þrjár fóru yfir í önnur lið. Ástæða þessa voru ýmiss uppsöfnuð vandamál frá fyrri árum. Þrátt fyrir þetta áfall var ákveðið að gef- ast ekki upp og leggja niður meistaraflokk, heldur stofnað var nýtt kvennaráð, reynt að fá til okkar leikmenn til að styrkja þann hóp sem við höfðum af leikmönnum í öðrum og þriðja flokki auk eins leikmanns á fyrsta ári í meistaraflokki, fyrirliðinn Hrönn Hall- grímsdóttir, sem hefur staðið sig óaðfinnan- lega við að berja stelpurnar áfram. Eins var mikið reynt að fá þær stelpur sem lögðu skóna á hilluna að halda áfram án árang- urs. Ráðinn var góður þjálfari sem hefur gefið sig 100% í verkefnið. Fengnir voru 3 leik- menn frá Serbíu. Einn af þessum leikmönn- um varð að fara til baka í júni þar sem hún fékk ekki framlengingu á atvinnuleyfi – en hún hafði komið sem leikmaður til Hauka 2004 og hafði verið búsett hér í tæp tvö ár, þegar henni var vísað úr landi. Þetta veikti liðið umtalsvert – þar sem um sterkan varn- armann var að ræða sem ekki hefur verið vanþörf á í sumar. Þrátt fyrir loforð forsvarsmanna annara félaga um leigu á leikmönnum til okkar frá öðrum liðum, sem treyst var á, var ekki stað- ið við þau loforð sem endanlega var ljóst nokkrum dögum fyrir mót, og hófum við því leik í vor með aðeins 4 leikmenn á meistara- flokksaldri – aðrar voru úr 2. og 3. flokki. Eins og búist var við var þetta verkefni stelpum úr 2. og 3. flokki ofviða – þær urðu að spila alla leiki í sínum flokkum auka erf- iðra meistraflokks leikja, stundum 2–3 leikir á viku. Þetta er stórt afrek hjá þessum stelp- um og eiga þær skilið mikið hrós fyrir bar- áttu og dugnað sem þær hafa sýnt í sumar. Fækkað hefur í hópnum um 1-2 leikmenn í viku vegna meiðsla. Í dag var staðan orðin sú að í liðinu voru aðeins 7 leikmenn leik- hæfir til að spila þennan leik – aðrar voru meiddar, sumar treystu sér til að spila 10-15 mín. en ekki heilan leik. Því miður var þetta ekki endanlega ljóst fyrr en stelpurnar mættu á hefðubundnum tíma fyrir leik. Um leið og við óskum Val til hamingu með Íslandsmeistaratitilinn viljum við biðj- ast afsökunar á því að hafa ekki getað mætt með fullskipað lið til leiks í dag. Allt var reynt til að fá leikmenn í þennan leik en því miður áttum við ekki fleiri leikhæfa leik- menn í dag vegna álags sem hefur verið á þeim í allt sumar.“ Undir yfirlýsinguna skrifar Kolfinna Matthíasdóttir formaður kvennaráðs FH. Yfirlýsing frá kvennaráði FH ENGINN LEIKUR Sigurður Óli Þorleifsson, fyrirhugaður dómari leiksins í gær, sést hér ræða við fulltrúa Vals og KSÍ í gær. Skömmu síðar flautaði hann leikinn af. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI „Þetta er uppákoma sem maður átti ekki von á að gæti gerst. Þetta er mjög sorglegt og áfall fyrir Knattspyrnusambandið og íslenska kvennaknattspyrnu,“ sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, spurður um viðbrögð við fjarveru FH-stúlkna í leiknum gegn Val í gær. Hann bætti því við að málið yrði skoðað í framhaldinu og reynt yrði að komast að því hvað hefði nákvæmlega gerst. „Í reglugerð okkar er ákvæði um sektir og þess háttar. Það er augljóst að því verður beitt en það er auðvitað eitthvað þarna að baki. Við munum skoða það og verðum að tryggja það að þetta geti ekki endurtekið sig.“ Geir sagði að hann hefði fengið tilkynningu um að FH næði ekki í lið u.þ.b. hálftíma fyrir leik þegar Valsmenn hefðu hringt í hann á skrifstofu KSÍ. Það verður að teljast undarlegt að FH-ingar hafi ekki hringt sjálfir í KSÍ til að tilkynna um þetta mannahallæri. - dsd Geir Þorsteinsson: Mikið áfall FRAMKVÆMDASTJÓRI KSÍ Sorglegt. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Landsbankadeild kvenna: VALUR - FH 3-0 FH mætti ekki til leiks og því er Val dæmdur sigur. STJARNAN - BREIÐABLIK 0-2 ÞÓR/KA - KEFLAVÍK 1-3 FYLKIR - KR 1-11 LOKASTAÐAN: VALUR 14 13 0 1 90-8 39 BREIÐABLIK 14 12 0 2 64-14 36 KR 14 10 0 4 81-23 30 STJARNAN 14 8 0 6 36-25 24 KEFLAVÍK 14 7 0 7 43-34 21 FYLKIR 14 4 0 10 15-82 12 ÞÓR/KA 14 1 0 13 15-68 3 FH 14 1 0 13 6-96 3 1. deild kvenna Leikur um sæti í Landsbankadeild að ári: FJÖLNIR - ÍR 1-0 Fjölnir er því komið upp í Landsbankadeild en ÍR mætir Þór/KA í tveimur leikjum um laust sæti í efstu deild. LEIKIR GÆRDAGSINS > Við fordæmum... ... skammarlega og óafsakanlega framkomu kvennaliðs FH í knattspyrnu í garð Valsstúlkna og íslenskrar kvennaknatt- spyrnu í gær. Það er eitt að mæta ekki til leiks en að gera það í síðustu umferð deildarinnar, í leik þar sem áhangendur Vals og aðstandendur leikmanna liðsins voru samankomnir til að samfagna sínum nánustu, er ömurleg og niðurlægj- andi ákvörðun sem setur svartan blett á það ágæta starf sem unnið hefur verið í knattspyrnudeild FH undanfarin ár. Aumkunarverð yfirlýsing frá kvennaráði FH er til lítils og gerir uppákomuna í raun enn neyðarlegri því þar er því haldið fram að forföllin í leikmannahópnum á leikdag hefði ekki verið hægt að sjá fyrir. Til að bæta gráu ofan á sótsvart voru það síðan Valsmenn sem tilkynntu KSÍ um fjarveru FH-inga. Það er vonandi að FH-ingum verði refsað harðlega af KSÍ fyrir framkomuna. SKÁL Valsstúlkur fóru mikinn með kampavínið í búningsklefa sínum. Gera má ráð fyrir því að fagnaðarlætin hafi staðið yfir fram undir morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.