Tíminn - 18.03.1979, Blaðsíða 19

Tíminn - 18.03.1979, Blaðsíða 19
Sunnudagur 18. mars 1979 19 Oþokki er maöur sem slær bláklukkur með ljá Tvö ár eru liðin siðan sænski rithöfundurinn Harry Martin- son lést. Vinur Martinssons, stærðfræðingurinn Tord Hall, er nú, að ósk hans, að athuga allt það ritað mál, sem Martinson lét eftir sig. Eru þetta þykkir bunkar af alls konar skrifum, nýtt og gamalt, skáldskapur og ritgerðir um náttúrufræði. Sið- ustu ár ævinnar var Martinson bitur vegna þeirrar neikvæðu gagnrýni, sem hann varð fyrir, er honum, ásamt Eyvind Johns- son voru veittNóbelsverðlaunin. Tord Hall lýsti fyrir skömmu i Svenska Dagbladet, starfinu, sem hann hefði með höndum við úrvinnslu á plöggum Harry Martinsson. Þarna er skáldskapur, upphaf kvæðis á einu blaði, en niður- lagið á öðru, og er oft erfitt að finna út hvað á saman og hvaö ekki. Hall er þó orðinn æfður i að þekkja frá hvaða tlmabili rit- hönd Martinssons er. A yngri árum notaði hann alltaf svart blek, en fór siöar að nota blátt. Oft hripaði hann hugdettur og hugmyndir að ljóðum á þá pappirsmiða, sem viö höndina voru. Frimerki á bréfum, sem hann notaði i þessum tilgangi, segja oft til um hvenær hug- myndin var fest á blað. í þess- um pappirum er eitthvaö frá öllum æviskeiðum skáldsins. Skrif Martinsson um náttúru- fræði vekja sérstakan áhuga Tord Hall. Þeir hittust eftir að Hall hafði skrifað um nokkur atriði í ljóðabók Martinsson, sem út kom 1953. Martinson hreifet af útleggingum stærð- fræðingsins og þeir urðu vinir. Þeir ræddu saman um siðustu uppgötvanir náttúruvisindanna, og vandamálin um atóm og geimvisindi. Hall segir, aö Martinson hafi verið gifurlega viölesinn, en hann hafi skort þá undirstööu, sem nauðsynleg var til að geta fylgst með flóknustu viðfangsefnum kjarnorku- visinda og geimvfeinda. Hall segir: — En ekki er hægt að krefjast þess af leikmanni, að hann skilji þaö, sem aðeins örfáir visindamenn bera skyn á. En hann er frumkvöðull i skáld- skap vegna þess, aö hann varð fyrstur til að lýsa stöðu manns- ins I ljósi náttúruvisindanna. I þvi er mikilleiki hans fólginn. Sagt frá rithöfundinum og náttúrufræðingnum Harry Martinson Hann kveðst eitt sinn hafa spurt Martinson hvort hann hefði langað til að verða stjörnufræðingur. — Nei, svaraði Martinson. — Ég vildi verða skáld. 1 handritabunkum Martins- sons er að finna margar greinar um náttúrufræði, flestar ritaðar fyrir mörgum árum. Þar er oft fjallað um eðli hlutanna. Hann ræddi oft um þetta við Hall, og varð ekki uppnæmur þó að skoð- anir hans væru gagnrýndar. Þarna eru smásögur um náttúruvísindaleg efni, sem eru nánast eins konar ljóð I lausu máli. Þar segir frá litrófinu, og sagt er frá þvi hvernig líf ið litur út i kjarna öreindanna. Þar er lika sagt frá atburðum úti i geimnum. Þarna eru lika hug- myndir, sem Martinson setti á blað um svipað leyti og hann vann að skáldverkinu Aniara (þar sem fjallaö er um geimför). Martinson ætlaði sjálfur aðganga frá ýmsuaf þvi efni, sem Hall vinnur nú aö, en hætti við það. Siöustu æviárin glataði hann sköpunargleðinni. Honum féll sú fjandsamlega gagnrýni, sem hann varð fyrir, er hann fékk Nóbelsverðlaunin, ákaflegailla. Þar við bættist, að hann var Ukamlega sjúkur. 1973 var hann skorinn upp viö gallsteinum, oghann hafði verið með biluð lungu frá þvi hann stundaði sjómennsku á yngri árum. Tord Hall segir, að það hafi verið hörmulegt að verða vitni að reiöiköstum Martinssons, er hann jós sér yfir gagnrýnendur sina. — Hann var venjulega svo vingjarnlegur og um- burðarlyndur, en æsti sig svo allt i einu upp og jós úr skálum reiði sinnar. Þetta var mannlegur veikleiki. Hann gat ekki með nokkru móti fúndið til yfirburða sinna gagnvart óréttmætri gagnrýni. Eyvind Johnsson féll gagnrýnin illa, en hann hóf sig yfir það. — Ég sagði við Martinson, að 50. sýning á leikriti Jökuls á sunnudagskvöld Um 25 þúsund manns hafa nú séð leikrit Jökuls Jakobssonar SONUR SKÓARANS OG DÓTT- 1R BAKARANS, sem sýnt hefur verið i Þjóðleikhúsinu i allan vetur við mikla aðsókn. Sigurður Sigurjónsson og Edda Björgvinsdóttir i hlutverkum sinum i Syni skóarans. Fimmtugasta sýning verksins verður á sunnudagskvöldog eru þá aðeins fáar sýningar eftir. Leikritið er viðamikið og að margra mati eitt besta verk höfundar. Leikstjóri sýningar- innar er Helgi Skúlason. Þær breytingar hafa orðið á hlut- verkaskipan að Sigurður Sigurjónsson hefur nú tekið við hlutverki Óla, sem hann reynd- ar lék á forsýningum verksins I fyrravor, en meðal annarra leikenda eru Þóra Friðriksdótt- ir, Rúrik Haraldsson, Krist- björg Kjeld, Arnar Jónsson, Kristin Bjarnadóttir, Erlingur Gislason, Róbert Arnfinnsson, Bryndis Pétursdóttir og Edda Björgvinsdóttir. eikin skipti sér eidii af þvi þótt hundur pissaði á hana. En hann lét sér ekki segjast. Siðasta áhugamál hans og gleðigjafivargarðvinnan. Hann ræktaði og hlúði að grdðrinum, sló grasblettinn, — en aldrei blóm. Einu sinni spurði hann mig hvort ég gæti skilgreint hugtakið óþokki. Ég hafði enga skilgreiningu tiltæka. Þá sagöi hann: óþokki er maður sem slsa- bláklukkur með ljá. Landsmenn athugið Borgarbilasalan hefur aukið þjónustuna. Höfum opnað bilaleigu, undir nafninu Bílaleigan Vík s.f. Erum með árg. 1979 af Lada Topas 1600 og Lada Sport 4x4. Verið velkomin að Grensásvegi 11. Borgarbílasalan s.f. Bílaleigan Vík s.f. Grensásvegi 11, simar 83085 — 83150 eftir lokun 37688 — 22434. Opið alla daga 9-7 nema sunnudaga 1-4. Hl) lJ l'l LÆRIÐ ENSKU I ENGLANDI 12 skólar í Bournemouth, Poole, Wimborne og Blandford i Suður Englandi og í London. Skólar fyrir alla unga sem gamla, byrjendur sem aðra. Barnaskólar og unglinga- skólar á sumrin, einnig fyrir fjölskyldur í sumarleyfi. Lágmarksdvöl 3 vikur. Skólarnir starfa allt árið. Dvalist á enskum heimilum, heimavist eða hótelum eftir vali. Einkaumboð á islandi: Feröaskrilstola KJARTANS HELGASONAR Skólavóröustig 13A Reykiavik simi 29211 ANGL0-C0NTINENTAL EDUCATIONALGROUP Fullkomnasta kennslutækni, kennslutæki og kennslubækur sem völ er á í Englandi í dag. Aðstaða til alls kyns íþróttaiðkana og útileikja, skemmtanir, ferðalög o.fl. Kennd er enska meðal Englendinga, lifað lifi þeirra og kynnst sögu, menn- ingu og þjóðlifi. ótrúlegur árangur á skömmum tima. Fáið bæklinga hjá okkur. Sérstakar hópferðir: 3. og 24. júní, 15. júli, 5. og 26. ágúst og 16. september. islenskir enskukennarar með hverjum hópi ef næg þátttaka fæst. Verð um kr. 200.000,-. Innifalið fæði, flug, gisting, skoðunarferð og kennsla. Pantið snemma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.