Ísafold - 22.01.1910, Blaðsíða 3

Ísafold - 22.01.1910, Blaðsíða 3
I8AF0LD 15 húsið var að eins vátrygt fyrir x 8000 — brunabótavirðingin svo lág. Betel, annað húsið sem brann, var eign adventistasaínaðarins, virt á 7000 kr. og vátrygt fyrir jafnmiklu. En í því húsi var bókaforði — útsölubæk- ur o. s. frv., nálægt 3000 kr. virði, alt óvátrysrt, og brann til kaldra kola. ekki einungis gasvini persónulega, heldur einnig bæinn í heild sinni, þess vegna á hver sannur bæjar-vinur að.fyrirlíta aðferð þeirra. Virðingarfylst E. Schoepke, umboðsmaður firmans Carl Francke, Bremen. Þess ber að geta, að frá Valnum komu margir foringjar og hásetar með nokkrar smásprautur, þegar er þeir sáu eldinn, og gengu þeir mjög vel og vasklega fram í að slökkva. Gasið. Heiðraði herra ritstjóri! — Grein í Fjallkonunni 18. þ. m. neyðir mig til að risa á móti hinu leiða þvaðri ogóhæfilegu staðhæfingum, sem breytt er út um gasstöðina víða hér í bæn- um, einkum nú undir bæjarstjórnar- kosninguna. Eg gef yður leyfi til að nota eftirfarandi skýringar mínar á hvaða hátt, sem þér viljið. Byggjandi gasstöðvarinnar, Carl Francke, er meir eða minna opinber- lega gefið að sök, að hann hafi ein- ungis litið á það, að geta reist gas- 'stöð hér í Reykjavík, án þess að á- byrgjast til fulls, að bærinn ekki kynni að bíða neitt tjón af því. — Vitanlega er það ekki iif eintómum mannkærleika, að Carl Francke reisir stöðina hér, heldur af því, að hann einnig sér sjálfum sér hag í því; en þessir sömu hagsmunir hvetja hann einnig til, eftir beztu vitund og sam vizku, að reisa þannig »miðstöð fyrir ljós, hita og afl« og reka hana svo, að bænum megi á allan hátt vel líka, því að, að öðrum kosti mundi firmað bíða þannig tjón á orði sínu og áliti, að lof og meðmæli margra annara bæja mundu ekki geta bætr úr því. Firmað Carl Francke hefir hingað tii bygt ca. 400 gas- og rafmagns- stöðvar, vatns- og skolpveitur og hefir á hendi rekstur mikils hluta þeirra; traust það, er firma mitt hefir unnið sér við byggingar þessar, vill það ekki leggja í hættu. Þessir hags- munir tengja oss fastar við gasstöð Reykjavikur, heldur en tryggingarfé tifalt hærra en þessar 10,000 kr. gætu gert. Ver höfum ekki og munum aldrei hafa hina allra minstu ástæðu til að álíta gasstöð Reykjavíkur á nokkurn hátt byrði fyrir oss. Það er og verð- ur föst sannfæring vor, fengin fyrir hina víðtæku reynslu á rekstri gas- stöðva, að þessi stöð svari brátt kostn- aði og gefi innan skamms af sér arð, er að mestu leyti rennur í bæjarsjóð. Það sannast einnig með því, að þegar hefir verið beðið um innlagningu gass í mjög mörg opinber og einstakra manna hús hér í bænum. Þegar sumir láta sér um munn fara þvílíka heimsku um gasið, og átt hefir sér stað í seinni tið hér, (eins Og t. d.: gasljós er skaðlegra heilsu manna en sérhvert annað ljós; það eyðileggur málma, dúka, blóm; af því stafar stærri brunahætta en af steinolíu) — þá sannar það einungis, að þessir menn eru að minsta kosti rnjög léttúðugir, þar sem þeir láta uppi álit sitt á málefni, er þeir ekki hafa rannsakað nægilega, eða ekki heyrt dóma sérfróðra manna um. I ritgjörð minni »Ljósmagn, afl og hiti steinkolagassins«, hefi eg sett fram hina réttu skýringu á gasi; einnig getur hver og einn fengið réttar upplýsii-igar með því að spyrja sig fyrir hjá sérfróðum og óhlutdræg- um mönnum utanlands. Sá sem ekkí hefir gert það, eða séð þetta sjálfi utanlands, hann ætti að geyma sín persónul. meiningu um málið. En það er lika nokkuð annað, sei ætti að fá menn þá, er verið hafa móti gasi, til að hætta hinum gagn lausu æsingum móti því og heldt að flýta fyrir útbreiðslu þess; það er • hagsmunir bæjarins sjálfs, að han fái sem allra fyrst ágóða af stöðinn Þess vegna ætti viðkvæðið í, bænui að vera »með gasi« en ekki »mó gasi«, og allir þeir, sem enn tala rnóti gasinu, eftir að byggingarsami Ulgurinn var samþyktur með atkvæi Ulu meiri hluta bæjarstjórnar, ska? Úr kjördæmi Jóns ólafs- sonar. Símfregn frá Fáskrúðsfirði í dag hermir, að í gær hafi verið haldinn þar pólitískur fundur. Fundarefni: Af- hrópun ráðgjafa. A fundinum mættu ý2 tnenn og af þeim forskrifuðu 11 — elleju — sálir sig á vantraustsskjal — en hinir (81) voru á móti van- traustsyfirlýsingu. Svo fór um sjóferð þá I Ceres kom loks í fyrrakvöld hingað, eftir langa útivist og harða; hrepti storma og var 7 sólarhringa á leiðinni frá Leith. Farþegar: Jón Gunnarsson samábyrgðarstjóri, Ólafur fohnson og Jón Björnsson kaupmenn, Viggo Björns^on bankamaður o. fl. Leikkonan Etnma Thomsen er nýlega dáin í Kaupmannahöfn. Gjafir ogr áheit til Heilsuhælisins, afhentar Sighv. Bjarnasyni bankastjóra: Kvikmyndafélagið í Bárubúð 30 kr.; Kvenfélagsdeild Ljósavatnssóknar 52 kr.; áheit frá ónefndum kaupmanni í Reykjavík 10 kr.; G.-T.-stúkan Vík- ingur í Rvík 25 kr.; ónefndur Reyk- vikingur 1 kr.; nokkrar yngismeyjar á ísafirði 200 kr.; Þórunn yfirsetu- kona Björnsdóttir 50 kr.; Kvenfélag fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík 100 kr.; ónefndur Reykvikingur 3 kr. 60 a.; Jón kaupmaður Jónsson frá Vað- nesi (ágóðahluti af seldum varningi) 10 kr. 45 a. Falsfrétt hlýtur það að vera, sem höfð er hér í andþófsblöðunum eftir privat- bréfi frá Khöfn um álit dönsku banka- stjóranna á ástandi Landsbankans, ef skiljast á svo, að ekkert hafi verið að, þegar þeir komu hér. Það er fullkunnugt réttum hlutaðeigendum hér, að þeirra skoðun fór m j ö g fjarri því, en þeir hafa alls ekk- e r t uppi látið nema bara við Land- mandsbankann pg hann svarað þvi e i n u, að hann að svo stöddu héldi viðskiftunum áfram. Póstafgreiðslumenn hefir ráðherra skipað í dag þá: Guðmund S. Th, Guðmundsson kaupmann á Siglufirði; Halldór Jónsson kaupmann í Vík í Mýrdal; Ingimund Steingrímsson í Djúpa- vogi og Ólaf Böðvarsson bakara i Hafnar- firði. Samábyrgðin. Forstjóri fyrir þeirri stofnun erjón Gunnarsson verzlunarstj. frá Hafnar- firði, en gæzlustjórar við hana skipað- ir i dag af ráðherra til bráðabirgða þeir Páll Halldórsson stýrimannaskóla- stjóri og Sigýús Bergmanu kaupmað- ur í Hafnarfirði. Jarðskjálftar. Hér í Rvík varð vart nokkurra jarð- skjálftakippa í morgun — hins fyrsta kl. 850, tveggja með litlu millibili kl. 10,16 og io,34 árdegis, og enn ein- hverra hræringa um nádegið. — Jarð- skjálftamælir er við stýrimannaskólann og gefur hann til kynna hræringar, hversu litlar sem þær eru. — Fyrsta kippsins varð og vart á Akureyri. Heiðursmerki. Eftir tillögom Islands- ráðherra hefir konnngur vor sæmt 27. f. mán. Ole Th. MykLestad i Sanddal í Nor- vegi riddarakrossi dannebrogsorðunnar, i viðurkenningarekyni fyrir ötular og árang- ursfullar framkvœmdir hane hér á landi fyr- ir nokkrum árum til útrýmingar fjárkláð- anum. Skóiabl. og stafsetuingiu. Svar tii J. Þ. Fræðslumálastjóri Jón Þórarinsson ritar í 23. tbl. Skólablaðsins grein eina, sem hann kallar: »Enn um staf- setninguna«. Hann álítur mig gruna, að kennar- ar séu í vafa um, hvaða stafsetoingu þeir eigi að fylgja. Færir hann því til sönnunar, að tveir rithættir séu not- aðir í skólanum, sem eg kenni við. Mér er ókunnugt um, að svo sé. Hitt veit eg, að Blaðamannastafsetn- ing er fyrirskipuð í barnaskóla Reykja- víkur. Þetta vita kennarar skólans. Hafi nú einhver kennari við þenna skóla látið Lesbókina rugla sig eftir viðtal við J. Þ., sem heldur á lofti Lesbókar- rithætti, er það raunalega lítið sjálj- stœði. Hér þurfa kennarar ekki að spyrja eins og J. Þ. gerði ráð fyrir í Skóla- blaðinu. Áður hefi eg fært rök að því, að mér þyki ótrúlegt, að margir kennar- ar yfirleitt spyrji eins og Skbl. gerir ráð fyrir. # Hr. Jón Þórarinsson er að fræða mig um það, að hver einstakur kenn- ari ráði ekki rithætti þeim, er hann sennir við skóla þann, sem hann vinn- ur í, heldur ráði skólanefnd því. Þetta vissi eg áður. En hitt er mér líka kunnugt um, að við smáskóla upp um sveitir er kennaranum oft falið að ráða rithætti í skóla sínum. Það hefir aflað Blaðamannastafsetn- ingu mikils fylgis, því kennarar með kennaraprófi frá Flensborg hafa þá haldið rithætti þeim, er J. Þ. lét kenna þeim í skóla. Ekki sannar það eða sýnir mikið þótt nokkrir kennarar i Reykjavík hafi haldið fund til þess að gera stafsetn- ingarglundroða á ný. Blaðamanna- stafsetningin er langvinsælust og víð- tækust eftir sem áður. Fjölmargir fræðimenn og rithöf- undar hafa samþykt hana, þar á með- al hr. Jón Þórarinsson fræðslumála- stjóri, og eftir það var hún tekin upp í kennaraskólanum, sem hann stýrði þá. Hvers vegna lagði fræðslumálastjór- inn ekki til, að Blaðamannaritháttur væri hafður á »Lesbók handa börn- um og unglingum«? Fanst honum stjórnin vera að leita samræmis, er hún tók aftur upp je? Kom honum þá ekki til hugar miðlunin, sem hann vill nú gera? Það er erfitt verk og ilt að vera að breiða yfir það, sem skakt er gert. Hitt er affarasælla að játa yfirsjónina og bæta fyrir hana. Lesbókin ætti að vera með blaða- mannastafsetningu. Það mæla þeir, sem ekki vilja glundroðann og hr. J. Þ. telur sig í þeirra hóp. »Líífærin þarflausu hverfa úr sög- untii«, segir N. Kbl. og er það meiri málsbót en alt, sem Skbl. hefir tínt til í mörgum dráttum. En hafi þessi líffæri tungu vorrar zan, y-ið, ý-ið og x-ið verið þörf 1898 eru þau það enn í dag. Meðal annars segir fræðslumálastjór- inn í grein sinni, að okkur greini á um,- hvaða þýðingu lesbók barnaskól- anna hafi fyrir kenslu móðurmálsins Þetta er ekki rétt. Það, sem okkur greinir á um, er: að hann vill láta skólana taka upp Lesbókarstafsetningu, en eg vil þeir fylgi blaðamannaréttritun. Þeir, sem lesa grein fræðslumála- stjórans sjá, að hann vill leggja staf- rófskverið og forskriftarbækur til grundvallar stafsetningunni. En nú er honum kunnugt um, að fjögur stafrófskverin, sem langmest eru notuð á landi hér, hafa öll blaða- mannastafsetningu. Forskriftarbækur hans sjálfs veita börnum einkargóða æfingu í að nota z-u, en þar er líka notað je og tvöfaldur samhljóður — vitanlega í samrami við stafrófskverin og lesbókina! — Jón Þórarinsson er í ógöngum stadd- ur, að hafa lagt það til, að fylgt yrði rithætti »Lesbókar handa börnum og unglingum«, sé nokkurt tillit tekið til þess, hvernig stóð á í skólum lands- ins þegar hún kom. Bókin kom eins og skollinn úr sauðarleggnum, öfug bæði við staf- rófskverin og forskriftarbækurnar. * Það gegnir furðu, ef fræðslumála- stjórinn heldur, að kennarar sjái ekki þetta ósamræmi, þótt hann hefði nú aldrei ritað um það eins laust við rök og hann hefir gert. Lítil .málsvörn er það hjá J. Þ. þótt hann segi, að eg tali »borginmannkga» og segi hitt og þetta tallhreykinn*. Rithátturinn á grein hans er ekki samboðinn góðum og gömlum skóla meistara. Mér er ekki sýnt um að »gæla« við hroka eða tiégómaskap. Við hvern, sem eg skifti orðum vil eg mæla eins og maður talar við mann. Við Jón Þórarinsson erum báðir menn og báðir íslendingar, að því leyti höfum við jafnan rétt til að lýsa okk- ar einstaklingsskoðun, hvort heldur er í þessu máli eða öðru. En andinn í greininni nokkuð annað. hans bendir Hallgr. Jónsson. Betra er seint en aldrei. Ekki alls fyrir löngn, tók eg mig til að tæma kassa, sem flnttir höfðu verið nr húsi okkar i .Bateman Street«, i Cambridge. þar sem við höfðnm húið yfir 33 ár, og i hús það er við nú búum i — »Sunnyside 91. Tenison Road«. Kassar þe3sir voru fuilir af blaða og bréfa rusli, sem safnast hafði þar árum sam- an, eins og gjörist vist hjá flestum, sem mikil ritstörf hafa á hendi. Meðal annars, kem eg þar niður á gamlar »ísafoldir«, fer að blaða í þeim — og verður mér einna fyrst litið á grein, með yfirskriftinni: • Kvennaskólinn i Yiuaminni« (14. nóv. 1896). Höfundur greinarinnar kallar sig: Kven- mentunarvin, og er hún stiluð til ritstj. ísaf., og er efnið að biðja hann — ritstj. — að fræða sig og aðra um, hvað orðið hafi af samskotunum, er eg hafi safnað og fengið á Englandi, í Svíþjóð og viðar, til eflingar mentun og menning kvenfólks hér á landi? Ennfremur segir hann, að hér hafi verið reist hátt hús, sem fyrst hafi verið sagt, að bygt hafi vcrið fyrir þessi útlendu sam- skot, og ætti að hafa fyrir kvennaskóla, og sé það satt, að húsið hafi verið reist fyrir samskotaféð, handa hérlendu kven- þjóðinni, þá á hún húsið, en enginn ein- stakur maður, og ætti hún því að hirða húsið og tekjurnar af þvi. — Þá bendir höf. á, að nú sé það forstöðunefnd Kven- félagsins eða yfirvöld landsins, sem ættu að grenslast eftir þvi, hve samskotaféð hafi verið mikið, og hvort húsið sé al- mennings eða einstaks manns eign. Ritstj. kveðst ekki færari að leysa úr þessum spurningum, en spyrjandi sjálfur, það hafi, svo kunnugt sé, engar skýrslur verið birtar hér á landi, nokkurn tima um þessi samskot, eða hagnýting þeirra. Það eitt, sem henn viti, sé, að kvennaskóli hafi verið haldinn hér (i Vinaminni) 1 vetur, fyrir mörgum árum (ekki voru þau nema 4), en siðan ekki við söguna meir. Liklegt þykir honum, að yfirvöld vor áliti málið sér óviðkomandi. En mjög virðist honum vel til fallið, að Kvenfélagið islenzka skifti sér af því, eins og fyrir spyrjandi drepi á, og reyndi t. d. að fá úr þvi leyst i tæka tið, hvort húsið sé heldur almennings eign eða einstakra manna. Q-rein þessa hafði eg aldrei séð, né heyrt fyrri en hún barst svona upp i hendur mér, því að eg var í Ameriku 1896, eins og ritstj. vissi, fjarri íslendingum, og hafði því ekkert tækifæri til að sjá isl. blöð. Eg ætla þvi að svara, i fáum orðum »forvitring« þessum, Kvenmentavininum, þó seint sé. Það er þá fyrst — að eg hefi aldrei safnað eða tekið móti nokkrum samskotnm á Englandi — i Sviþjóð — né nokkrum öðrum löndum, til eflingar mentun og menn- ingu kvenfólks hér á landi. Vinaminni var ekki bygt fyrir samskot, heldur fyrir peninga, sem göfug og góð vinkona min gaf mér i minningu um Karó- linu sál. systurdóttur mfna, sem hún ann mjög. Hún tók það fram i bréfi (sem eg hefi hér til sýnis, og löglegt eftirrit af), að það væri gjöf til min og gæti eg þvi varið peningum þessum, eins og eg vildi sjálf. Eg d húsið, en ekki almenningur, eg vann sjálf fyrir þvi, sem vantaði til að borga fyrir bygging húsins — vann mér það inn með fyrirlestrum. Átti eg ekki sjálf þá peninga, sem eg fekk fyrir fyrirlestra, er eg sjálf hafði sam ið og flutt? Eg bygði Vinaminni i þeim tilgangi, að stofna þar kvennaskóia-, — var það illur til- gangur? Hér var sannarlega full þörf á meiri og betri mentun kvenna, en þeim gafst kostur 4 1885 og getur enginn, vona eg, álitið, að löngun min til að reyna að út- vega stúlkum meira tækifæri til að leita sér mentunar, hafi verið sprottin af illvilja til kvennþjóðarinnar eða lands mins. — Eg hefi aldrei legið á liði mínu, hafi eg eitthvað getað hlynt að íslenzku kvenþjóð- inni. Mér hefði því sárnað, ef »Kvennmenta- vininum« hefði tekist að koma forstöðu- nefnd Kvenfélagsins til að »forgrípa« sig á minni eign, og þær hefðu »hirt Vina minni«, eins og hann stakk upp á. — Hafi- nú hugur fylgt máli, þá er höf. þessi sjálf- sagt buinn að afreka mikið fyrir mentun kvenna í þessi 13 ár og ætti því ekki að hylja nafn hans. Næsta Isaf. sem kemur i hendur minar upp úr ruslakystu þessari, er frá 2 1896, þar birtist önnur'grein — augsýnilega smíðuð i sömu 8miðju og hin fyrri, sem Kvenmentavinurinn eignar sér, en þessi birt nafnlaus. Höf. þessi hlýtur að vera skáld, en skáld- skapur hans er grautarkendur. Höf. þessi byrjar líkt og kvenmentavin- urinn — nm kvennaskólann sem haldinn hafi verið í Vinaminni — 1 úr ___ um sam- skotin, sem ég hefi fengið á Englandi, í Svi þjóð, og viðar, til að reisa skólahús þetta fyrir 0. s. fr. En nu heypur Höf. frá hinni alvarlegu hlið sögunnar, þar sem eg á að hafa dreg- ið undir mig fé, sem íslandi hafi verið gef- ið þuð er með öðrum orðum — að eg hafi >stolið fé þessu úr sjálfs hendi«, — og fer nú að gjöra »gamansögur« til að skemta lesendnm ísafoldar — segir, að þeg- ar eg hafi heyrt landskjálfta sögurnar héð- an (eg var þá i Ameriku), hafi mér þegar flogið i hug« (þó það væri nú, að slikur vitringur »viti hvað menn hugsa«, þó aldrei láti þeir það i ljósi), að nú kynni »Vina- minni« að vera »hrunið« — (þetta litla) hafi síðan óðar brugðið við að safna & nýjan leik i skólasjóð (málið og réttritun er höf. en ekki min), með fyrirlestrum í faldbúningnum íslenzka og með því að bjóða til »8ölu kvenskartið og ættargripina dýr- mætu« o. s. frv. Lýsing min á íslandi, segir höf. sé sama og i fyrri daga — eymdarhag kvenþjóðar- innar islenzku, að þvi er nppeldi og ment- un snertir. »Hinn uppvaxandi karlmanna- lýður hafi ljómandi góðan latinuskóla i Reykjavík með frægum kennurum. Þar læri sveinarnir Cæsar og Austurför Kyrosar utan- bókar, þegar þeir hafi ekkert annað að gjöra á hinum löngu vetrarkvöldum, fari siðan til Kaupmannahafnar (litur út eins og þeir fari rétt eitthvert vetrarkvöldið, þegar þeir eru búnir með lexinrnar sinarll), og þar standi þeim enginn á sporði í lærdómw o. s. frv. Sárt er nú að verða að játa upp á sig að hafa ómögulega getað sagt frá hvað sveinarnir lærðu, sökum fáfræði og mentun- arleysis — þvi eg kinn ekki latinu, og þvi siður grísku. Ekki gat eg heldur hafa sagt, að allir íslendingar, sem færu til Hafnar, væru svona lærðir, þar sem eg þekki fleiri landa, sem ekki hafa tekið próf. En eg sagði »margir« — Enn gjörði eg Islandi, eða íslenzku karl- mannalýðnum nokkurn »ósóma« með þvi, áð þeir hefðu ljómandi góðan iatinuskóla með frægum kennurum? Var það ekki satt? Eða hafði þessi vitringur« aldrei heyrt getið um rektor Sveinbjörn Egilsson, Jón Þorkelsson, Björn Gunnlaugsson og marga fleiri merka kenn* ara. — Satt er það, sem hann segir eg hafi sagt um mismuninn á mentun kvenna og karla Eg tók fram t. d. fátæka presta eða bænd- ur upp til sveita, sem ættu syni og dætur. Þeir gætu með mjög litlum kostnaði sent 8yni sina suður í Reykjavik i latinuskólann, þar sem þeir fengju hús, hita, ljós og kenslu ókeypk. Einnig ölmusu — annað ef ekki fyrsta árið, sem nóg væri fyrir fæði, að minsta kosti. En dætur þeirra hlytu að fara alls þessa á mis, ef feður þeirra gsetu ekki borgað með þeim, því engin slik stofn- um væri hér fyrir kvenfólk. Þó stúlkur nú á seinni árum geti notið kenslu i skólanum ókeypis með piltum, þá hafa þær ekki hin hlunnindin, sem piltar hafa, nema ljós og hita í tímunum. (Meira). Sigríður E. Magnússon, Eldsvoðinn. í dag hafa nokkrar konur bæjarins og karlar gengið í nefnd — til að standa fyrir hjálp til þeirra, er tjón hafa beðið af hinum mikla bruna í nótt. Það verður áreiðanlega þörf mikill- ar hjálpar. Hvað segja listamenn þessa bæjar um að efna til skemtisamkomu og láta tjón eigi ágóðann renna til þeirra, sem hafa beðið ? — Fyrirhöfnin þarf að verða mikil. SRússneskir Nú á dögum telja menn sendiherrar. rússneska sendiherra vera glæsilegustu og háttprúð- ustu menn, sem til eru í heimi af þeirri stótt. Þeim hefir farið ögn fram síSan á 17. öld, því aS þá þóttu þeir svola- menni. Rússneski sendiherrann í Lund- únum á dögum Elísabetar drotningar mælti eitt sinn svo feldum orðum til drotningar í ræðu: »Húsbóndi minn hélt, að það værir þú, sem réðir þessu landi. En nú só eg, að það eru róttir og slótt- ir mangarar, sem ráða hór lögum og lofum, og þú ert ekkert annað en venju- leg skækja«. , Þegar franska tízkan fór að gera vart við sig við hirðina í Pétursborg fóru menn að kunna betur við, aö sendiherr- arnir bættu dálítið ráð sitt og lærðu mannasiði. Þeim var sent umburðarbróf og þeim sagt, »að vera stiltir undir borðum, að drekka sig ekki fulla og að vera ekki dónalegir í orðum«. Þó gefur eftirfarandi áminning enn betri hugmynd um ástandið: »Þið megið ekki fremja ránskap í húsum manna í ókunnum löndum, nó svifta nokkurn mann eign sinni með ofbeldi, og þið megið ekki berja á neinum að ástæðulausu«. Það veitti líka ekki af, að þeir væru ámintir. Rússneskur sendiherra heimsótti emn af þýzku kjörfurstunum nieð sveit sinm 1 Pillau árið 1658.' Fjölmenni mikið var þar samau komið, en gleðskapurinn for út um þúfur þegar líða tók á nóttina. Rússar urðu fullir og hofust brátt aflog milli þeirra og gestanna; en á meðan a því stóð, hafði sendiherrann sjalfur það sér til afþreyingar að brjóta og bramla allan borðbúnaðinn — og ha,fði þau orð um, að þess háttar tízkuprjál væn ekki til annars og hann væri maður til að koma því fyrir kattarnef.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.