Ísafold - 16.10.1893, Blaðsíða 4

Ísafold - 16.10.1893, Blaðsíða 4
276 Skiptapi. Enn hefir orðið skiptapi á Suðurnesjum, 11. þ. m., frá Vörum í Garði: farizt skip með 6 mönnum í fiskiróðri. Formaður Guðbrandur Þorsteinsson, lausa- maður í Vörum. Fjórir hásetarnir voru vinnumenn Einars bónda og hinn 5. sjó- maður austan úr Mýrdal. Pöstskipið Laura, Christiansen, kom í fyrra kvöld. Farþegar hingað: frú Þóra Thoroddsen með dóttur, frk. Kirstin Svein- björnsson, agent Sigfús Eymundsson, cand. med. & chir. Sigurður Hjörleifsson, stúdent Pjetur Hjálmsson. Skipið á að fara aptur á fimmtudagskvöld 19. þ. m. Gufuskipið »Ernst« bilað. f »Dim- malætting« 30. f. m. er frá því sagt, að sunnudaginn næsta áður, 24. sept., hafi gufuskipið »Ernst«, skipstj. Randulff, komið til Þórshafnar frá Haldersvig, þar sem það hafði leitað hafnar mánudaginn þar áður, 18. s. m., á Ieið frá Seyðisfirði með 200 Færeyinga. Þegar »Ernst« átti eptir 18 mílur til Færeyja, brotnaði »tappinn« í vjelinni, en með því vindur var hagstæð- ur. hvass á norðan, komst skipið klaklaust inn til Haldersvig. »Það var mesta guðs mildi, að slysið varð eigi á þriðjudaginn, í afspyrnurokinu, sem þá var; því þá eru litlar líkur til, að »Ernst« hefði nokkurn tíma landi náð framar. í Haldersvig varð lappað svo við það sem bilað hafði, að skipið komst til Þórshafnar. En ekki þykir skipstjóra hættandi á haf aptur, og hefir því farið með skipið til Kóngshafnar til þess að leggja það upp þar og biða nánari ráðstöfunar«. Þjórsá á ís. Dagana 11. og 12. þ. m. var Þjórsá gengin á ís og rekin yíir hana 200 fjár við Sandhólaferju. En glæfraför mun það hafa verið, enda ruddi áin sig aptnr. Heiðursmerki. Dr. med. J. Jónassen er orðinn riddari af d.broge. Gufubáturimi „EIín“ lauk ferðum sínum þetta ár núna fyrir helgina ogjfærir sig nú l vetrarlegu i Hafnaríirði. Perðirnar hafa orðið helmingi fieiri en til var ætlazt fyrir fram og gengið mikiö vel yQrleitt, enda eptir- tekjan orðið allgóð, svo sem nánar mun lýst síðar. Mikil uppskera. í haust f'ekk Eggert Laxdal verzlunarstjóri 4 Akureyri tunnu af kartöflnm upp úr garði sínum þar, 1700 ferh.faðma að stærð, af öþ'a tunnu útsæði. Með 9 króna verði er það nær 11 /a þús. kr. Það mundi þykja frásagnarvert í Manitóba. Þingrof. Með konungsbrjefi 29. f. mán. er alþingi leyst upp, vegna stjórnarskrár- breytingarinnar í sumar. Nýjar kosningar. Með konungsbrjefi sama dag eru fyrirskipaðar almennar kosn- ingar til alþingis dagana 1.—10. júní 1894, til 6 ára, og skal kjörtíminn talinn frá 1. júlí s. á. Ný lög. Þessi 8 lög frá síðasta þingi hefir konungur staðfest, öll 16. f. mán. 1. Lög um samþykkt á landsreikningn- um fyrir 1890 og 1891. 2. Lög um brúargjörð á Þjórsá. 3. Lög um iðnaðarnám. 4. Lög um sjerstaka heimild til að afmá veðskuldbindingar úr veðmálabókum. 5. Lög um að Austur-Skaptafellssýsla skuli, að því er sveitarstjórn snertir, skil- in frá Suðuramtínu og lögð til Austur- amtsins. 6. Lög um breyting á lögum 27. febr. 1880 um stjórn safnaðarmála o. s. frv. 7. Lög um hafnsögugjald í Reykjavík. 8. Lög um sjerstök eptirlaun handa Páli sögukennara Melsteð. Úr brjefi frá Cliicago 12. ágúst: »Hjer hafa verið á ferð 2 nafnkenndir landar aust- an um haf, karl og kona: síra Matth. Joch- umsson og frú taigribur Maqnússon. Síra M. J. var hjer í tæpan hálfan mánuð, og var svo að segja á hverjum degi á sýningunni. Mun hann hafa skemmt sjer vel; endaget jeg ekki sjeð, að árangurinn af hans ferð hingað sje annað en skemmtun fyrir hann persónulega. Sigríður Magnússon flutti ræðu á uppeldis- málafundi um menntun kvenna á Islandi, er hún gerði neyðarlega lítið úr7og talaði um það eins og býsn mikla, eptir því sem í blöð- um stendur hjer, að enginn kvennmaður á öllu íslandi geti talað eitt orð í latínu(!). ts- lenzkir munir þeir, er hún heflr meðferðis, eru bæði fáir og óvanalega illa gerðir, eptir mínu viti og eptir dómi annara íslendinga hjer, sem ættu að hafa vel vit á því. Vað- málið, sem hún hefir, er fullt af bláþráðum og fláir á kantinn, svo það er eins og úna- maðkur, allt af því, hvaö það er ilia oflð. Það er eins og verstu sunnlenzk vaðmál gerast, en alveg ólíkt norðlenzkum eða Múiasýslu-vað- málum. Islenzka skó hefir hún, “búna til úr hvítu eltiskiuni, bryddaða með dönsku ljer- epti(!), óþvengjaða, og svo ’ólíka íslenzkum skóm, sem hægt er. Þá hefir hún baldýring- ar, bæði baldýruð belti og kraga, en það er sú versta baldýring, sem jeg hefl sjeð, og veit jeg, að lengi mætti leita til að finna eins vorula baldýringu á íslandi. Það eina fallega sein hún heflr, eru nokkrir víravirkishnappar og einhver íorláta-keðja, sem hún segir verið hafa eign eins Hólabiskups; með þess háttar hluti gengur hún í vasanum og reynir að koma þeim út við ríka menn fyrir stórfje. Loks kórónar hún alla sína framkomu með því að ganga ýmist á íslenzkum skautbúningi, ellegar ísl. uppblut við danskan hatt, með hanzka og danska skó L Vegna póstskipsins var útkomu laugar- dagsblaðsins af ísafold (14. okt.) frestað þang- að til í dag. Af Alþingistíð., B.-deild, umr. neðri deild- ar, eru nú fullprentaðar 72 arkir. Almenningi til hugg-imar gjöri jeg hjer með kunnugt, að með því að jeg nú hefi fengið gott liúspláss fyrir saumastofu, næg áhöld og vinnukrapt, þar á meðal margar æfðar og vandvirkar saumakonur, get jeg hjer eptir tekið að mjer að sauma alls konar karlmannsfatn. að o. fl. (sem jeg í raun og veru aldrei hefi boðizt til áður, þótt jeg fyrir ítrekaða beiðni margra hafi saumað talsvert af föt- um í sumar) og lofa jeg að ábyrgjast, að vinna á fötunum sje vönduð og traust, einnig að afgreiða pantanir fljótt og skil- víslega. Enn fremur mun jeg hjer eptir sauma föt fyrir enn þá lægra verð en jeg hingað til hefi gjört. Tillegg til, fata og fataefni útvega jeg ef þess er beiðzt. Hvergi hjer á landi fáið þjer eink ódýr föt eins og hjá mjer! Vinnustofa mín er í Glasgow, uppi á salnum, inngangur að austanverðu um hin- ar nýju dyr. Reykjavík 13. okt. 1893. G. Þórðarson. Skiptafundur í dánarbúi P. F. Eggerz verður haldinn á bæjarþingstofunni laugardaginn 28. þ. m. kl. 12 á hád., til þessað rannsaka skulda- kröfur, er lýst hefir verið í búið. Bæjarfógetinn í Reykjavrk 14. okt. 1893. Halldór Danielsson. Uppboðsauglýsing. Þriðjudaginn hinn 17. þ. m. kl. 11 f. hád. verður á Arnarliólslóð hjer í bænum, selt við opinbert uppboð töluvert af plönkum og óhefluðum borðvið, tilheyrandi Birni múrara Guðmundssyni. Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum á undan uppboðinu. Bæjarfógetinn í Reykjavík 14. okt. 1893. Hallór Daníelsson. Hest-tryppi, jarpt, veturgamalt bógsigað á báðum bógum, með mark biti framan bæði er hjer í óskilum og verður selt við opinbert uppboð, ef eigandinn ekki vitjar þess innan 8 daga og borgar áfallinn kostn- að. Bæjarfógetinn í Reykjavrk 14. október 1893. Halldór Daníelsson. Dugleg VÍnnukona, sem er vön við öll innanhússtörf, getur fengið visc 14. maí. Hátt kanp. Ritstj. vísar á. Nýkomið með „L.aum“: Sveizer- ostur, Mysostur, kaffi, export, malt, kandis, melís, grjón, hveiti, rúsínur, fikjur, choco- lade, stearínljós, grænsápa, sjóhattar, mask- ínunálar, o. fl.; — alt með bezta verði móti peningum út í hönd. M. Johannessen. Med »Laura« modtaget ny Forsyning af Artikler henhörende til Kunstsyning og andre fine Haandarbeider; bl. a. Uld- og Silke-Snorer, Pompons, Cheniller, Kvaster do.; desuden en Del nette nye Sinaating. Endvidere Blonder, sorte, hvide, og créme- gule, Kjole- og Forklædetöier, Slips, Börne- handsker, Strömper. Ligesaa moderne Vinterhatte for Damer og Börn med dertilhörende Besætning af Fjær, Silkebaand og Blomster. Modeller og Tegninger af denne Saison’s Hatte forefindes. M. Johannesen. Sneminbæra kú, helzt borna, óskar und- irskrifaður til kuups. Dr. J. Jónassen. Góð mynd af Sœfinni gamla fæst hjá Agúst Guðmundssyni. Moð »Laura« heíir undirritaður fengi dömuslcó og alls konar barnaslcó. Einnig kvennskó fyrir fullorðna, reimaða, á 5 kr., fjaðra- skó á 6 kr. 50 a. Lítið a skofatnaðinn áður en þjer kaupið annarstaðar. Reykjavík 16. okt. 1893. L. G. Luóvíksson. 3 Ingólfsstræti 3 Veðurathuganir í Rvik, eptir Dr. J. Jónassen sept. Hiti (á Celsius) Lopt (mill ).mæl. met.) Veðurátt 4 nótt. | um hd. fm. em. fm. em. Ld. 7. -F 2 0 772.2 769.6 N h b N hv b Sd. 8. —7“ 6 0 769.6 769.6 0 b 0 b Md. 9. — 4 + 2 769.6 769.6 0 d 0 d Þd. 10. — 4 + 2 769.6 767.1 N h b N h b Mvd. 11. — 5 + 1 767.1 764.5 N hv b N hv b Fd. 12. — 3 + 2 764.5 764.5 0 b 0 b Fsd. 13. Ld. 14. — 4 — 2 + 6 764.5 762.0 764.5 N h b Na h b Heflr varið við norðanátt, en einlægt hægur • nokkuð hvass h. 11., hægur, bjart og fagurt veður. Ritstjórij Björn Jónsson cand. phÍL Frentsmibja ísafoldar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.