Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 37
Borgarleikhúsið fékk góða gesti í liðnum mánuði en þá voru dyr hússins opnaðar ungu fólki sem vildi kynna sér leikhúsmiðilinn. Forsvarsmenn leikhússins hvetja þannig til þess að ungt fólk kynn- ist ekki aðeins skemmtuninni heldur læri einnig að þekkja leik- húsið sem farartæki fyrir skoðan- ir, tilfinningar og baráttumál. Nemendur þriggja skólastiga tóku þátt í verkefninu og komu hópar úr Háteigsskóla, Borgar- holtsskóla og leiklistardeild Lista- háskólans í heimsókn og kynntust starfsemi hússins, og ræddu þar við listamenn um leikhúsið, mögu- leika þess, áhrifamátt og fjöl- breytileika. Eftir þessa kynningu unnu hóparnir þrír frumsamin verkefni sem sýnd verða á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. Í tengslum við verkefnið var einnig efnt til örleikritunarsam- keppni fyrir ung leikskáld. Þátt- takendur yngri en 25 ára eru hvattir til þess að skila inn verki eða hugmynd fyrir kl. 17 í dag. Verkin mega ekki vera lengri en 5.000 slög eða um það bil tvær síður. Verkunum skal skilað í fjór- um eintökum merktum höfundin- um, aldri, skóla, heimilisfangi og síma. Milli kl. 13-17 verður tekið á móti hugmyndum í forsal leik- hússins og mun dómnefndin sitja við lestur í allan dag. Sá heppni hlýtur að launum árskort fyrir tvo í leikhúsið. Úrslitin verða kunn- gjörð í lok dagskrárinnar. Þess má einnig geta að Leikfé- lag Reykjavíkur býður börnum, 12 ára og yngri, frítt á leiksýningar, aðrar en barnasýningar og söng- leiki, séu börnin í fylgd forráða- manna. Ungt fólk á listabraut Á morgun verður opnuð sýning á málverkum og vatnslitamyndum fær- eyska myndlistarmannsins Zachariasar Heinesen í Hafnarborg. Verða þar uppi yfir þrjátíu verk og eru þau mörg til sölu. Zacharias er kunnur hér á landi af verkum sínum en hann hefur sýnt hér áður bæði á samsýning- um færeyskra listmanna og á sérsýningum, síðast í Gallerí Borg 1993. Hann átti verk á sam- sýningum hér síðast 2005 í Hafn- arborg, en þar áður 1998, 1983 og 1961. Zacharias Heinesen á sér margar hliðar sem myndlistar- maður. Hann teiknar og málar olíu- og vatnslitamálverk ásamt því að gera bókaskreytingar, litó- grafíur, tréristur og klippimynd- ir. Zacharias hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Verk eftir hann eru í eigu erlendra og íslenskra safna. Hann hefur einn- ig skreytt opinberar stofnanir og verk hans farið á færeysk frí- merki og opinberar byggingar. Zacharias Heinesen fæddist 1936 í Þórshöfn í Færeyjum og er sonur rithöfundarins William Heinesen. Hann nam við Mynd- listarskóla Reykjavíkur hjá Sig- urði Sigurðarsyni í eitt ár, en stundaði síðan nám við Listahá- skólann í Kaupmannahöfn frá 1959 til 1963. Hann kom sér upp vinnustofu í Þórshöfn þaðan sem sér vítt yfir bæinn og hefur útsýnið veitt honum endalaus viðfangsefni. Árið 1986 hlaut Zacharias Heinesen heiðursverð- laun Henry Heerup og frímerki skreytt myndum eftir hann voru gefin út í Færeyjum árið 2001. Zacharias Heinesen dvaldi í gisti- vinnustofu Hafnarborgar árið 2005. Sýningin ber heitið ZH06 og var sett upp í Listahöllinni í Þórs- höfn í fyrra. Henni fylgir falleg sýningarskrá sem geymir grein- arstúfa um listamanninn eftir þau Inger Smærup Sörensen, Gunnar Hoydal, Bárð Jakúpsson, Bent Ivre og Kinnu Poulsen. Þar eru ágætar lýsingar á eigindum Zachariasar, áhrifavöldum hans og þroska. Hann verður að telja einn merkilegasta málara frænda okkar nú um stundir og ættu áhugamenn um myndlist ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og á fimmtudögum er opið til kl. 21. Síðasti sýningardagur er sunnudagur 9. apríl. Frítt er í hafnfirsk söfn í boði Glitnis. „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.