Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 60
 25. september 2006 MÁNUDAGUR40 Ragnar Axelsson er einn af okkar fremstu ljósmynd- urum. Þegar hann er spurður hvernig draumahúsið hans líti út er hann fljótur að svara í gríni að það væri snjóhús. En fyrir utan það væri hann líka til í bjálka- hús á tveimur hæðum. „Ég væri til í að komast aðeins út úr bænum með það en ekki of langt, kannski upp í Mosfellsdal,“ segir Ragnar. „En ég er ekki viss um að konan mín myndi samþykkja það,“ bætir hann við og hlær. Ragnar vill helst sjá í sjóinn og hafa svolítið vítt í kringum sig. Garðurinn þyrfti ekki að vera stór og hann myndi vilja hafa hann náttúrulegan. „Ég væri líka til í vinnustofu í kofa úti í garði,“ segir Ragnar. Hann hefur engan sérstaka áhuga á bílnum í inn- keyrslunni en hann vill ekki sportbíl. „Mér finnst gaman að horfa á fallega bíla og skiptir þá engu hvort ég á þá eða einhverjir aðrir. Ég átti einu sinni Land Cruiser 70 á stórum dekkjum og það er besti bíll sem ég hef átt svo ég væri til í að fá góðan jeppa í innkeyrsluna.“ DRAUMAHÚSIÐ MITT RAGNAR AXELSSON LJÓSMYNDARI Fallegt bjálkahús Listasafn Einars Jónssonar rís upp af háum, þungum stalli á Skólavörðuhæð líkt og ein höggmynda listamannsins sjálfs, enda var það reist eftir teikningu hans þótt Einar Erlends- son húsameistari hafi áritað teikninguna að safninu. Sagan um aðdraganda byggingar þess er merkileg, en Einar bauð íslensku þjóðinni verk sín að gjöf fengi hann safn reist undir þau. Með fjárstyrk frá ríkinu og landssöfnun tókst að verða við því. Hornsteinn var lagður að safninu árið 1916 og það vígt á Jónsmessunótt 1923. Bygging hússins markaði tímamót í íslenskri myndlist því með því eignuðust Íslendingar sitt fyrsta listasafn, en það hefur að geyma vel á þriðja hundrað verk eftir Einar frá sextíu ára starfsferli, allt frá málverkum upp í höggmyndir. Afsteypur af verkum Einars prýða einnig garðinn svo engu líkara er en að haldið sé í ævintýraveröld þegar gengið er inn um garðhliðið. (heimild www.skulptur.is) LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR Leiðrétting Rangt var farið með vígslu- ár Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi í myndatexta með grein um arkitektinn Guðrúnu Jónsdóttur í fasteignablaði Frétta- blaðsins 18. september. Það var vígt 2003 en ekki 1993. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi Flugsafn Íslands fær nýtt hús FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN AÐ NÝJU HÚSI FLUGSAFNS ÍSLANDS Á AKUREYRI VAR TEKIN FYRR Í MÁNUÐINUM. Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, tók fyrstu skóflustunguna fyrr í mánuðinum að nýju húsi Flugsafns Íslands. Flugsafn Íslands er minjasafn um íslenska flugsögu. Safnið hefur að geyma sögufrægar minjar; flugvélar, flugvélahluti og aðra muni, jafn- framt því sem saga íslenskrar flug- sögu er rakin í máli og myndum. Safnið var stofnað í maí árið 1999 og hefur starfsemi þess vaxið hratt og vinsældirnar aukist á undanförn- um árum. Unnið hefur verið að fjár- mögnun fyrir nýrra og stærra húsi safnsins og nú eru framkvæmdir við byggingu þess loks hafnar. Húsið verður 2.100 fermetrar að stærð, næstum fimmfalt stærra en núver- andi hús safnsins. - jóa Framkvæmdir eru nú hafnar að nýju húsnæði fyrir Flugsafn Íslands á Akureyri. SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins. 300 250 200 150 100 50 0 FJÖLDI 4/8- 10/8 67 11/8- 17/8 90 18/8- 24/8 83 25/8- 31/8 111 1/9- 7/9 121 8/9- 14/9 120 ÚTSALA! 20-60% AFSLÁTTUR PARKET OG HURÐIR Í MIKLU ÚRVALI PARKET FRÁ KR. 999.- fm. HÁGÆÐA FRAMLEIÐENDUR FRÁ ÞÝSKALANDI, FINNLANDI, HOLLANDI, DANMÖRKU OG BANDARÍKJUNUM PARKET & GÓLF ÁRMÚLI 23 108 REYKJAVÍK SÍMI: 568 1888 FAX: 568 1866 WWW.PARKETGOLF.IS PARKET@PARKETGOLF.IS ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF ka ld al jó s 2 0 0 6 PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.