Tíminn - 22.07.1979, Blaðsíða 8

Tíminn - 22.07.1979, Blaðsíða 8
Tíminn 8 The Rolling Stones” fengu skæðan keppi- __________ naut í Liverpool.... Heimir Guöjónsson, hinn snjalli og gamalkunni markvöröur úr KR, var heldur betur i sviösljósinu I Liverpool 1964, þegar KR-ingar léku þar gegn Liverpool i Evrópukeppni meistara- liöa. Heimir átti mjög góöan leik I markinu og kunnu áhorfendur aö meta þaö. Heimir fékk einnig góöar móttökur fyrir utan leikvöll, þá sérstaklega fyrir utan hóteliö, sem KR-ingar dvöldust á. Aörir frægir gestir bjuggu einnig á sama hóteli — Mick Jagger og félagar hans úr hinni heimsfrægu ..... Ellert befur skorað flest mörk KR-inga — í 1. deildarkeppninni Ellert B. Schram er sá leikmaöur ur KR, sem hefur skoraö flest mörk KR- inga i 1. deildarkeppninni, eöa 57. Kr- ingar áttu mikiö af markaskorurum á árunum 1959 til 1965, en siöan þá hafa KR-ingar ekki veriö ofarlega á blaöi á listanum yfir markhæstu menn. KR-ingar hafa ávaiit veriB i fallbar- áttu frá þvl 1971 og skoraB litiö af mörkum. ÞaB er af sem áBur var, aB leikmenn eins og Gunnar Felixson, Baidvin Baldvinsson, Ellert B. Schram og ÞóróHur Beck voru aB hrella markveröi. KR-ingar áttu tvo markakónga hér áBur fyrr, en þeir voru: Þórólfur Beck, sem var markhæstur 1959, 1960 og 1961. Baldvin Baidvinsson — 1965. 12 stúlkur lágu í valnum, þegar Heimir Guðjónsson birtist... • HEIMIR GUÐJÓNSSON. hljómsveit „The Rolling Stones”. ÞaB var hvorki hægt aö þverfóta á hótelinu né fyrir utan þaö, þar sem ungar stúlkur og aödáendur hljómsveitar- innar voru — og vonuöust eftir aB sjá dýrlinga sina. Heimir, sem er manna skemmtileg- astur og mikill grinisti, sá sér þá leik á borBi — og eitt sinn, þegar hann lék viö hvern sinn fingur, tók hann sig til og greiddi hár sitt niBur á enni. Heimir fór siöan út i glugga og veifaöi til mannfjöldans fyrir utan hóteiiB — rak upp mikiB hróp og hristi sig gifurlega. Þaö var eins og sprengju hef&i veriö varpaö á götuna, fyrir framan hóteliö — áhangendur „Stones”, sem héidu aö Heimir væri einn af dýrlingum þeirra, uröu hreint trylitir og þeir fögnuBu Heimi geysilega — og þaö sem meira var, þaB leiB yfir einar 12 stúlkur, sem uröu stjarfar af hrifningu, þegar þær sáu Heimi hrista sig i glugganum. AB sjálfsögöu voru félagar Heimis i KR-li&inu mjög hrifnir af þessu upp- átæki. Þeir kunnu svo sannarlega aö meta þennan frábæra „þátt” Heimis i Bitlaborginni frægu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.